Ónotuð íslensk mannanöfn ! Frá landnámi og miðöldum.

Í æsku umhverfi mínu var nafnið Eyleif  vanalegt. Svo kemst maður að því að nafnið er mjög fágætt.  Þá veltir maður fyrir sér hvort ekki séu mörg gömul nöfn í íslenskunni fágæt og jafnvel ekki  notuð í dag.  Við smá grúsk þá sýnist manni eins og  við landnám hafi málið verið mjög fjölskrúðugt af nöfnum en svo verið notuð færri nöfn á miðöldum en á síðustu öld orðið nokkur vakning að nota ný nöfn eða ný gömul nöfn. Hjálagt er listi af nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn ber í dag. 

 

Alfarinn,  Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur, Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð, Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður, Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp, Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik, Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður, Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur, Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur, Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar, Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður, Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir, Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur, Oddkatla, Óblauður, Saxi,  Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur, Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir, Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur, Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni, Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur, Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur, Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja, Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur, Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli, Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta, Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.

Væntanlega þarf ekki leyfi mannanafnanefndar til að skýra eitthvað af ofangreindum nöfnum.   Sum nöfnin eru alls ekki slæm eins og t.d. Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur Þjóðar.   Sum nöfn finnst mér hinsvegar nafnleysa og með neikvæða merkingu.  En eitt sinn var ekki hægt að nota nafnið Mörður, vegna "Lyga Marðar". Nú er það nafn vel þekkt og samþykkt, þannig geta nöfn öðlast samþykki.  Kannski eiga einstaklingar eftir að bera  nafnið Fálki rétt eins og Hrafn og Örn.  Íslenska málið býður uppá mörg ónotuð nöfn og kannski ekki nauðsynlegt að leita langt að nýjum nöfnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SigrúnSveitó

Ég hrasa strax í 2 fyrstu línunum..."Alfarinn"..."Grenjaður"..."Gufa"...svo eitthvað sé nefnt.  Hins vegar finnst mér t.d. Eyfríður alls ekki slæmt.

Gaman að þessu. Íslenskan er stórbrotið tungumál með fullt af möguleikum. 

SigrúnSveitó, 5.4.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Hildiríður ? Samanber synina.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.4.2008 kl. 23:43

3 Smámynd: Gísli Gíslason

já og einhvern veginn "hrasar" maður nafnleysurnar en les í gegnum hin.

Gísli Gíslason, 5.4.2008 kl. 23:53

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

hugmyndaflugið var greinilega engu minna á þessum tíma en það er í dag.

Hólmdís Hjartardóttir, 5.4.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Eysteinn Þór Kristinsson

Bölverkur er t.d. eitt af nöfnum æðsta guðsins Óðins. Við Lilja notuðum nafnið í ritgerð sem gerðum í Kennó nú í vetur. Gerðum við Bölverk að eiturlyfjainnflytjanda, nafnið passar vel. Já hugmyndaflugið var í góðu lagi - Skarfur Klaufi Kleppsson hljómar vel

Eysteinn Þór Kristinsson, 6.4.2008 kl. 09:15

6 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Já það er eftirsjá í mörgum af þessum gömlu nöfnum og þarft að vekja athygli á þeim. Sum eru mjög góð eins og Heinrekur, Herröður, Otkell og Otkatla. Önnur eru þannig að maður skilur að þau hafi ekki orðið vinsæl:). Þorleikur er reyndar til í dag held ég. 

Þorsteinn Sverrisson, 6.4.2008 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 183888

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband