Umferðartenging í Vatnsmýrina úr suðri

Eftir Gísli Gíslason: "Mörg efnisleg rök fyrir að setja vegtengingu úr suðri yfir eða undir Skerjafjörðinn inn á Vatnsmýrarsvæðið"

 
UMFERÐIN á morgnana inn á miðsvæði Reykjavíkur og frá svæðinu síðdegis er þung og á verstu tímum er jafnvel umferðarteppa. Á sama tíma og þetta ástand er þá er ljóst að bæði byggð og stofnunum mun fjölga á miðsvæði Reykjavíkur, Vatnsmýrarsvæðinu.

Í dag eru helstu umferðaræðar ofsetnar á álagstímum. Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni a.m.k. minnkar. Þetta eykur rými til nýbygginga á svæðinu. Það er verið að byggja nýjan Háskóla Reykjavíkur í Vatnsmýrinni. Það er áætlað að stækka Landspítala Háskólasjúkrahús. Háskóli Íslands stækkar og dafnar. Þannig er og verður vaxandi þörf fyrir nýja umferðartengingu inn á þetta svæði. Það gildir bæði fyrir fólk á leið til og frá vinnu og námi en ekki síður fyrir öruggt aðgengi að Landspítalanum. Í þessu sambandi er eðlilegt að skoða að tengja með vegi, brú eða göngum, frá sunnanverðu Sjálandi Garðabæjar til Bessastaðaness, til Kársness og yfir í Vatnsmýrina. Á hjálagðri mynd er ein hugmynd að slíkri leið.

 

Hagsmunamál margra

Tenging yfir Skerjafjörðinn sem styttir vegalengdir margra til og frá vinnu eru mikið framtíðar hagsmunamál fyrir íbúa Kópavogs, Garðabæjar, Álftaness, Hafnarfjarðar og jafnvel Suðurnesja. Ekki síður er þetta hagsmunamál fyrir íbúa mið- og vesturbæjar Reykjavíkur sem og Seltirninga þar sem slík framkvæmd gerir leiðina greiðari til Keflavíkur.

Sem Álftnesingur tel ég lykilatriði að slík umferðartenging fari ekki í gegnum byggðina á Álftanesi, heldur austan við hana. Núverandi valdhafar á Álftanesi hafa sagt að framtíðargolfvöllur ætti að vera á Bessastaðanesi. Með slíkri framkvæmd kæmi vegtenging við Bessastaðanesið að austan til. Slík vegtenging ætti því að geta verið ein forsenda fyrir tryggu aðgengi að Bessastaðanesinu sem gæti verið forsenda fyrir því að draumur núverandi valdhafa um framtíðar golfvöll á Bessastaðanesi verði að veruleika.

 

Umhverfismál

Þegar umferð er mest fara svifryksmælingar yfir heilsuverndarmörk við helstu umferðaræðar borgarinnar. Ný leið inn á miðsvæðið, yfir Skerjafjörðinn minnkar álag á þær stofnæðar sem fyrir eru og minnkar þar væntanlega svifryk. Það bætir loftgæði í borginni. Tenging yfir Skerjafjörðinn myndi stytta vegalengd margra til og frá vinnu og námi. Styttri vegalengd til vinnu eða náms þýðir daglega minni útblástur frá bílum sem er mikið umhverfismál en stytting vegalengda er einnig beinlínis þjóðhagslega hagkvæm.

Það eru mörg efnisleg rök fyrir að setja á dagskrá tengingu yfir eða undir Skerjafjörð. Það er mikilvægt að slík framkvæmd verði gerð í sátt við náttúru Skerjafjarðar. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir allan suðurhluta höfuðborgarsvæðisins.

Morgunblaðið 06.09.2008. 

Höfundur er lífefnafræðingur og í stjórn Sjálfstæðisfélags Álftaness.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Er ekki kominn tími á jarðgöng hér á höfuðborgarsvæðinu? Ég sé fyrir mér göng frá Vatnsmýri til Ásvalla í Hafnarfirði. Opin á leiðinni gætu verið í Fossvogi, Mjódd og Kaplakrika.

Sigurður Haukur Gíslason, 8.9.2008 kl. 22:26

2 Smámynd: Gísli Gíslason

jú það er tími tilkominn að fá jarðgöng hér og ekki veitir af að létta á umferðateppu.   Það er sagt að heilborun sé mun ódýrari en sprengiaðferðin við gagnagerð en þá þurfi göngin að vera löng.  Ermasundsgöngin voru heilboruð og eins göngin í Kárahnjúkum.  Það væri hollt að setja á dagskrá meiri umræðu um þessa hluti

Gísli Gíslason, 9.9.2008 kl. 20:25

3 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Tenging um Skerjafjörð er mjög fýsileg, hvort sem væri, brú eða göng....

...veit ekki alveg með fleiri göng...nema fyrir almenningssamgöngur.

Persónulega finnst mér að það eigi frekar að takmarka einkabílaumferð í miðborginni, en að greiða fyrir henni. En það er auðvitað háð áherslubreytingum í almenningssamgöngum.

Haraldur Davíðsson, 9.9.2008 kl. 22:15

4 Smámynd: Gísli Gíslason

Umræðan um almenningssamgöngur versus einkabílin er þörf.  Óháð þeirri umræðu,  þá þarf að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Gísli Gíslason, 11.9.2008 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband