Maður sem setur hryðjuverkalög á Íslendinga !

Ólafur Ragnar kom mér verulega á óvart og var satt best að segja sjálfum sér samkvæmur þegar hann hafnaði að undirrita Icesave lögin.  Ég hélt að hann yrði meðvirkur með sínum gömlu félugum og undirritaði þessi lög.  Miðað við það fordæmi sem hann var búinn að gefa í fjölmiðlalögunum þá er rökrétt framhald að neita að undirrita þessi lög.  Það var að mínu viti rangt hjá honum að undirrita ekki fjölmiðlalögin.  Ég held að almennt sé það ekki gott ef Forsetinn ætlar að fara að hafna undirskrift laga á nokkurra ára fresti.  Það var þó mun eðlilegra að setja þessi lög í þjóðaratkvæði en fjölmiðlalögin.  Nú er spurning hvað tekur við.

Nú þarf að semja uppá nýtt við Breta og Hollendinga eða setja málið fyrir dómsstóla, spurning hvaða dómstólar það ætti að vera.  Varla breska dómstóla. 

Íslenskir stjórnmálamenn hljóta að spyrja sig hvort heppilegt sé að hafa Alistair Darling sem viðsemjenda. Þessi maður ásamt Gordon Brown setti hryðjuverkarlög á Íslendinga og er trúlega eina opinbera stríðsyfirlýsingin sem herlaus þjóð hefur fengið á sig.   Þegar búið er að setja stríðsyfirlýsingu á Ísland, á þá ekki orðið við force majeure.


mbl.is Bretar leita til ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar G

Blessaður Gísli. Ég fagna ákvörðun forseta Íslands að samþykkja ekki icesave lögin. Með þessu er hann að stíga fyrstu skrefin í hinu nýja Íslandi og opna lýðræðið. Færa völdin frá sérhagsmunaöflunum til fólksins í landinu.

Nú þarf að bregðast fljótt við og setja í lög að það þurfi t.d. 5 - 20% þjóðarinnar til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um hvaða málefni sem er. Við lásum um það fyrir skemmstu að Svisslendingar höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslu að reisa fleiri moskvur fyrir múlima þar í landi, þó svo meirihluti væri fyrir því á þingi. Þetta er lýðræði sem mér líkar, opið lýðræði.

með baráttu kveðju

 Raggi Þórðar

Ragnar G, 5.1.2010 kl. 14:13

2 Smámynd: Gísli Gíslason

Heill og sæll félagi.  Auðvitað er það alveg rétt að hagsmunaaðilar hafa alltof greiðan aðgang að lykil embættum stjórnsýslunnar og stjórnmálamönnum.  En viljum við hafa mikið af þjóðaratkvæðagreiðslum ? Eðlilegt að sum mál séu borin undir þjóðina, en við búum við fulltrúalýðræði og látum kjörna fulltrúa vinna þessa vinnu fyrir okkur. Það er meginreglan en þjóðaratkvæði undantekningin.

Gísli Gíslason, 5.1.2010 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 184079

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband