Bubbi góður !

Ég kann vel við þessa greiningu hjá Bubba.  Aðstæður fólks út á landi hafa fengið litla umfjöllun.   Fyrir ríflega 10 árum störfuðu yfir 9000 manns við fiskveiðar og önnur ríflega 9000 manns við fiskvinnnslu. Nú eru um 4000 sjómenn og svipaður fjöldi fólks í fiskvinnslu.  Þetta er helmings fækkun í undirstöðu atvinnuvegi sjávarþorpanna.   Trúlega er svipaða sögu að segja úr landbúnaði.  Þessi þróun hefur þýtt fækkun í flestum þéttbýlisstöðum við sjávarsíðuna.  Hús fólks út á landi verða verðlítil og  þannig þarf fólk sem flytur, oft að byrja uppá nýtt með tvær hendur tómar í höfuðborginni.

Ég held að þau sem börðust sem mest á móti þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað austur á landi og mun verða við Húsavík ættu að koma með raunhæfar tillögur á borðið um uppbyggingu atvinnuvega úti á landi.  Önnur leið er að viðurkenna að það sé í lagi að viss svæði leggist í eyði.  Margir hugsa það en enginn hefur kjark til að segja það, a.m.k væri það kjarkaður stjórnmálamaður sem stæði fram og segði slíkt.  Við uppbygginguna austur á landi, þá urðu eignir fólks aftur einhvers virði. Fólkið fékk þannig frelsi til að selja og koma sér í burtu.  Flestir völdu að eiga sínar eignir og vera áfram.

Það er mikilvægt að það verði ekki einhver rétttrúnaður í samfélaginu að öll uppbygging atvinnuvega út á landi sé slæm.


mbl.is Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú segir að vegna þess að fiskvinnslan sé hrunin á landsbyggðinni þurfi að koma til stóriðja, þú hefðir alveg mátt bæta því að þetta ástand í fiskvinnslunni er vegna hægristefnu.

Valsól (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 12:22

2 Smámynd: Gísli Gíslason

Staðreyndin er sú að vatnsaflsvirkjanir framleiða umhverfisvæna orku.  Ef orkan úr Kárakhnjúkum er seld of ódýrt, sem ég reyndar efast um, þá eru það ekki rök gegn því að við eigum ekki að nýta aðrar sambærilegar auðlindir og selja þá orku á markaðsverði, sem úr þeim fæst.

Það hefur fækkað störfum við fiskveiðar og fiskvinnslu.   Það þýðir meiri framleiðni í greininni og meiri hagkvæmni.  Ef það væri jafn margir starfandi í sjávúrútvegi og var fyrir 10-15 árum, þá væri sá atvinnuvegur rekinn með tapi  og það hefur íslensk þjóð ekki efni á.

Ég endurtek hver af þeim sem mótmæla atvinnuuppbyggingu úti á landi hefur nokkra samúð með fólkinu og samfélugunum þar ??  Mjög fáir !!!  Ef svo þá ætti fólk að benda á aðrar lausnir í atvinnu uppbyggingu á landsbyggðinni.

Gísli Gíslason, 19.7.2008 kl. 13:03

3 identicon

.....þúsund þorskar á færibandi þokast nær!!!

Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband