Gísli Gíslason

Æskurárin voru samfelld hamingja austur í Neskaupstað, hvort  sem við strákarnir lékum okkur að veiða á bryggjunum, í fótbolta eða öðrum leikjum.  Móðir mín, Guðrún María býr  enn í því húsi sem við fluttum í árið 1969.  Faðir minn Gísli Sigurbergur var skipstjóri og  hafnarstjóri en hann er látinn.  Við bræðurnir vorum 4 og eru tveir ennþá fyrir austan.  Jóhann Pétur stóri bróðir er vélstjóri hjá Síldarvinnslunni og á 3 börn og eitt stjúpbarn, hamingjusamlega giftur Siggu sinni.  Bæði eru, eins og margir Norðfirðingar,  ættuð frá  Mjóafirði.  Guðmundur Rafnkell bróðir býr  með Gunnu sinni og tveimur dætrum.   Gummi vasast í mörgu, enda duglegur drengur. Hann vinnur á Reyðarfirði við uppbygginguna þar og er einnig forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og syngur með hljómsveitinni SúEllen.   Eyleifur bróðir lést ungur og ég fór snemma suður í menntó og þaðan til Noregs í háskóla og  hef síðan búið, bæði í Vestmanneyjum, Akureyri, Lincoln Englandi og eins og margir Íslendingar þá er maður lentur hér á  höfuðborgarsvæðinu.  Bý á Álftanesi, yndislegur staður, horfi úti á hafið, enda notalegt að fylgjast með "logninu" á haffletinum.  Hér á Álftanesi býr einnig hálfbróðir minn Heimir Berg og fjölskylda en pabbi átti hann fyrir hjónaband.  Dugleg  og samhent hjón.  Ég er giftur yndislegri konu, Bergrós Guðmundsdóttur einnig frá Neskaupstað.   Börnin mín eru Eyleif Ósk, fædd 96  og Gísli Veigar, fæddur 98.  Frábær börn sem ég er óendanlega stoltur  af.  Fátt er dýrmætara en þegar þau eru hér hjá okkur á Álftanesinu.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Gísli Gíslason

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband