Í minningu Óskars Björnssonar

Óskar BjörnssonÓskar Björnsson er látinn.  Hann var Norðfirðingur í húð og hár, af eldra fólki oft kenndur við húsið Brennu á Norðfirði.   Ástæðan fyrir að ég set hér niður línu um hann er að hann var hagyrðingur góður.  Árið 1968, þegar langafi minn Jóhann Magnússon varð áttræður, þá sendi hann honum eftirfarandi vísu: 
  • Ævin er nú hálfnuð þín
  • er því von ég segi.
  • Bakkus passar börnin sín
  • bæði á nótt sem degi 

  • Lifðu heill og lífsins njóttu
  • lengi ennþá Jói minn.
  • Áttugfaldar óskir hljóttu
  • er þér sendir vinur þinn.
Það væri þjóðþrifa mál ef einhver áhugasamur safnaði nú saman kveðskap eftir Óskar Björnsson nú þegar hann hefur kvatt þetta tilverustig.   Eftirlifandi eiginkonu, börnum og öllum ættingjum sendi ég  samúðarkveðjur. 

Ekkert ábyrgðarleysi?

Vinstri stjórnin sem sat 1971-1973 hafði það á stefnuskrá sinni að senda herinn heim í áföngum.  Það gekk ekki eftir.  Þegar kalda stríðinu lauk þá fór herinn af landi brott en það er önnur saga.

Þessi vinstri stjórn sem er að taka við völdum vill innkalla veiðileyfin í áföngum.  Engin ríkisstjórn hefur áður haft það áður á dagskrá.  Trúlega mun þetta ekki ganga eftir, frekar en herstöðvarmálið um árið.  En þegar þessari æfingu þeirra er lokið, þá er trúlega ennfrekar búið að festa aflamarkskerfið varanlega í sessi.

 


mbl.is „Ekkert ábyrgðarleysi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. maí 2009

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband