Ísland eina landið í hinum vestræna heimi þar sem ekki má dæma í sameiginlega forsjá.

Ísland hefur verið sem meginregla verið á eftir nágrannalöndum í þróun á sviði sifjaréttar, þannig var Ísland síðast Norðurlanda til að lögfesta sameiginlega forsjá sem val  og einnig síðast af Norðurlöndum til að gera sameiginlega forsjá að meginreglu og í dag er Ísland eitt eftir af löndum í hinum vestræna heimi sem heimilar ekki dómurum að dæma í sameiginlega forsjá, jafnvel þó það séu bestu hagsmunir barnsins samkvæmt mati.  Í janúar 2010 lagði nefnd til að dómarar fengu heimild til að lögfesta sameiginlega forsjá sjá. http://www.domsmalaraduneyti.is/frettatilkynningar/nr/6911, en á sama tíma er lagt til að innihald sameiginlegrar forsjár sé áfram lítið og lögheimilisforeldrið sé í raun hið eiginlega forsjárforeldri, sem ræður öllu stóru og smáu í lífi barns og nýtur réttinda til opinberra bóta samkvæmt því.  Þessi vinna var því að hluta smjörklípa sem viðheldur því að mest öll réttindi og skyldur foreldra eru hjá öðru foreldrinu en ekki báðum.

Það er eins með meðlagskerfið, það er viðurkennt að það er á eftir öðrum sambærilegum kerfum http://www.domsmalaraduneyti.is/frettatilkynningar/nr/6460 og búið er að skila skýrslu um tillögu að nýju kerfi sjá  http://www.domsmalaraduneyti.is/frettatilkynningar/nr/6926.  Allt þetta liggur í ráðuneytinu og það má spyrja sig hvort þar sé einhver vilji til breytinga yfirhöfuð.

Hæg þróun á sviði sifja og barnaréttar sé falleinkun á þá sem starfa í stjórnsýslunni í þessum málaflokki, fall einkun á þá sem fjalla um þessi mál í hinum akademíska heimi, falleinkun á þær stofnanir sem eigia að líta eftir hagsmunum barna og síðast en ekki síst þá er þetta falleinkun á okkar stjórnmálamenn, svo ekki sé talað um að hér eins og víða annarsstaðar vantar gagnrýna umfjöllun í fjölmiðlum um þessi mál.

Það er tími til kominn að á Íslandi séu réttindi barna sett í forgang og hinn aldni og úrelti móðurréttur fari í sögubækurnar.   Á meðan bera konur að meðaltali meiri ábyrgð á börnum og uppeldi og á sama tíma bera þær að meðaltali minna úr bítum á vinnumarkaði.  Því miður virðist lítið vera að gerast í þessum málum.

 


mbl.is 85% barna í sameiginlegri forsjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. júní 2010

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband