Dæmigerð Moggafrétt

Í þessari frétt er lagt út með að Tómasi H. Heiðar hafi verið vikið vegna þess að hann hafi verið of harður að verja hagsmuni Íslands í makríldeilunni og með að skifta honum út þá sé Ísland að þjónkast EB.

En sá hinn sami Tómas H Heiðar hefur verið í saminganefnd Íslands um sjávarútvegsmál við ESB um umsókn Íslands að EB.  Og andstæðingar þess ferils hafa nefnt það ferli aðllögunarferli en ekki umsóknarferli.  Þar sé ekki verið að verja hagsmuni Íslands nægjanlega og þar er þáttakandi sá hinn sami og ver hagsmuni Íslands of kröftuglega skv samsæriskenningu þessarar fréttar.

Er líklegt að Tómas H Heiðar hafi annars vegar verið  of harður til að verja hagsmuni Íslands í makríldeilunni og sé á sama tíma virkur í því sem andstæðingar EB kalla  "aðlögunarferli" þar sem helst má skilja á sumum fréttamiðlum að Ísland hafi gleypi allt frá EB gagnrýnislaust, enda sé þetta ekki umsókn heldur aðlögunarferli.   Ég held að hér hljóta aðrar ástæður að liggja að baki.

Svona fréttir eru hluti af ritsjórnarstefnu blaðsins, þ.e. ristjórnin er  á móti því að ræða yfirhöfuð við EB og það flytur fréttir til að styðja sína ritstjórnarstefnu.

Það er mikil þörf á góðri, faglegri og upplýstri fréttamennsku og þar hefur Morgunblaðið mikið hlutverk sem það hefur ekki staðið undir í alltof of langann tíma. 


mbl.is Vilja lenda makríldeilunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. júní 2012

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 187325

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband