5.4.2008 | 23:24
Ónotuð íslensk mannanöfn ! Frá landnámi og miðöldum.
Í æsku umhverfi mínu var nafnið Eyleif vanalegt. Svo kemst maður að því að nafnið er mjög fágætt. Þá veltir maður fyrir sér hvort ekki séu mörg gömul nöfn í íslenskunni fágæt og jafnvel ekki notuð í dag. Við smá grúsk þá sýnist manni eins og við landnám hafi málið verið mjög fjölskrúðugt af nöfnum en svo verið notuð færri nöfn á miðöldum en á síðustu öld orðið nokkur vakning að nota ný nöfn eða ný gömul nöfn. Hjálagt er listi af nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn ber í dag.
Alfarinn, Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur, Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð, Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður, Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp, Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik, Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður, Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur, Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur, Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar, Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður, Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir, Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur, Oddkatla, Óblauður, Saxi, Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur, Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir, Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur, Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni, Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur, Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur, Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja, Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur, Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli, Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta, Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.
Væntanlega þarf ekki leyfi mannanafnanefndar til að skýra eitthvað af ofangreindum nöfnum. Sum nöfnin eru alls ekki slæm eins og t.d. Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur Þjóðar. Sum nöfn finnst mér hinsvegar nafnleysa og með neikvæða merkingu. En eitt sinn var ekki hægt að nota nafnið Mörður, vegna "Lyga Marðar". Nú er það nafn vel þekkt og samþykkt, þannig geta nöfn öðlast samþykki. Kannski eiga einstaklingar eftir að bera nafnið Fálki rétt eins og Hrafn og Örn. Íslenska málið býður uppá mörg ónotuð nöfn og kannski ekki nauðsynlegt að leita langt að nýjum nöfnum.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt 26.10.2008 kl. 20:36 | Facebook
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
- raggig
- eyleifosk
- gummigisla
- andres08
- alla
- gattin
- eurovision
- doggpals
- saxi
- eysteinn-thor
- garibaldi
- killjoker
- gudrunkatrin
- gisliivars
- veravakandi
- heimirhilmars
- heg
- jakobbjornsson
- joik7
- kristinnagnar
- lauola
- magneak
- mal214
- nafar
- sigrunsveito
- sigurjonth
- sighauk
- slartibartfast
- sveinni
- valgerdurhalldorsdottir
- sparki
- btryggva
- keh
- seinars
- siggisig
- sigurjons
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég hrasa strax í 2 fyrstu línunum..."Alfarinn"..."Grenjaður"..."Gufa"...svo eitthvað sé nefnt. Hins vegar finnst mér t.d. Eyfríður alls ekki slæmt.
Gaman að þessu. Íslenskan er stórbrotið tungumál með fullt af möguleikum.
SigrúnSveitó, 5.4.2008 kl. 23:43
Hildiríður ? Samanber synina.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 5.4.2008 kl. 23:43
já og einhvern veginn "hrasar" maður nafnleysurnar en les í gegnum hin.
Gísli Gíslason, 5.4.2008 kl. 23:53
hugmyndaflugið var greinilega engu minna á þessum tíma en það er í dag.
Hólmdís Hjartardóttir, 5.4.2008 kl. 23:57
Bölverkur er t.d. eitt af nöfnum æðsta guðsins Óðins. Við Lilja notuðum nafnið í ritgerð sem gerðum í Kennó nú í vetur. Gerðum við Bölverk að eiturlyfjainnflytjanda, nafnið passar vel. Já hugmyndaflugið var í góðu lagi - Skarfur Klaufi Kleppsson hljómar vel
Eysteinn Þór Kristinsson, 6.4.2008 kl. 09:15
Já það er eftirsjá í mörgum af þessum gömlu nöfnum og þarft að vekja athygli á þeim. Sum eru mjög góð eins og Heinrekur, Herröður, Otkell og Otkatla. Önnur eru þannig að maður skilur að þau hafi ekki orðið vinsæl:). Þorleikur er reyndar til í dag held ég.
Þorsteinn Sverrisson, 6.4.2008 kl. 11:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.