Launamunur kynjanna og foreldraábyrgð

Laugardaginn 2. júní, 2007 - mbl, Aðsent efni

Gísli Gíslason skrifar um forsjá barna

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Gísli Gíslason skrifar um forsjá barna: "Kynbundinn munur í heimilis- og foreldraábyrgð endurspeglar stöðu kynjanna á vinnumarkaði."

MIKIÐ hefur verið fjallað um kvenfrelsi og launamun kynjanna og er oft talað af mikilli tilfinningu um þessi mál. Eðlilega, misrétti kemur við réttlætiskennd okkar allra.

Eitt sinn voru konur heimavinnandi og karlar fyrirvinnur heimilanna. Konur sóttu út á vinnumarkaðinn og börnin fóru í leikskóla. Ennþá bera konur að meðaltali meiri ábyrgð á heimili og börnum og karlar bera að meðaltali meira úr býtum á vinnumarkaði. Meiri ábyrgð kvenna í foreldrahlutverkinu rýrir sveigjanleika þeirra á vinnumarkaði og viðheldur þannig bæði útskýrðum og óútskýrðum launamun. Kynbundinn munur í heimilis- og foreldraábyrgð endurspeglar því stöðu kynjanna á vinnumarkaði.

Munur í foreldraábyrgð kynjanna er almennur, bæði þegar foreldrar búa saman en mestur þegar foreldrar búa ekki saman. Það eru um 14.000 mæður sem búa ekki með barnsfeðrum sínum, en þær hafa lögheimili um 20.000 barna hjá sér, þ.e. barna yngri en 18 ára. Þær bera þ.a.l. mesta ábyrgð á uppeldi þeirra og hafa stöðu, skattalega og félagslega sem foreldri og einstætt foreldri ef þær eru ekki í sambúð með nýjum maka. Það eru um 12.000 feður sem greiða meðlög með þessum 20.000 börnum og flokkast þeir skattalega sem barnlausir einstaklingar ef börn þeirra hafa ekki lögheimili hjá þeim. Trúlega er kynbundinn munur hvergi meiri en í þessum málaflokki, sem telur 26.000 foreldra eða um 16% af vinnnandi fólki á Íslandi. Mismunur í foreldraábyrgð kynjanna í þessum hóp skapar þeim mjög ólíka stöðu á vinnumarkaði. Eðli málsins samkvæmt er þessi hópur á fyrri hluta síns starfsferils þar sem kjör þeirra til langframa eru oft mótuð.

Allar stjórnvaldsaðgerðir sem jafna foreldraábyrgð skapar báðum kynjum sömu forsendur til sóknar á vinnumarkaði. Þannig voru lög sem tryggðu feðrum jafnan rétt til fæðingarorlofs stórt skref til að jafna foreldraábyrgð og mun einnig minnka launamun kynjanna.

Sameiginleg forsjá var lögfest sem meginregla við skilnað foreldra á síðasta kjörtímabili. Þetta þýðir að löggjafinn gefur þau skýru skilaboð að við skilnað ber foreldrum að fara áfram sameiginlega með ábyrgð á börnum sínum. Að gefinni þeirri forsendu að sameiginleg forsjá þróist í jafna foreldraábyrgð, þá mun þessi löggjöf, eins og fæðingarorlofslögin, einnig jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði.

Foreldrajafnrétti skapar forsendur fyrir launajafnrétti, en þetta tvennt mun haldast í hendur.

Höfundur er lífefnafræðingur og faðir tveggja barna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Helgi Gunnlaugsson

Ég er búinn að halda þessu fram sjálfur í nokkuð langan tíma; að raunverulegt launajafnrétti felist í því, að fá feðurna inn á heimilin.

Ég er líka sammála því, að það hafi verið stigið stórt skref í þessa átt með lögum um fæðingarorlof feðra.  Það er bara einn hængur þar á:  Að einungis séu greidd 80% af launum í fæðingarorlofinu.  Það segir sig jú sjálft, að af því að karlmenn eru enn að meðaltali hærra launaðir en konur, þá verður innkoma heimilisins í heildina minni, þegar karlinn er í fæðingarorlofi, ekki satt?  Það gæti staðið í vegi fyrir því, að feður nýttu sér þennan rétt, sérstaklega þeir tekjulægri.  Ég myndi vilja sjá þetta hækkað upp í 100% í áföngum. 

Árni Helgi Gunnlaugsson, 4.6.2007 kl. 01:11

2 Smámynd: Gísli Gíslason

Í mínum huga  er þetta spurning um að foreldraábyrgð kynjanna sé jöfn.   Kynin munu aldrei ná launajafnrétti,  á meðan ekki er foreldrajafnrétti.   Á meðan konur bera  meiri foreldra og heimilisábyrgð þá mun kynbundin launamunur vera viðvarandi.

Gísli Gíslason, 4.6.2007 kl. 09:06

3 Smámynd: Sigurður Jökulsson

Þetta er mjög athyglisverður punktur. Hafa einhverjar rannsóknir verið gerðar á þessu sviði?

Sigurður Jökulsson, 6.6.2007 kl. 09:19

4 Smámynd: Gísli Gíslason

Það liggja fyrir niðurstöður um launamun kynjanna og það liggja fyrir niðurstöður um forsjá og lögheimili barna, þegar foreldrar búa ekki saman.  Allt engurspegplar þetta hvort annað.  Það er líka ljóst að launamunur kynjanna hefur minnkað með aukinni atvinnuþáttöku kvenna, en jafnframt þeirri þróun hefur heimilisþáttaka feðra aukist.  Þannig að þetta tvennt helst í hendur.  Í mínum huga hverfur launamunur kynjanna fyrst þegar foreldra og hemilisábyrgð er orðin jöfn´.

Því miður finnst  manni eins og  rannsóknir  um launamun kynjanna séu oft að magngreina launamuninn,  frekar en að finna ástæður fyrir launamuninum.   Ég þekki ekki til rannsókna sem fjalla um samhengið á milli launamunar og  foreldraábyrgðar.

Gísli Gíslason, 6.6.2007 kl. 10:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 84
  • Frá upphafi: 183993

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband