Norðfirðingar á Næsta bar í kvöld!

Ég sá í Fréttablaðiðinu í morgun að Jón Knútur Ásmundsson heldur útgáfuteiti á Næsta bar í kvöld klukkan 6 í tilefni af útkomu bókarinnar "Nesk".  Kristinn Pétursson útgefandi bókarinnar kallar hana fyrstu bloggbók á Íslandi.

Það kemur fram í fréttinni að hann er rauðhærður og er með bloggsíðu á vefslóðinni www.raudhausar.com og er forsenda að vera rauðhærður til að geta bloggað þar.  Sniðugur húmor.  Ef ég man rétt þá voru Skagamenn með keppni um rauðhærðasta íslendinginn, þegar þeir halda írska daga hátíðlega.

Í útgáfuteitinu mun Jón Knútur  lesa úr bók sinni og Katrín Oddsdóttir fjalla um blogg.  Þá mun Hlynur Ben spila en hann er líka norðfirðingur.

Fyrir fólk eins og mig og aðra Nobbara, sem hafa búið í aldarfjórðung eða meir fjarri heimahögunum, þá er Jón Knútur sonur Ása rauða og Hildar ljósu.  Hlynur er sonur Benna og Röggu Hjálmars.

Það er full ástæða fyrir Norðfirðinga, Fjarðabyggðarbúa og alla austfirðinga til að mæta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 63
  • Frá upphafi: 183960

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 61
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband