2.3.2008 | 10:14
Eyleif amma orðið 100 ára í dag !
Eyleif Jónsdóttir amma mín hefði orðið 100 ára í dag. Hún fæddist að Horni við Hornafjörð og ólst þar upp. Hún kynntist afa, Gísla Bergsveinssyni er hann var á vertíð á Hornafirði. Þau bjuggu alla sína tíð á Norðfirði. Þegar afi lést árið 1971 þá dvaldist ávallt einn af okkur bræðrum hjá ömmu allar götur til 1985 er hún flutti út í Breiðablik, sem eru íbúðir fyrir aldraða á Norðfirði. Fyrst var það ég og Jóhann sem nutum þeirra forréttinda að búa hjá henni til skiptis og seinna Guðmundur og Eyji.
Föður afi og amma Eyleifar ömmu hétu Eyjólfur og Guðleif og var hún skírð í höfuðið á báðum. Í dag bera 3 afkomendur hennar nafnið, en það er Eyleif Björg á Ísafirði, Eyleif Þóra á Álftanesi og Eyleif Ósk dóttir mín. Ég held að aðeins okkar ætt og ein ætt frá Akranesi noti þetta nafn. Læt svo fylgja mynd af ömmu með foreldrum mínum á 80 ára afmæli hennar árið 1988. Svo er önnur mynd af nöfnu hennar á Goðamótinu á Akureyri.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 26.10.2008 kl. 20:39 | Facebook
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
- raggig
- eyleifosk
- gummigisla
- andres08
- alla
- gattin
- eurovision
- doggpals
- saxi
- eysteinn-thor
- garibaldi
- killjoker
- gudrunkatrin
- gisliivars
- veravakandi
- heimirhilmars
- heg
- jakobbjornsson
- joik7
- kristinnagnar
- lauola
- magneak
- mal214
- nafar
- sigrunsveito
- sigurjonth
- sighauk
- slartibartfast
- sveinni
- valgerdurhalldorsdottir
- sparki
- btryggva
- keh
- seinars
- siggisig
- sigurjons
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gísli minn, þakka þér fyrir að minnast þessara góðu konu, hún var okkur öllum svo mikils virði hér fyrir austan. kv. mamma
Urðarteigur 18, Nesk. (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 16:59
Nett myynd --> ;D en hehehe ;D já það var flott að minnast á hana :)
Eyleif Ósk (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 14:55
Sæll frændi. Já hún amma var alveg einstök svo róleg og æðrulaus. Aldrei man ég eftir að hún skipti skapi hvað sem á gekk. Hef ég alltaf verið mjög stollt af nafninu mínu (þó oft hafi það verið bjagað á póstsendinum). Kveðja Eyleif Björg
Eyleif (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 15:59
Hæ frænka, já nafnið er eitthvað til að vera stolt af enda amma einstök eins og nafnið og minningin um ömmu svo björt.
Gísli Gíslason, 3.3.2008 kl. 20:04
Sæll Gísli minn. Ég man svo vel eftir henni og það var svo notalegt að sitja í eldhúsinu hennar. Það var líka alltaf svo gott til með kaffinu.
Kveðja,
Kristín Kristins
Kristín Kristins (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 13:45
Gísli Gíslason, 9.3.2008 kl. 13:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.