Meðlagsgreiðendur; Útlagar nútímans.

Hver  hefur ekki séð kúrekamyndir, þar sem fógeti auglýsir eftir meintum glæpamönnum með því að hengja plaköt út um alla sýslu.  Á plakötunum stendur "WANTED" og þá  var  einnig stundum "WANTED, dead or alive".   Í  myndunum voru oft hinir eftirlýstu kúrekar sem voru fórnarlömb aðstæðna. Þetta voru útlagar eða "outlaws" eins og það heitir á hinu engilsaxneska máli.

outlaws 

Ennþá er Kaninn  við  sama heygarðshornið.  Nú eru útlagar nútímans ekki ógæfusamir kúrekar heldur  meðlagsgreiðendur.  Í Los Angeles  er nú átak að koma í fangelsi "Top 10" skuldurum meðlaga !   Um það má lesa hér í vefútgáfu Los Angeles Times.   Myndir af þessum 10 ógæfu  mönnum lenda á "FBI's Most Wanted list"  og eru þar í hópi með Osama Bin Laden.  Samkvæmt heimildum eru um 80% af þeim sem skulda meðlög í Kaliforníu einstaklingar sem hafa tekjur við fátæktarmörk eða lægri tekjur og yfir 25% af útistandandi meðlagskröfum eru vextir.   Ætli meðlagsgreiðendur séu ekki bara "niggara 21 aldarinnar".

Þrátt fyrir  að feður og meðlagsgreiðendur hafa átt og eigi fáa formælendur hér á  Íslandi,  þá verður  vonandi umræðan og framkvæmd stjórnvalda aldrei aldrei svona vitlaus hér á landi.   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyleif Ósk Gísladóttir

Vá pabbi það er alveg ótrúlegt hvað þú bloggar mikið
En ókei bæbæ :)
Knús,Kossar og ást
Eyleif :)

Eyleif Ósk Gísladóttir, 31.3.2008 kl. 19:43

2 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Er þetta ekki næsta skrefið hér á landi? Ég var að gera skattskýrsluna mína og skv. skattayfirvöldum þá er ég ekki einstæður faðir. Samt borgaði ég tæplega 400 þús. í meðlag á síðasta ári með dóttur minni. Það er hvergi skráð á skattframtalið.

Sigurður Haukur Gíslason, 1.4.2008 kl. 00:36

3 Smámynd: Gísli Gíslason

:) Eyleif knús og kossar :)

 Sigurður, ég skrifaði um þessi mál fyrir nokkru og hét greinin barnlausir foreldra.  Þar bendi ég að báðir foreldrar hafa sömu framfærslu skyldu en ólíka skattalega stöðu. Sú mismunun hlýtur að vera brot á stjórnarskrá.

Gísli Gíslason, 1.4.2008 kl. 08:24

4 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Góð grein. Er tekið eitthvað á þessu í frumvarpi Daggar?

Sigurður Haukur Gíslason, 1.4.2008 kl. 15:08

5 Smámynd: Gísli Gíslason

Ég er ekki viss hvort þetta sé í frumvarpinu.   Það þyrfti einn faðir með sameiginlega forsjá að keyra svona prófmál fyrir dómsstóla. 

Gísli Gíslason, 1.4.2008 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 93
  • Frá upphafi: 184087

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband