19.7.2008 | 10:12
Bubbi góður !
Ég kann vel við þessa greiningu hjá Bubba. Aðstæður fólks út á landi hafa fengið litla umfjöllun. Fyrir ríflega 10 árum störfuðu yfir 9000 manns við fiskveiðar og önnur ríflega 9000 manns við fiskvinnnslu. Nú eru um 4000 sjómenn og svipaður fjöldi fólks í fiskvinnslu. Þetta er helmings fækkun í undirstöðu atvinnuvegi sjávarþorpanna. Trúlega er svipaða sögu að segja úr landbúnaði. Þessi þróun hefur þýtt fækkun í flestum þéttbýlisstöðum við sjávarsíðuna. Hús fólks út á landi verða verðlítil og þannig þarf fólk sem flytur, oft að byrja uppá nýtt með tvær hendur tómar í höfuðborginni.
Ég held að þau sem börðust sem mest á móti þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað austur á landi og mun verða við Húsavík ættu að koma með raunhæfar tillögur á borðið um uppbyggingu atvinnuvega úti á landi. Önnur leið er að viðurkenna að það sé í lagi að viss svæði leggist í eyði. Margir hugsa það en enginn hefur kjark til að segja það, a.m.k væri það kjarkaður stjórnmálamaður sem stæði fram og segði slíkt. Við uppbygginguna austur á landi, þá urðu eignir fólks aftur einhvers virði. Fólkið fékk þannig frelsi til að selja og koma sér í burtu. Flestir völdu að eiga sínar eignir og vera áfram.
Það er mikilvægt að það verði ekki einhver rétttrúnaður í samfélaginu að öll uppbygging atvinnuvega út á landi sé slæm.
Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:22 | Facebook
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
- raggig
- eyleifosk
- gummigisla
- andres08
- alla
- gattin
- eurovision
- doggpals
- saxi
- eysteinn-thor
- garibaldi
- killjoker
- gudrunkatrin
- gisliivars
- veravakandi
- heimirhilmars
- heg
- jakobbjornsson
- joik7
- kristinnagnar
- lauola
- magneak
- mal214
- nafar
- sigrunsveito
- sigurjonth
- sighauk
- slartibartfast
- sveinni
- valgerdurhalldorsdottir
- sparki
- btryggva
- keh
- seinars
- siggisig
- sigurjons
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 185615
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú segir að vegna þess að fiskvinnslan sé hrunin á landsbyggðinni þurfi að koma til stóriðja, þú hefðir alveg mátt bæta því að þetta ástand í fiskvinnslunni er vegna hægristefnu.
Valsól (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 12:22
Staðreyndin er sú að vatnsaflsvirkjanir framleiða umhverfisvæna orku. Ef orkan úr Kárakhnjúkum er seld of ódýrt, sem ég reyndar efast um, þá eru það ekki rök gegn því að við eigum ekki að nýta aðrar sambærilegar auðlindir og selja þá orku á markaðsverði, sem úr þeim fæst.
Það hefur fækkað störfum við fiskveiðar og fiskvinnslu. Það þýðir meiri framleiðni í greininni og meiri hagkvæmni. Ef það væri jafn margir starfandi í sjávúrútvegi og var fyrir 10-15 árum, þá væri sá atvinnuvegur rekinn með tapi og það hefur íslensk þjóð ekki efni á.
Ég endurtek hver af þeim sem mótmæla atvinnuuppbyggingu úti á landi hefur nokkra samúð með fólkinu og samfélugunum þar ?? Mjög fáir !!! Ef svo þá ætti fólk að benda á aðrar lausnir í atvinnu uppbyggingu á landsbyggðinni.
Gísli Gíslason, 19.7.2008 kl. 13:03
.....þúsund þorskar á færibandi þokast nær!!!
Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.