Berlusconi miðlar og Baugsmiðlar takmarka gagnrýna umfjöllun !

Það er ekki bara á Íslandi sem maður setur spurningarmerki við trúverðugleika fjölmiðla.  Baugsmiðlar keppast við að segja neikvæðar fréttir  af Björgólfsfeðgum og Landsbankanum og Mogginn af Baugs samstæðunni.  Á Ítalíu er lítið fjallað um Berlusconi með gagnrýnum hætti enda  á hann stóran hluta af fjölmiðlum.

Nú segir Morgunblaðið Ólaf Stephensen upp störfum vegna þess að hans skoðanir og ritstjórnarstefna fara ekki saman stefnu eigenda.   Óttast því að ný ritstjórn Morgunblaðsins verði ekki með gagnrýna hugsun í leit að sannleikans fyrir þegna þessa lands heldur verði ritstjórnarstefnan fyrst og fremst að gleðja helstu hluthafa Morgunblaðsins.

A.m.k.  það er grafalvarlegt ástand í einu landi þegar fólk hefur efasemdir um að réttar fréttir birtist óritskoðaðar og að fjölmiðlar séu að hygla eigendum sínum í fréttaflutningi.  Þar situr því miður bæði Mogginn, Baugsmiðlarnir undir sama hatti og ég er sammála Davíð að það er leiðinlega mikil vinstri slagsíða á rúv.

Alltaf situr maður uppi með þá niðurstöðu að mesta óhæfuverk gegn lýðræðinu á Íslandi var þegar forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson neitaði að undirrita fjölmiðlalögin.

 


mbl.is Vændiskona segir frá í sjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þú sérð ekki aðalatriðið í þessu

AF HVERJU ER JÓN ÁSGEIR EKKI FORSÆTISRÁÐHERRA????

Þessa svívirðu þarf að leiðrétta

KOSNINGAR      NÚNA

Ólafur Ingi Hrólfsson, 26.9.2009 kl. 14:59

2 Smámynd: Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

Sami grautur í sömu skálinni. Politík og spilling...

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir, 27.9.2009 kl. 08:41

3 Smámynd: Heimir Hilmarsson

Jón Ásgeir þarf ekki að vera forsætisráðherra, hann á forsætisráðherra.

Hann þarf ekki heldur að segja fréttir, hann á fréttamenn.

Heimir Hilmarsson, 1.10.2009 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 184192

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband