Frá 2007: Ísland er óþægilega skuldsett erlendis

"Hitt er einnig til að ný orð fái nánast á sig goðsagnakennda helgimynd, eins og orðið útrás sem enginn þorir að vera á móti svo hann verði ekki sakaður um að vera úr takti, hafi ekki framtíðarsýn eins og það heitir nú, og þekki ekki sinn vitjunartíma. Hin hliðin á útrásinni er þó sú og framhjá henni verður ekki horft, að Ísland er að verða óþægilega skuldsett erlendis. Útrásarorðið er slíkt töframerki að jafnvel þegar menn virðast gera innrás í opinber fyrirtæki almennings, þá er innrásin kölluð útrás."

Davíð Oddsson, þáverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands á morgunfundi Viðskiptaráðs 6. nóvember 2007


Vilji barnanna eða hafa börnin orðið fyrir PAS heilaþvotti?

Ég þekki ekkert til þessa máls, vildi segja eftirfarandi um svona mál.

Það er alþekkt í forsjármálum að það foreldri sem barnið/börnin búa hjá hefur áhrif á þau þannig að þau fara jafnvel að hafna hinu foreldrinu án sjáanlegrar ástæðu.  Þetta kallast á engilsaksnesku  "Parental alienation syndrome" , einng nefnt PAS.  Um þetta hefur ekki verið mikið skrifað hér á landi en má þó finna ágætar greinar eins og þessa hér.   Einnig má lesa um PAS hér og hér.   Skilnaður er alltaf harmsaga og börnin eru saklaus fórnarlömb skilnaðar.  Lykilatriði í velferð skilnaðarbarna er að tryggja að ástríkt samband barna við báða foreldra viðhaldist.   Það kemur ekki fram í fréttinni hvort  það hafi verið athugað hvort börnin hafa orðið fyrir PAS heilaþvotti.


mbl.is Tekið tillit til vilja barnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berlusconi miðlar og Baugsmiðlar takmarka gagnrýna umfjöllun !

Það er ekki bara á Íslandi sem maður setur spurningarmerki við trúverðugleika fjölmiðla.  Baugsmiðlar keppast við að segja neikvæðar fréttir  af Björgólfsfeðgum og Landsbankanum og Mogginn af Baugs samstæðunni.  Á Ítalíu er lítið fjallað um Berlusconi með gagnrýnum hætti enda  á hann stóran hluta af fjölmiðlum.

Nú segir Morgunblaðið Ólaf Stephensen upp störfum vegna þess að hans skoðanir og ritstjórnarstefna fara ekki saman stefnu eigenda.   Óttast því að ný ritstjórn Morgunblaðsins verði ekki með gagnrýna hugsun í leit að sannleikans fyrir þegna þessa lands heldur verði ritstjórnarstefnan fyrst og fremst að gleðja helstu hluthafa Morgunblaðsins.

A.m.k.  það er grafalvarlegt ástand í einu landi þegar fólk hefur efasemdir um að réttar fréttir birtist óritskoðaðar og að fjölmiðlar séu að hygla eigendum sínum í fréttaflutningi.  Þar situr því miður bæði Mogginn, Baugsmiðlarnir undir sama hatti og ég er sammála Davíð að það er leiðinlega mikil vinstri slagsíða á rúv.

Alltaf situr maður uppi með þá niðurstöðu að mesta óhæfuverk gegn lýðræðinu á Íslandi var þegar forsetinn, Ólafur Ragnar Grímsson neitaði að undirrita fjölmiðlalögin.

 


mbl.is Vændiskona segir frá í sjónvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norrænt velferðarkerfi !

Það er óeðlilegt að það sé ekki hvati fyrir fólk að fara út á vinnumarkaðinn, en þetta hefur verið vandamál á norðurlöndunum í áratugi.  Ríkisstjórnin hefur talað fjálglega að hér eigi að koma á norrænu velferðarkerfi.  Þetta ástand hlýtur að vera vitnisburður um það að þeim sé að takast ætlunarverk sitt.  


mbl.is Betra að vera á bótum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davy´s on the road again.

Einhvern tímann á unglingsárunum var vinsæl hljómsveit sem hét Mannfred's Manns Earth band.  Hún söng vinsælt lag sem hét Davy's on the road again.  Veit ekki af hverju en það lag kom upp í huga minn þegar ég heyrði þessa frétt.  Lagið var ágætt og er hægt að hlusta á youtube. sjá, http://www.youtube.com/watch?v=sr1Kfb2ozfg  Tíminn einn mun hinsvegar leiða í ljós hvort þessi ráðstöfun Árvakurs sé farsæl.  


mbl.is Davíð: Mun nýta reynslu úr fyrri störfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð grein um stóriðjumál og VG í Morgunblaðinu í dag.

Árni Þormóðsson skrifar einlæga og beitta grein í Morgunblaðið í dag.  Ég man eftir Árna heima á Norðfirði en hann var virkur í Alþýðubandalaginu í Neskaupstað.   Í niðurlagi greinarinnar segir hann:

"Vinstri græn framkvæma nú í ríkisstjórninni stefnu flokksins, sem er í raun að viðhalda þeirri kreppu og atvinnuleysi, sem varð eftir bankahrunið, enn lengur en ella. Lykilorð stefnu þeirra, fyrir síðustu alþingiskosningar, sem var „stóriðjustopp“, er því að komast í framkvæmd. Framganga VG í því að hindra nýtingu íslenskra náttúruauðlinda til hagsbóta fyrir þjóðina í heild er öllum sem vilja endurreisn og framþróun íslensks atvinnu- og efnahagslífs áhyggjuefni. Það að stjórnmálaflokkur, sem að verulegu leyti snýst um slíka afturhaldssemi, hafi veruleg áhrif í ríkisstjórn hjá jafn upplýstri þjóð og Íslendingar eru er mjög undarlegt. Náttúruvernd er hjá VG orðin að öfgatrúarbrögðum sem vilja hindra alla skynsamlega nýtingu náttúrunnar."

Þeir sem fóru fyrir Alþýðubandalaginu í Neskaupstað (ABN) á síðustu öld og VG í dag eru bæði vinstra meginn í hinu pólitíska litrófi. Það er samt skýr munur á ABN og VG á margvíslegan hátt.  Helsta stefna ABN var að allir hefðu atvinnu, þar sem vart væri til verra þjóðaböl en atvinnuleysi.  VG lítur þetta öðrum augum.  Það er ekki hægt að virkja og búa til störf, heldur er "stóriðjustopp" og eitthvað annað á að koma í staðinn, kannski, einhverntímann.   Á sama tíma á að skattleggja meira og skera niður útgjöld osfrv, en það gleymist að búa til ný störf, ný fyrirtæki sem skila auknum tekjum og  minnka útgjöld vegna atvinnuleysis.

Sú andstaða sem hefur risið á okkar landi gegn atvinnuuppbyggingu á sér ekki fordæmi.  Nú kveinka Húsvíkingar sér undan VG vegna þess að auðvitað vill VG hvorki nýta hina umhverfisvænu orku sem er í námunda við Húsavík og auðvitað vill VG ekki sjá að fleir álver rísi hér á landi.  Störf í álverum er fyrir neðan virðingu VG.  Það er bara eitthvað annað sem á að koma í staðinn.  Húsvíkingar og aðrir í Norð Austur kjördæmi sem nú eru ósáttir við VG verða þó að gera sér grein fyrir því að þau kusu þetta yfir sig, enda er Steingrímur J. Sigfússon þeirra fyrsti þingmaður.

Stóriðjustopp er álíka fjöldaklikkun eins og þegar umheimurinn ætlaði að bjarga síðasta hvalnum í sjónum og vildi banna hvalveiðar um aldur og ævi.  Í báðum tilvikum eru órökréttar tilfinningar sem bera skynsemina ofurliði.


BESTU LÁNIN ERU ENGIN LÁN.

Fyrir hrun þá kepptust bankarnir við að lána fólki sem endurfjármagnaði húsnæðilánin sín, minnkuðu greiðslubyrgðina, gjarnan með því að taka 40 ára bankalán í stað 25 ára húsnæðisstjórnarláns og annarra skammtíma lána.  Fólk hugsaði fyrst og fremst um að lágmarka greiðslubyrgði dagsins en ekki hversu hratt eða hvort það yfirhöfuð væri að eignast eitthvað í sínu húsnæði.  Þegar svo skuldir margfölduðust við hrun, þá  lenntu margir í greiðsluerfiðleikum.

Kannski er þörf á að Íslendingar hugsi hlutina aftur uppá nýtt.   Kannski eru hin gömla hagfræði ömmu og afa klassísk að "engin lán eru bestu lánin".  Kannski þarf þjóðin að læra uppá nýtt að neita sér um ýmisleg og vera ekkert að kaupa neitt nema eiga fyrir hlutunum.  Það hlýtur að vera ömurlegt hlutskipti að vera vaxtaþræll bankanna, sem er því miður veruleiki margra í dag.  Klara Vemundsdóttir hefur átt ánægjulegt líf enda sneið hún sér alla ævi fjárhagslega  stakk eftir vexti.  Það er til eftirbreytni.


mbl.is Ég átti hamingjusamt líf og skuldaði aldrei
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigerðar handónýtar lausnir vinstri flokkanna.

Það eru gömul sannandi og ný að auknar álögur skila ekkert endilega meiri tekjum í ríkiskassann, þvert á móti letur slíkt og minnkar framleiðni og verðmætasköpun í landinu.  Á þessu tapar þjóðin þegar til lengdar lætur.   Auknar álögur eru settar  á undir því yfirskyni að hér eigi að koma á  "norrænu velferðarkerfi"!!.  Ekki veit ég hvað átt er við, nema að þetta hugtak er notað sem réttlæting fyrir auknum skattaálögum á almenning.    Velferðarkerfið á Norðurlöndum er mjög mismunandi eftir löndum og varla eðlilegt að setja öll Norðurlöndin undir sama hatt.  En fínt orðskrípi "norrænt velferðarkerfi" notar ríkisstjórnin  til að réttlæta auknar álögur á skattgreiðendur.

Lausnin á kreppunni er að búa til fleiri störf og útrýma þessu 10% atvinnuleysi þannig að atvinnulaust fólk fái  atvinnu og þeir og ný fyrirtæki greiði líka skatta  í stað þess að skattleggja meira þá sem eru á vinnumarkaði og greiða 10% af vinnuaflinu atvinnuleysisbætur.  Vinstri flokkanrnir misnota hugtakið "umhverfisvernd" út í eitt og  hafna flest allri raunhæfri atvinnuuppbyggingu. 

Því miður er ekkert sem bendir til að þessir ríkisstjórnarflokkar séu að leiða þjóðina út úr vandræðunum.  Sömuleiðis þá virðast stjórnarandstaðan heldur ekki koma fram með augljósar  lausnir. 

Það má færa sterk rök fyrir því að á Íslandi sé skortur á leiðtoga.  Slíkur leiðtogi þyrfti að sameina þjóðina um leið að lausn vandamálsins.  Á meðan vandamálið er illa skilgreint þá verður leiðin að lausninni aldrei bein og greið.


mbl.is Miklar skattahækkanir í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott samfélag á Álftanesi !

Því miður hafa verið of  mikil átök í bæjarstjórn á Álftanesi.  Ég hef áður bent á að ýmislegt í framferði Á listans var slæmt og stend við það, enda er ég handviss að sagan mun ekki fara vel með ýmsar gjörðir Á listans.  Hvað sem því líður þá er mikilvægasta verkefnið núna að horfa fram á veginn og sýna ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins.   Vonandi lægja ófriðaöldur í bæjarstjórn og allir leggjast á árarnar að róa Álftanes skútunni í höfn, fjárhagslega friðarhöfn.

Meginmálið er það að hér er gott samfélag og gott að búa.   Hér er lítið og friðsælt samfélag sem er hluti af höfuðborgarsvæðinu.  Það eru forréttindi að búa í slíku samfélagi. 


mbl.is Allir á móti öllum í stjórn Álftaness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið og bloggarar.

Í gær er fjallað um nafnlaus níðskrif í Fréttablaðinu.  Af umfjöllun blaðsins virðast bloggarar vera settir undir sama hatt og fjallað um þá sem háflgert fyrirbæri.   Í mínum huga er blogg eitt, þar sem menn skrifa sín hugðarefni eða gera athugasemdir við fréttir með bloggi. Hitt er allt annað mál þegar heigulsháttur fólks nær þeim hæðum að senda ónafngreint níð á netið.  Í mínum huga er þetta tvö aðskilin efni, þó nafnlaust níð geti ratað inná athugasemdir í bloggi sem og á spjallsíður.

Nú þegar bloggheimar hafa logað í umfjöllun og vanþakklæti á Forseta Íslands og þá mótsögn sem felst í hans verkum þegar hann annarsvegar neitaði undirritun fjölmiðlalaga og hinsvegar undirritun Icesave laga þá býst ég  við að það henti nú Fréttablaðinu að fjalla um bloggara og tengja það við nafnlaust níð á netinu og fjalla um þá sem hálfgert fyrirbæri.   Slíkt dreifir athyglinni frá mósagnarkenndum embættifærslum Forsetans.  Væri ekki nær hjá 365 að fjalla um mótsagnakendar embættisfærslur Forsetans?

Þegar Forsetinn neitaði að undirrita fjölmiðlalögin og þegar hann undirritaði Icesave lögin þá er hann í bæði skiptin að þjónusta vinstri flokkana en að auki meðvirkur með yfirgangi Baugsveldisins þegar hann neitaði undirskrift fjölmiðlalaganna.  Nú þegar bloggheimar loguðu af vanþóknun út í Forsetanum þá var það almennt ekkert nafnlaust níð, heldur endurspeglun á vanþóknun í samfélaginu. 

Menn skammast sín ekkert fyrir það að eiga sér þann draum og von að Íslendingar eignist aftur Forseta sem verður sameingartákn þjóðarinnar.  Bloggarar skrifa undir nafni en raggeitur skrifa nafnlaust á netið.   Meðvirkni 365 miðla, Baugsmiðlanna með Forsetanum grefur undan trúverðugleika þeirra.  Sömuleiðis þá grefur meðvirkni Forsetans með vinstri flokkunum og vinum sínum í Baugi undan Forsetaembættinu.


Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Sept. 2009
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 187337

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband