Dæmigerðar handónýtar lausnir vinstri flokkanna.

Það eru gömul sannandi og ný að auknar álögur skila ekkert endilega meiri tekjum í ríkiskassann, þvert á móti letur slíkt og minnkar framleiðni og verðmætasköpun í landinu.  Á þessu tapar þjóðin þegar til lengdar lætur.   Auknar álögur eru settar  á undir því yfirskyni að hér eigi að koma á  "norrænu velferðarkerfi"!!.  Ekki veit ég hvað átt er við, nema að þetta hugtak er notað sem réttlæting fyrir auknum skattaálögum á almenning.    Velferðarkerfið á Norðurlöndum er mjög mismunandi eftir löndum og varla eðlilegt að setja öll Norðurlöndin undir sama hatt.  En fínt orðskrípi "norrænt velferðarkerfi" notar ríkisstjórnin  til að réttlæta auknar álögur á skattgreiðendur.

Lausnin á kreppunni er að búa til fleiri störf og útrýma þessu 10% atvinnuleysi þannig að atvinnulaust fólk fái  atvinnu og þeir og ný fyrirtæki greiði líka skatta  í stað þess að skattleggja meira þá sem eru á vinnumarkaði og greiða 10% af vinnuaflinu atvinnuleysisbætur.  Vinstri flokkanrnir misnota hugtakið "umhverfisvernd" út í eitt og  hafna flest allri raunhæfri atvinnuuppbyggingu. 

Því miður er ekkert sem bendir til að þessir ríkisstjórnarflokkar séu að leiða þjóðina út úr vandræðunum.  Sömuleiðis þá virðast stjórnarandstaðan heldur ekki koma fram með augljósar  lausnir. 

Það má færa sterk rök fyrir því að á Íslandi sé skortur á leiðtoga.  Slíkur leiðtogi þyrfti að sameina þjóðina um leið að lausn vandamálsins.  Á meðan vandamálið er illa skilgreint þá verður leiðin að lausninni aldrei bein og greið.


mbl.is Miklar skattahækkanir í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott samfélag á Álftanesi !

Því miður hafa verið of  mikil átök í bæjarstjórn á Álftanesi.  Ég hef áður bent á að ýmislegt í framferði Á listans var slæmt og stend við það, enda er ég handviss að sagan mun ekki fara vel með ýmsar gjörðir Á listans.  Hvað sem því líður þá er mikilvægasta verkefnið núna að horfa fram á veginn og sýna ábyrgð í rekstri sveitarfélagsins.   Vonandi lægja ófriðaöldur í bæjarstjórn og allir leggjast á árarnar að róa Álftanes skútunni í höfn, fjárhagslega friðarhöfn.

Meginmálið er það að hér er gott samfélag og gott að búa.   Hér er lítið og friðsælt samfélag sem er hluti af höfuðborgarsvæðinu.  Það eru forréttindi að búa í slíku samfélagi. 


mbl.is Allir á móti öllum í stjórn Álftaness
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttablaðið og bloggarar.

Í gær er fjallað um nafnlaus níðskrif í Fréttablaðinu.  Af umfjöllun blaðsins virðast bloggarar vera settir undir sama hatt og fjallað um þá sem háflgert fyrirbæri.   Í mínum huga er blogg eitt, þar sem menn skrifa sín hugðarefni eða gera athugasemdir við fréttir með bloggi. Hitt er allt annað mál þegar heigulsháttur fólks nær þeim hæðum að senda ónafngreint níð á netið.  Í mínum huga er þetta tvö aðskilin efni, þó nafnlaust níð geti ratað inná athugasemdir í bloggi sem og á spjallsíður.

Nú þegar bloggheimar hafa logað í umfjöllun og vanþakklæti á Forseta Íslands og þá mótsögn sem felst í hans verkum þegar hann annarsvegar neitaði undirritun fjölmiðlalaga og hinsvegar undirritun Icesave laga þá býst ég  við að það henti nú Fréttablaðinu að fjalla um bloggara og tengja það við nafnlaust níð á netinu og fjalla um þá sem hálfgert fyrirbæri.   Slíkt dreifir athyglinni frá mósagnarkenndum embættifærslum Forsetans.  Væri ekki nær hjá 365 að fjalla um mótsagnakendar embættisfærslur Forsetans?

Þegar Forsetinn neitaði að undirrita fjölmiðlalögin og þegar hann undirritaði Icesave lögin þá er hann í bæði skiptin að þjónusta vinstri flokkana en að auki meðvirkur með yfirgangi Baugsveldisins þegar hann neitaði undirskrift fjölmiðlalaganna.  Nú þegar bloggheimar loguðu af vanþóknun út í Forsetanum þá var það almennt ekkert nafnlaust níð, heldur endurspeglun á vanþóknun í samfélaginu. 

Menn skammast sín ekkert fyrir það að eiga sér þann draum og von að Íslendingar eignist aftur Forseta sem verður sameingartákn þjóðarinnar.  Bloggarar skrifa undir nafni en raggeitur skrifa nafnlaust á netið.   Meðvirkni 365 miðla, Baugsmiðlanna með Forsetanum grefur undan trúverðugleika þeirra.  Sömuleiðis þá grefur meðvirkni Forsetans með vinstri flokkunum og vinum sínum í Baugi undan Forsetaembættinu.


FORSETINN OG FJÖLMIÐLARNIR !

Fjölmiðlafrumvarpið.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að Forseti vor neitaði að undirrita svokölluð fjölmiðlalögin um árið.   Rökin voru þau að það væri gjá á milli þjóðar og þings. Seinna hafa verið færð sannfærandi rök fyrir því að hann hafi fyrst og fremst verið að ganga erinda Baugsmiðla og koma höggi á Davíð Oddsson.  Umræða um fjölmiðlalögin var endalaus í fjölmiðlum á sínum tíma sem náðu að keyra upp mikla múgsefjun gegn frumvarpinu.  Forsetanum tókst ágætlega að verja Baugsmiðlana og koma við þetta höggi á Davíð.    Forsetinn var svo meðvirkur með útrásarvíkingunum sem skuldsettu þjóðina og nú á almenningar að borga brúsann.

Icesave frumvarpið.

Alþingi Íslands gekk nú frá lögum sem tryggir ríkisábyrgð á innistæðum á Icesave reikningum Landsbankans í Englandi og Hollandi.  Það er ljóst að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er á móti þessu frumvarpi og það er gjá milli þings og þjóðar, trúlega mun dýpri gjá en var í fjölmiðlafrumvarpinu.  Samt skrifar forsetinn undir Icesave lögin og er ekki samkvæmur sjálfum sér m.v. fyrri gjörðir í fjölmiðlafrumvarpinu.

 Umfjöllun fjölmiðla.

Hvernig fjalla fjölmiðlar um þetta mál annarsvegar samanborið við fjölmiðlafrumvarpið hér um árið.  Um árið var endalaus umræða um fjölmiðlafrumvarpið og yfirleitt fyrsta frétt mjög lengi.   Í dag birtist á mbl.is og visir.is fréttir um undirritun Forsetans, en ….

 

Höfuðvígi Baugsmiðlanna, Stöð 2., sá ekki ástæðu til að fjalla neitt um þessa undirritun á Icesave ábyrgð í kvöldfréttum í kvöld !  

 

RÚV sá sömuleiðis enga ástæðu til að fjalla um þetta í kvöldfréttum sjónvarpsins og heldur ekki í fréttum kl. 22.00.    Þessi umdeildasta undirskrift Forseta Íslands á fær enga umfjöllun í sjónvarpinu í kvöld.  Af hverju er umdeild undirritun Forsetans á einu umdeildasta máli lýðveldistímans ekki fréttamatur sjónvarpsstöðvanna ?  Eru fjölmiðlar að launa Forsetanum það að hafa ekki undirritað fjölmiðlalögin um árið ? 

 

Til upplýsinga þá er hér yfirlit yfir kvöldfréttir Stöð 2 og Rúv.

 

Fréttatími Stöðvar 2. sept 2009 kl. 18.30

Ø      Fengu greitt fyrir að sitja fundi með Landsvirkjun Ø      Þegja þunnu hljóðu um málefni styrktarsjóðs Ø      HS orka reyna að semja við lánadrottna Ø      59 tilfelli mansals á 3 árum  Ø      Kúabóndi á Suðurlandi uggandi um stöðu landbúnaðarins Ø      Íslandi best borgið með upptöku evru Ø      Minnst 35 fórust í jarpskjálfta í Indónesíu  Ø      Icelandair skoðar minni þotur Ø      Þýðingarvilla í Evróputilskipun  Ø      Biðlaði um samvinnu í baráttunni gegn loftlagsbreytingum  Ø      Nýja bogabrúin yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi vígð á morgun 

 

Svipað var uppá teningnum á Rúv kl. 19.00 en eftirfarandi fréttir voru: Ø      Skýrsla OECD um íslenskt efnahagslífØ      Bíða þess að íslensk stjórnvöld hafi sambandØ      Afkoma gæti versnað um milljarðØ      Mikil eyðilegging í skógareldum í KaliforníuØ      Fleiri afbrot Fáfnismanna í vændum?Ø      FátæktØ      Lestarferð til minningar um björgun gyðingabarnaØ      Lauðlenti á KjalarnesiØ      Mansal líka á ÍslandiØ      Vegafé margfaldastØ      Stórfyrirtækin til hjálparØ      Jarðskjálfti á IndónesíuØ      Hnífi beitt á BifröstØ      Danir senda hælisleitendur úr landiØ      Kiddi vídeófluga: viðskiptin feikna góðØ      Íþróttir 

ER FURÐA ÞÓ FÓLK BERI EKKI TRAUST TIL FJÖLMIÐLA  

 ÞJÓÐINN ÞARF FORSETA SEM ER SAMEININGARTÁKN Á ÞESSUM ERFIÐU TÍMUM.  Ólafur Ragnar Grímsson uppfyllir ekki þau skilyrði.

Var ríkari ástæða að hafna undirskrift fjömiðlalaganna?

Það er furðulegt að Forsetinn hafi talið fjölmiðlalögin svo þung á metum að ekki væri stætt að undirrita en þessi lög undirritar hann.  Núna er örugglega meiri gjá á milli þjóðar og þings.  Það er deginum ljósara að þegar hann neitaði að undirrita fjölmiðlalögin, þá var þjónusta við ákveðna auðmenn og fjölmiðla en þjóðarhagsmunir viku.    Fróðlegt verður að sjá hvernig fjölmiðlarnir sem hann var að þjóna um árið munu meðhöndla þetta mál.

Íslensk þjóð þarf nýjan forseta. Timi Ólafs Ragnars er liðinn sem forseti.


mbl.is Forsetinn staðfestir Icesave-lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stokkhólmsheilkenni og PAS.

Stefán Friðrik Stefánsson fjallar um Stokkhólmsheilkenni á sínu bloggi en hann segir þar:

"Fyrir þá sem ekki vita á nafngiftin fyrirmynd sína í bankaráninu í Kreditbanken í Stokkhólmi í ágúst 1973. Þar héldu bankaræningjar fjölda fólks sem gíslum sínum í fimm daga. Að bankaráninu loknu snerust gíslarnir til varnar fyrir þá sem héldu þeim föngnum og höfðu gjörsamlega verið heilaþvegnir. Alla tíð síðan hefur nafngiftin yfir tilfelli af þessum toga verið kennd við ránið athyglisverða í Stokkhólmi. " 

Mjög sambærileg heilkenni eru P.A.S, Parental Alienation Syndrome og  eru margfalt algengari.  Það gerist í skilnaði hjá fólki og börn fara án ástæðu að tafa afstöðu gegn því foreldri sem það býr ekki hjá að jafnaði.  Þetta gerist vegna þess að það foreldri sem barnið býr hjá heilaþvær það. Um þett má lesa á: http://psychcentral.com/blog/archives/2008/02/13/what-is-parental-alienation-syndrome-pas/ og  http://en.wikipedia.org/wiki/Parental_alienation_syndrome

 

 


mbl.is Ber sterkar tilfinningar til Garrido
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirritar Forseti Íslands Icesave lögin??

Þegar Forseti Íslands var að þjónusta Baug með því að neita að undirrita svokölluð fjölmiðlalög þá sagði hann eitthvað á þá leið að það væri gjá á milli þings og þjóðar. 

Ef einhverntímann er gjá á milli þings og þjóðar þá er það núna.  Hann ætti því að neita að undirrita þessi lög og senda í þjóðaratkvæði. 

 


mbl.is Sömdum við ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaninn samur við sig!

Væri ekki nær að innheimta meðlagsskuldina hjá manninum frekar en að setja hann í fangelsi.  Í fangelsinu eignast hann a.m.k ekki pening til að greiða skuldina.

Á Íslandi eru 12000 meðlagsgreiðendur og af þeim eru um 6000 í vanskilum og 4000 í alvarlegum vanskilum við Innheimtustofnun.  Það yrði nóg að gera í fangelsunum ef við ætluðum að nota Bandarísku leiðina og setja alla 4000 í fangelsi !


mbl.is Handtökuskipun gefin út á hendur Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allur kjánaskapur þessa fólks kemst í fréttirnar.

Svona öfga samtök hafa það eitt að markmiði að gera einhvern óskunda og komast þannig í fréttirnar en þau virðist halda að slíkt gagnist málstað þeirra.   Það er deginum ljósara að þetta fólk gerir sönnum náttúruverndarsinnum ekkert gagn með kjánalegu framferði sínu.   Það væri nær að þetta fólk myndi skoða þá staðreynd að hér á landi eru 16000 manns (sextán þúsund) án atvinnu.  Nú skiptir máli að búa til ný störf.  Ný störf við virkjanir,  iðnaður af ýmsum gerðum og stærðum þ.m.t álver, ferðaþjónusta og aðra starfsemi þurfum við á að halda til að búa til ný störf og vinna landið út úr kreppunni.  Framferði Saving Iceland er eins og oft áður þeim til skammar.

 


mbl.is Hættu mótmælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 186883

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband