Gísli Veigar 9 ára.

Gísli Veigar er 9 ára í dag.   Til hamingju elsku drengurinn minn.

Knús frá Pabba og Bergrós 

sumar kanada og jol  2006 002


Smá mont !

Eyleif dóttir mín hefur æft fótbolta með Leikni undir styrkri stjórn Sævars, sem heldur vel utan um skemmtilegan hóp af stúlkum.  Nú á uppskeruhátíð  Leiknis eftir sumarið fékk stúlkan mín viðurkenningu fyrir mestu framfarir síðasta sumar.   Til hamingju snúllan mín.   Á vef 5 flokks Leiknis stendur.

"Mestar Framfarir:
Eyleif Ósk Gísladóttir
- Var svolítið lokuð á fyrstu æfingunum og vildi stundum ekki prófa nýja hluti. Vildi stundum hætta ef eitthvað gekk ekki alveg upp. En svo fór hún að þora að prufa og reyna nýja hluti og þá fóru hlutirnir að gerast. Flott mætingasókn, eftirtekt á æfingum og vilji til að læra stórbætti hana. Glæsilegt alveg."

Læt svo fylgja með tvær myndir, önnur af Gísla Veigari  og  Eyleif Ósk og hin af Leiknsstelpunum og er Eyleif til hægri í neðri röð

 IMG 2230Leiknisstelpur

 


Þörf og mikilvæg stund.

Það er mikilvægt að samfélagið  fjalli meir um sjálfsvíg.  Ég hef lengi ætlað að blogga um þetta og fór fyrir nokkru að skoða þessi mál af vef Hagstofunnar.  

Á árunum 1986-2005 falla 648 Íslendingar fyrir eigin hendi.   Af þessum 648 einstaklingum eru 502 karlar eða 77%.  Oft eru það ungir karlmenn. Borið saman við ýmsar aðrar dánarorsakir þá er þetta mjög há tala. Sjá töflu hér að neðan.

Hjá konum er virkt forvarnarstarf fyrir leit að  bæði brjósta og leghálskrabbameini.   Úr þessum tveimur sjúkdómum létust 1248 konur á árunum 1986-2005.

Á árunum 1986-2005 látast 1356 karlar vegna krabba í blöðruhálskirtli og sjálfsvíga (854+502).  Það er ekki eins skipulögð leit að blöðruhálskirtlakrabbameini fyrir karla eins  og er hjá konum við brjósta og leghálskrabbameini.   Það er lítið fjallað um sjálfsvíg, en 77 % af sjálfvígum eru karlmenn og oft ungir karlmenn jafnvel unglingar. 

Það er full þörf á að karlar gangi jafn skipulega til krabbameins leitar í blöðruhálskirtli, eins og konur gera við brjósta og leghálskrabbameini. 

En það er ekki síður þörf  á að samfélagið geri átak og rjúfi þögnin sem allt um lykur sjálfsvíg.  Fræðsla um sjálfsvíg þarf að komast í grunnskóla og það þarf stórátak í þeim efnum. Ekki síður þurfa allir landsmenn að vita hvert eigi að leita þegar þungi tilverunnar er að buga menn.  Tugir manna falla á  hverju ári fyrir  eigin hendi. Það er alltof há tala.  Vonandi verður minningarstunding í Hallgrímskirkju upphafið að einhverju meiru í þeim efnum og upphafið að virkari  forvarnarstarfi.

 

Tafla:  Íslendingar látnir eftir ýmsum orsökum á árabilinu 1986 til 2005

Sjálfsvíg648
Eyðni26
Illkynja æxli í leghálsi, legi og  eggjastokki493
Brjóstakrabbamein755
Blöðruhálskirtill854
Lagnvarandi alkóhólismi50
Flutningaóhöpp.662
Heimild. www.hagstofa.is


mbl.is Fórnarlamba sjálfsvíga minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgáfutónleikar !!!

Dúkkulísur og Guðmundur R.

Hvenær: Fimmtudaginn 11. október kl. 20:30

Hvar: Skemmtistaðurinn Organ í Hafnarstræti Reykjavík

Miðaverð: 1000 kr.

Nýir geisladiskar Dúkkulísa og Guðmundar til sölu á staðnum gegn vægu gjaldi.

 

Vigo og Lincoln

Á morgun legg ég í ann heim frá Lincoln eftir að hafa verið á Sjávarútvegssýningunni í Vigó á Spáni og svo búinn að vera í höfuðstöðvum Eagle Seafoods, sem eru hér í Englandi. Mjög áhguaverð ferð.

Það er gaman að koma til Vigo.  Hér rekst maður meir á ómengað Spánskt umhverfi, öfugt við hefðbundna túrista sólarströnd Spánar við Miðjarðarhaf, þar sem maður hefur á tilfinningunni að  ferðamennskan hefi yfirtekið samfélagið.   Vigo er í Galiseu sem er fylki eða hérað fyrir  norðan Portúgölsku landamærin.  Íbúar eru gallar, eins og þeir í Ástríks bókunum. Ef maður skoðar kortið hér að neðan hægra meginn, þá er það nánast eins og í Ástríks bók, þ.e. , nes út við sjó og þar býr einstakt fólk.  Íbúar Galíseu eru skyldir Skotum og eru af keltneskum uppruna.  Þannig eiga Galiseu menn sekkjarpípu eins og skotar, þó öðruvísi sé.  Einnig heitir fótboltaliðið Celta Vigo og Celta er Celtic eða Kelti.  Galiseu menn og Skotar eru stoltir af uppruna sínum og halda í sínar hefðir, þannig eru báðir líkir Gaulverjunum í Ástríksbókunum!!!!   Mér fannst fólkið í Vigo bæði fallegt og vinalegt og ekki spillir að þarna er fínt veðurfar.  Landslagið í Vigo er vogskorin strönd og fjöll og landið allt tilkomumikið.

vigo brúinGalisia

Vigo er stór sjávarútvegshöfn og þar er landað mikið af ferskum afla. Þannig veiða Spánverjar mikinn afla sjálfir en flytja einnig mikið inn af afla. Spánn og Portúgal hafa verið áratuguvigo inngangurm saman mikilvægir markaðir fyrir íslenskann fisk.    Saltfiskmarkaðir við miðjarðarhaf urðu til snemma á síðustu öld. Sameiginlegt með þeim löndum sem kaupa mest saltfisk (Spánn, Portúgal og Ítalía) er að þetta eru kaþólsk lönd.  Saltfiskurinn var mikið borðaður á föstutímabilinum, þegar kaþólikkar neyta ekki kjöts. Eitt sinn varð til orðatiltækið  á Íslandi "lífið er saltfiskur" en það varð til á millistríðsárunum þegar nánast allur afli á Íslandi var saltaður, enda var það fyrst eftir seinni heimstyrjöld sem hraðfrysting ruddi sér til rúms.   Matur á Spáni er aldeilis frábær en nútíminn setur sitt mark þar eins og annarsstaðar í hinni vestrænu menningu.  Skyndibitinn og snakk er vaxandi neysluvara unga fólksins.

Eftir Vigo var farið til  Lincoln.  Það er gott að koma til Lincoln, þar sem ég bjó í 3 ár og ekki sakar að vera á frábæru heimili hjá Höska og Úllu.  Lincooln vex og það eru nýjar byggingar sem rísa enda er borgin miðstöð þjónustu fyrir svæðið, með bæði háskóla og sjúkrahús.   Dómkirkjan í Lincoln setur alltaf svip sinn á borgina en lincoln cathedralhún er nánast 1000 ára gömul.  Þorlákur helgi Þórhallsson, sá er Þorlákshöfn og Þorláksmessa er kennd við nam hér í Lincoln á árunum 1157  til 1159, en þá var kirkjan langt kominn í byggingu.    Eftir að hann varð biskup í Skálholti þá fór hann til Þrándheims til biskupsvígslu enda heyrði íslenskan kirkjan undir  biskupinn í Niðarósi (Þrándheimi).  Dómkirkjan í Þrándheimi er  nauðalík kirkjunni  í Lincoln, enda var víst samgangur á milli staðanna á þeim árum og eitthvað af súlum og annað eins í þessum byggingum eins !  Um miðja síðustu öld var hér mikill stáliðnaður, sem er að mestu horfinn.  Þannig var fyrsti skriðdrekinn í fyrri heimmstrjöldinni smíðaður í Lincoln og hér voru framleiddar bátavélar er hétu Ruston og voru í ýmsum síðustogurum og bátum sem smíðaðir voru um miðja síðustu öld.  Tímans tönn breytir flestu.  Nóg um það.

Það verður gott að koma heim til Bergrósar og hitta svo börnin fljótlega.  Norðmenn eiga orðatiltæki "borte bra, hjemme  best" og eru það orð að sönnu.


Saga heimstyrjaldarinnar skrifuð af þeim sem unnu stríðið.

Það er staðreynd að saga heimsstyrjaldarinnar er skrifuð af þeim sem unnu stríðið.   Miðað við sögubækur og bíómyndir gerðar um stríðið, þá er eins og allt slæmt hafi þjóðverjar gert og bandamenn ekki gert neitt slæmt.    Söguleg túlkun fræðimanna á heimstyrjöldinni verður önnur eftir nokkur ár eða áratugi.


mbl.is Ahmadinejad hvetur til frekari rannsókna á helförinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Austfirðingaball, undarlega lífsreynsla !

Það var sérstakt að mæta á Players á austfirðingaball. Fyrst þegar við Bergrós mættum, þá sá maður varla nokkurn austfirðing en  það var fullt af fólki, já og fjölbreytileiki mannlífsins var mikill.  Maður hugsaði bara að austfirðingarnir hljóta að vera farnir austur að vinna í álinu. Enda veit maður þó nokkur dæmi um slíkt.

Svo fór að koma fólk sem maður kannaðist við.  Við áttum skemmtilegt spjall við Árna og Díönu en hann vann hjá Icelandic um leið og ég en þá hét fyrirtækið nú bara Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna.  Svo hitti maður Gumma bróðir og fleira ágætt fólk.  Allt var þetta voðalega huggulegt en meirihluta flólks á Players kannaðist maður ekkert við.

Þegar við Bergrós fórum að dansa þá voru tveir karlmenn,  sem voru að dansa, alltaf að horfa á okkur.  Mér fannst ég kannast við þá.  Hélt ég hafði hitt annan þegar ég var formaður Félags ábyrgra feðra.Á dansgólfinu kom hann ítrekað og sagði að hann hefði verið viðriðinn uppljóstrunina á Fáskrúðsfirði, þó hann væri hættur í löggunni og þá ættu þeir eftir að góma mig og hann tæki þátt í því.   Ég spurði  hvað hann væri að meina og hann var bara með stæla og dónaskap og sagði að ég vissi vel hvað hann ætti við.  Ég sagði að ég hefði ekki hugmynd um það, svona gekk þetta ítrekað og var sannarlega  orðið hundleiðinlegt.  Svo þegar við Bergrós vorum að labba, undir lok balls, þá kom þessi ræfilstuska aftur og fór með svipaða orðaleppa.  Ég spurði aftur  hvað hann ætti við.  Hann sagði þá "Engilbert, þú veist vel hvað ég á við!"   Ég sagði að ég héti ekkert Engilbert, heldur Gísli og væri Gíslason.  Hann sagði mig ljúga því, hann þekkti mig vel frá þeim tíma sem hann var í löggunni og ég skildi bara passa mig, ég yrði gómaður !!!.  Þetta var yfigengilegur dónaskapur.  Þá sýndi ég honum Visa kortið mitt með nafni og mynd og þá varð hann hálf asnalegur en virtist samt ekki trúa því að ég væri ekki Engilbert.  Kannski haldið að ég væri Engilbert með fölsuð skilríki.  Hann sagði svo að ég væri örugglega Engilbert Runólfsson, hann þekkti mig frá því að hann var í löggunni.  Fyrir utan ballið hélt þetta  áfram en svo virtist renna upp fyrir honum ljós,  og hann bað mig afsökunnar.  Áður var hann búinn að bjóðast til að slást osfrv. Ég sagði honum eins og var að ég slæist aldrei.  Ég sagðist mundi fyrirgefa honum en sagði honum jafnframt að hypja sig í burtu og láta mig aldrei sjá sig aftur.  Hann gerði það en ekki gat ég séð neina iðrun hjá þessum gæja. Ég var orðinn mjög leiður og miður mín, raunar fjúkandi svekktur.   Mann ræfillinn var búinn að skemma helling annars mjög skemmtilegt kvöld með truflun, dónaskap og niðrandi orðaleppum.  Vinur hans sagði að hann væri fasteignasali en ekki lögga.  Þá tengdi ég  alveg hver náunginn var.  Ég hafði hitt þegar ég var formaður Félags ábyrgra feðra.  Maðurinn er sem sagt fasteignasali og um hann stendur á heimasíðu fasteignasölunnnar: lögfræðingur frá HÍ árið 1996 og öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi 1997. ... starfaði sem lögfræðingur Neytendasamtakanna árin 1996-1998, sem lögfræðingur hjá lögreglunni í Reykjavík, síðar Ríkislögreglustjóranum árin 1998-2004 og sem lögfræðingur hjá Tryggingastofnun ríkisins, alþjóðasviði 2004-2005.Þessi fasteignasala býður fasta  söluþóknun og þessi náungi er lögfræðingur og löggiltur fasteignasali.

Daginn eftir gúgglaði ég nafnið Engilbert  Runólfsson.  Það kom ýmislegt upp.   Engilbert  hefur áður fyrr fengið dóma, en er í dag umfangsmikill verktaki.   Ekki þekki ég nein deili á viðkomandi.  Mér varð aftur á móti hugsað ef Engilbert hefði verið að skemmta sér og fengið þennan dreng yfir sig.   Það á enginn skilið að fá svona "fasteingasala-, lögfræðings- fyrrverandi löggu kjána" á sig til að skemma annars skemmtilegt kvöld.  Þessi einstaklingur á bágt og ætti að gera upp við sig hvort hann vilji vera í löggunni eða vera fasteignasali. Hvort sem er þá eru menn ekki í vinnnunni þegar fólk er að skemmta sér.

Þegar ég svo skoðaði myndir af Engilbert á netinu og geri mér grein fyrir  því að mér er ruglað saman við hann, þá er tími til kominn að taka sér tak og léttast um nokkur kíló.  Sama ætti trúlega Engilbert  að gera. 

 


Félag ábyrgra feðra ætti að fá jafnréttiviðurkenningu 2007.

Jafnréttisstofa auglýsir eftir tilnefningum til Jafnréttisviðurkenningar fyrir 2007.    Ég vil leyfa mér að benda á að Félag ábyrgra feðra (Fáf) væri góður félagsskapur til að fá slíka viðurkenningu.  M.a. vegna þess að

  1. Fáf er eini félagsskapur á Íslandi sem fjallar um jafnréttismál séð frá sjónarhóli barna og karlmanna og sérstaklega frá þeim sjónarhóli þegaar kynforeldrar búa ekki saman.  Vefsíða félagsins er hér og má þar finna fleiri hundruð greina um jafnréttismál.
  2. Fáf hefur gefið út fyrsta jafnréttisblað karla á Íslandi og má finna það hér.
  3. Fáf hélt fyrstu ráðstefnu sem frjáls félagasamtök hafa haldið um jafnréttismál karla á fyrsta feðradaginn sl haust.  Ráðstefnan hét Feður í samfélagi nútímans.  Frú Vigdís Finnbogadóttir var heiðursgestur og fyrirlesari einnig m.a. frá hinum virtu bresku feðra samtökum www.fathersdirect.com.
  4. Fyrir tilstuðlan Fáf skilaði Forsjárnefnd  lokaskýrslu og í framhaldi var lögum  breytt þannig að nú er sameiginleg forsjá meginregla við skilnað foreldra, eins og tíðkast erlendis.
  5. Jafnréttismál sem Fáf hefur bent á er m.a.
    1. launamunur kynjanna er endurspeglun á mun í foreldraábyrgð kynjanna. Þannig muni þróun á foreldrajafnrétti og launajafnrétti haldast í hendur.
    2. Ísland er eina vestræna  landið sem gefur dómurum ekki heimild til að dæma í sameiginlega forsjá, jafnvel þó dómari telji það barni fyrir bestu.
    3. að dómarar á Íslandi dæma þannig að barn eigi alltaf aðvera á aðfangadag hjá móður.
    4. meðlagskerfi á Íslandi er trúlega það frumstæðasta í heiminum, sem tekur ekki tillit til umfang samvista, né tekna forsjárforeldris osfrv.
    5. félagið hefur bent á hvernig forsjár mál hafa þróast erlendis eins og t.d. í Svíþjóð og Frakklandi, þar sem foreldrajafnrétti er komið mun lengra en hér á landi, m.a. lög um jafna búsetu meginreglan í Frakklandi síðan 2002.
    6. fyrir tilstuðlan félagsins eru fleiri og  fleiri í samfélaginu komnir á  þá skoðun að báðir foreldrar eru bestu hagsmunir barna við skilnað. Í framtíðinni mun löggjafin og framkvæmdavaldið vinna í samræmi við það.
    7. félagið hefur gert þó nokkrar umsagnir um lagabreytingar og annað, hitt nefndir á vegum bæði borgar og ríkisstjórnar.
  6. Fáf er 10 ára gamall félagsskapur um þessar mundir, var formlega stofnaður 10. september 1997.  Jafnréttisumræðunni væri lyft á hærra plan ef karlatengd jafnréttisbarátta fengi viðurkenningu Jafnréttisráðs.

 

 


Austfirðingaball á Players 21. september. 2007

Austfirðingaböllin hafa verið haldin með glæsibrag undanfarin ár og eru löngu orðin fastur liður í skemmtanalífi austfirðinga, brottfluttra sem búandi í sinni heimabyggð. Undanfarin ár hefur þurft að bæta við flugferðum svo um munar og er áætlað að ekki mæti færri að austan heldur þeir sem búa hér að höfuðborgarsvæðinu. Hafa þessi böll verið haldin á tímabilinu mars/apríl ár hvert og hafa ávallt heyrst raddir eftir hvert ball hvort ekki sé hægt að halda þetta  líka á haustin. Það hefur löngum staðið til að láta verða af því og í ár verður blásið í herlúðra og haldið eitt stk. Austfirðingaball föstudaginn 21. september á Players í Kópavogi. Austfirðingaböll eru náttúrulega bara snilld, hvar og hvenær sem þau eru haldin og eitthvað sem engin má missa af. Dagskráin er skotheld að venju. Vax – Dúkkulísur – AusturlandiðGuðmundur R. Gíslason o.fl. Snillingarnir í Vax ætla heiðra okkur með nærveru sinni í fyrsta sinn á Austfirðingaballi og bíða margir spenntir eftir að heyra og sjá þá félaga en þeir hafa verið að gera frábæra hluti bæði hérlendis og erlendis. Ein þekktasta og langlífasta kvennahljómsveit landsins Dúkkulísurnar fagna í ár 25 ára afmæli þessarar merku sveitar. Í tilefni þess er komin út plata með nýju efni í bland við eldri smelli, alls 18 laga afmælisútgáfa. Til hamingju Dúkkulísur og hlökkum til að sjá ykkur. Gömlu brýnin úr Austurland að Glettingi og Tríó Valgeirs, þeir Valgeir Skúlason, Björn Hallgrímsson, Björgvin Harri Bjarnason og Tómas Tómasson hafa sameinað krafta sína í eina almögnuðustu rokksveit sem fram hefur komið í langan tíma og hefur fyrirbærið einfaldlega verið nefnt Austurlandið Súellen-söngvarinn Guðmundur R. Gíslason heiðrar okkur með nærveru sinni að venju nema hvað nú er kappinn með ylvolga plötu í farteskinu. Guðmundur til hamingju með nýju sóló-plötuna.  Það er greinilega mikil gróska í austfirsku tónlistarlífi í ár sem endranær og verður spennandi að fylgjast með framvindu mála á næstu misserum og því tilvalið a slá tvær flugur í einu og sjá það markverðasta sem er að gerast og hitta vini og kunningja og umfram allt skemmtilegt fólk. Fleiri atriði eiga svo eftir að bætast við og sem tilboð á flugi að austan o.fl. og um að gera að fylgjast með  á www.promo.is Sjáumst hress með góða skapið í farteskinu á Austfirðingaballi á Players.

Barn skal vera rétt feðrað.

Grein úr sem birtist í Morgunblaðinu 2. sept2007
Gísli Gíslason skrifar um rétt barna til að vera rétt feðruð: "Íslensk lög þurfa að tryggja að börn á Íslandi séu réttfeðruð og karlmenn njóti sama réttar og konur til að höfða faðernismál."

NÚ HEFUR það gerst að fullorðinn maður hefur fengið það staðfest að hann hefur verið rangfeðraður alla ævi. Málið er um margt sérstakt en staðfestir að flestir vilja vita um líffræðilegan uppruna sinn. Þannig er það algengt að börn sem hafa verið ættleidd til Vesturlanda leiti uppi sína líffræðilegu foreldra eða heimsæki þau landsvæði sem þau komu frá. Sömuleiðis leita börn sem getin hafa verið með tæknifrjógvun uppi sinn líffræðilega föður þegar þau eru fullorðin. Þannig hafa nokkur lönd sett það í lög að barn getið við tæknifrjóvgun á rétt á að vita hver faðirinn (sæðisgjafinn) er þegar það er orðið lögráða án þess að eiga neinar kröfur á viðkomandi einstakling um erfðir eða annað. Við slíkt fyrirkomulag gengur líka sæðisgjafinn að því vísu barnið getið með sæðisgjöfinni á rétt seinna meir á að vita hver viðkomandi er.

Við gerð síðustu barnalaga var í fyrsta sinn opnað á þann rétt karla að höfða faðernismál, telji þeir sig faðir barns. Þetta kom ekki til af góðu. Karlmaður krafðist þess fyrir rétti að fá að vera faðir barns sem kona hafði fætt en hún feðraði ekki barnið við fæðingu. Fyrir Hæstarétti var honum veitt þessi heimild og í dag á þetta barn sinn föður eins og önnur börn. Í framhaldi af þessum dómi var sett í 10. gr barnalaga frá 2003 svohljóðandi:

"Stefnandi faðernismáls getur verið barnið sjálft, móðir þess eða maður sem telur sig föður barns, enda hafi barnið ekki verið feðrað."

Hér er heimild karlmanns til að höfða faðernismál þrengt við það að móðir hafi alls ekki feðrað barnið. Þetta þýðir að ef gift kona verður ófrísk eftir annan mann, en kennir eiginmanni barnið og hann gengst við því, þá er engin leið fyrir hinn raunverulega föður að fara í faðernismál. Barnið getur aftur á móti farið fram á faðernismál þegar það er orðið lögráða.

 

Pater-est

Hér gildir svokölluð faðernisregla eða "pater-est"-reglan sem byggist á því að svo sterkar líkur séu fyrir því að barnið sé getið við samfarir konunnar við eiginmann sinn að gengið er út frá því sem reglu. Þessi regla var góðra gjalda verð áður en nútíma vísindi gátu staðfest með óyggjandi hætti rétt faðerni. Í dag er hægt að framkvæma svonefnt DNA-próf sem staðfestir með öruggum hætti rétt faðerni. Pater-est reglan á því heima í sögubókum.

 

Er karlmönnum ekki treystandi?

Ástæðan fyrir því að takmarka heimild feðra við að höfða faðernismál er sögð sú að koma í veg fyrir að feður séu að nauðsynjalausu að höfða faðernismál og gera þannig konum óskunda! M.ö.o. hefur löggjafinn áhyggjur af því að karlmenn séu svo illa innrættir að þeim sé ekki treystandi og þurfi þ.a.l. að skerða mannréttindi þeirra með þessum hætti. Þessi rök eru ekki svaraverð en afleiðingin er að árlega eru börn á Íslandi rangfeðruð.

Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur:

"7. gr. 1. Barn skal skráð þegar eftir fæðingu, og á það frá fæðingu rétt til nafns, rétt til að öðlast ríkisfang, og eftir því sem unnt er rétt til að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar þeirra."

Í dag er unnt að réttfeðra barn og það eru mannréttindi hvers einstaklings að vera réttfeðrað og vita uppruna sinn og allir eiga rétt á því samanber 7. gr. Barnasáttmálans. Það þarf að bæta íslensk lög þannig að það sé tryggt að börn á Íslandi séu réttfeðruð. Ekki er ólíklegt að í framtíðinni fari öll börn og foreldrar í DNA-próf. Karlmenn eiga einnig að njóta sama réttar og konur og börn til að höfða faðernismál. Því miður mismuna íslensk lög körlum og konum að þessu leyti, körlum og þar með börnum í óhag. Hví fjallar Jafnréttisstofa ekki um svona mismunum – nú eða Umboðsmaður barna?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 186897

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband