Ónotuð íslensk nöfn.

Við landnám var málið fjölskrúðugt af nöfnum.  Hjálagt er listi af nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn ber í dag. 

 

Alfarinn,  Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur, Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð, Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður, Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp, Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik, Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður, Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur, Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur, Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar, Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður, Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir, Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur, Oddkatla, Óblauður, Saxi,  Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur, Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir, Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur, Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni, Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur, Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur, Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja, Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur, Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli, Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta, Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.

Væntanlega þarf ekki leyfi mannanafnanefndar til að skýra eitthvað af ofangreindum nöfnum.   Sum nöfnin eru alls ekki slæm eins og t.d. Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur Þjóðar.   Sum nöfn finnst mér hinsvegar nafnleysa og með neikvæða merkingu.  En eitt sinn var ekki hægt að nota nafnið Mörður, vegna "Lyga Marðar". Nú er það nafn vel þekkt og samþykkt, þannig geta nöfn öðlast samþykki.  Kannski eiga einstaklingar eftir að bera  nafnið Fálki rétt eins og Hrafn og Örn.  Íslenska málið býður uppá mörg ónotuð nöfn og kannski ekki nauðsynlegt að leita langt að nýjum nöfnum.


mbl.is Jón og Gunna heita nú Kári og Sara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

skelfilega skrítin nöfn og ljót - finnst mér. voru þessi nöfn til í alvörunni?

Sigrún Óskars, 12.11.2008 kl. 16:18

2 identicon

Mér finnst Elíná fallegt :)

Aldís Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 20:34

3 Smámynd: Gísli Gíslason

já þau voru öll til.  Ég er nú sammála að sum er skrítin og jafvnel ljót en innan um finnst mér ágæt nöfn.

Gísli Gíslason, 13.11.2008 kl. 08:23

4 Smámynd: Gísli Gíslason

Mér finnst eins og Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur, Þjóðar,Þorleikur, Þorgautur og Beinir vera ágæt nöfn sem gætu vanist.  Kjallakur og Kjalvör eru trúlega keltnesk nöfn eins og Kjarval.

Gísli Gíslason, 14.11.2008 kl. 08:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 184141

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband