28.11.2008 | 09:10
Munur í foreldra- og heimilisábyrgð orsakar launamun kynjanna !
Á meðan konur bera meiri ábyrgð á uppeldi barna og ábyrgð á heimili þá verður launamunur kynjanna viðvarandi ! Er samfélagið og konur tilbúnar að koma á foreldrajafnrétti? Ég er hreint ekki viss um það.
Munur í foreldraábyrgð kynjanna er almennur, bæði þegar foreldrar búa saman en mestur þegar foreldrar búa ekki saman. Það eru um 14.000 mæður sem búa ekki með barnsfeðrum sínum, en þær hafa lögheimili um 20.000 barna hjá sér, þ.e. barna yngri en 18 ára. Þær bera þ.a.l. mesta ábyrgð á uppeldi þeirra og hafa stöðu, skattalega og félagslega sem foreldri og einstætt foreldri ef þær eru ekki í sambúð með nýjum maka. Það eru um 12.000 feður sem greiða meðlög með þessum 20.000 börnum og flokkast þeir skattalega sem barnlausir einstaklingar ef börn þeirra hafa ekki lögheimili hjá þeim. Trúlega er kynbundinn munur hvergi meiri en í þessum málaflokki, sem telur 26.000 foreldra eða um 16% af vinnnandi fólki á Íslandi. Mismunur í foreldraábyrgð kynjanna í þessum hóp skapar þeim mjög ólíka
stöðu á vinnumarkaði. Eðli málsins samkvæmt er þessi hópur á fyrri hluta síns starfsferils þar sem kjör þeirra til langframa eru oft mótuð.
Allar stjórnvaldsaðgerðir sem jafna foreldraábyrgð skapar báðum kynjum sömu forsendur til sóknar á vinnumarkaði.
Foreldrajafnrétti og launajafnrétti er endurspeglun af hvort öðru.
Kynbundinn launamunur 19,5% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
- raggig
- eyleifosk
- gummigisla
- andres08
- alla
- gattin
- eurovision
- doggpals
- saxi
- eysteinn-thor
- garibaldi
- killjoker
- gudrunkatrin
- gisliivars
- veravakandi
- heimirhilmars
- heg
- jakobbjornsson
- joik7
- kristinnagnar
- lauola
- magneak
- mal214
- nafar
- sigrunsveito
- sigurjonth
- sighauk
- slartibartfast
- sveinni
- valgerdurhalldorsdottir
- sparki
- btryggva
- keh
- seinars
- siggisig
- sigurjons
- valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 185615
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góður pistill Gísli. Ég er á því að eitt stærsta skref í jafnréttisbaráttu síðustu áratuga var fæðingarorlof karla. Það eru hins vegar alltof margar konur sem telja að með þessu séu karlar að fá réttindi á "kostnað" þeirra. Þær standa því fastar fyrir í ístaðinu.
Eins og staðan er í dag þá vill þjóðfélagið að konan sjái um börnin en karlinn borgi, sbr. úrelt barnalög og meðlagskerfi. Fyrst að þetta er viðurkennd staðreynd þá er launamunur kynjanna ekkert undrunarefni.
Vinna verður að jafnrétti kynjanna á ÖLLUM sviðum, ekki sumum.
Sigurður Haukur Gíslason, 29.11.2008 kl. 01:00
Það er mikið rétt. Jafnréttisbaráttan hefur snúist um bætt réttindi kvenna fyrst og fremst. Ef það er fjallað um karla þá er fjallað um þá sem eitthvert vandamál. Það er auðvelt að rökstyðja þessa fullyrðingu með því að skoða hvað stofnanir sem fjalla um þessi mál eru að gera.
Gísli Gíslason, 29.11.2008 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.