Sól á Íslandi.

Verktakar eru að segja upp fólki og hundruðir einstaklinga hafa misst vinnuna.  Verktökum vantar verkefni til að geta haldið sínu hæfa starfsfólki.  Börn horfa uppá foreldra verða atvinnulausa.

Það er sérstakt að hugsa til þess að ekki er langt síðan Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álvers í Straumsvík.  Í miðju góðærinu voru álver ekki nógu fínn vinnustaður fyrir marga.    Það var á köflum talað niðrandi um þau störf sem eru í álverum.  Ef stækkun álvers í Straumsvík væri núna í gangi þá væru verktakar trúlega að vinna við það og færri einstaklingar að missa vinnuna.

Það er mikil blessun fyrir land og þjóð að ráðist var í gerð Kárahnjúkavirkjunar og byggt álver á Reyðarfirði.  Sú framkvæmd hefur haft mikil og varanleg jákvæð áhrif, ekki síst á Austurlandi, þar sem Alcoa er orðinn stærsti vinnuveitandi fjórðungsins.

Það er full ástæða að hrósa ríkisstjórninni fyrir þessar aðgerðir sem kynntar eru í þessari frétt.  Það að standa vörð um atvinnulífið og fara í mannaflsfrekar framkvæmdir skapar fólki atvinnu og það er forsenda til að ná aftur stöðugleika.  

Nú eru einnig sóknarfæri fyrir andstæðinga virkjana og álvera að koma fram með hugmyndir um aðra atvinnuuppbyggingu.

Ef allir leggjast á árarnar þá verður aftur "Sól á Íslandi".


mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

innlitskvitt - góður punktur hjá þér.

Sigrún Óskars, 3.12.2008 kl. 16:03

2 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Já það væri fróðlegt að heyra í "umhverfissinnum" núna. Þessum sem vildu ekki Kárahnjúka, sem var forsenda álvers á Reyðarfirði. Hefði sú framkvæmd ekki komið til væri þessi fjórðungur svipur hjá sjón.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 3.12.2008 kl. 22:12

3 Smámynd: Gísli Gíslason

Ég held að það sé aldrei mikilvægara en nú að allir líka VG og aðrir sem börðust hatrammlega á móti uppbyggingunni á Austurlandi, komi fram með hugmyndir að nýjum atvinnutækifærum.  Oft var þörf nú er nauðsyn.

Gísli Gíslason, 4.12.2008 kl. 07:51

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Mikið til í þessu

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 5.12.2008 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 183978

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband