Umhugsunarvert !

Auðvitað er það nauðsynlegt að takmarka og minnka losun gróðurhúsaloftegunda.   Nú vill Umhverfisráðherra skuldbinda þjóðina til að minnka losun um 30%,  sem er ekki lítið.  En við eigum umvherfisvæna orku, raforku sem fengin er með ýmist vatnsaflsvirkjunum eða gufuaflsvirkjunum.  Í þessu eru sóknarfæri fyrir Ísland, jafnvel að fá hingað til lands starfsemi, sem myndi auka okkar losun en minnka losun á heimsvísu.

En ef starfsemi er sett niður hér á landi og hún gefur frá sér X magn gróðurhúsalofttegunda  og þessi starfsemi leysir af hólmi sambærilega starfsemi annarsstaðar sem gefur frá sér 2X magn gróðurhúsaloftegunda, þá hefur  Ísland lagt af mörkum mikilvægt skref til minnkunar á losun gróðurhúsaloftegunda þó að losunin hér á landi aukist.  

Að sama skapi ef starfsemi er ekki sett niður hér á landi eða í öðrum löndum sem hafa umhverfisvæna orkugjafa en er í staðinn sett niður á stöðum þar sem að brennd eru jarðefni þá eykur það losun gróðurhúsa loftegunda á heimsvísu.  Gott dæmi er það þegar Alcoa reisti álver í arabaríki þegar framkvæmdum seiknaði við Húsavík.  Ef álver á Bakka hefði losað X magn gróðurhúsaloftegunda þá losar álverið sem reist var í staðinn 2x þar sem orkuöflun kemur frá brennslu jarðefni.   Slíkar framvinda minnkar kannski losun Íslendinga en eykur losun á heimsvísu.

Mér sýnist það vanta ákvæði í svona skuldbindingar að hægt sé að flytja losunarkvóta á milli landa enda leiði það til þess að það minnki heildarlosun á gróðurhúsaloftegundum á heimsvísu. 

 

 


mbl.is Ísland minnki losun um 30%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta endar með því að þessi loftlagsumræða fer á svipaðan stað og hvalaumræðan úti í heimi. 

Denni (IP-tala skráð) 21.12.2009 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 89
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband