31.12.2009 | 12:03
Pottþétt að Ólafur skrifar undir Icesave lögin.
Ólafur mun örugglega skrifa undir Icesave lögin, þrátt fyrir að þetta sé óafturkræft og ein stærsta skuldbinding sem þjóðin hefur tekist á við og er skuldbinding til að greiða skuldir óreiðumanna, sem hann dásamaði sjálfur og var meðvirkur með fyrir hrun bankanna.
Kannski varð hrunið tilkomið vegna þess að fjölmiðlar voru og eru bæði of veikir og ósjálfstæðir og höfðu ekki kraft né getu til að fjalla um galla og veikleika á íslensku útrásinni og galla í bankakerfinu. Kerfið sigldi á eigin forsendum að feigðarósi og þjóðin borgar. Það voru sömu aðilar sem áttu fjölmiðlana, bankana og voru bæði leikendur og gerendur í útrásinni. Fjölmiðlar fóru og fara of mjúkum höndum um þessa einstaklinga sem aftur eru að eignast landið og miðin, nú í skjóli vinstri flokka en áður í skjóli mið og hægri flokka.
Þegar átti að tryggja dreifða eignaraðild að fjölmiðlum með fjölmiðlalögum, þá reis hér á landi ein mesta fjöldaklikkun síðari ára, drifin áfram að fjölmiðlunum sem útrásarvíkingarnir áttu. Fólk (margt) trúði því að fjölmiðlalögin væru mannsvonska Davíðs gegn Baugi. Ólafur þóknaðist vinum sínum, sem áttu bankana, áttu fjölmiðlana og voru stærstu gerendur í útrásinni og neitaði að undirrita fjölmiðlalögin, enda voru Baugsmiðlarnir búnir að reka þann áróður ofan í þjóðina að lögin væru bara gegn einu fyrirtæki þ.e. Baugsveldinu (Fréttablaðinu, stöð 2 osfrv) og þegar lygin er endurtekin nógu oft þá fer fólk að trúa. Það gerðist svo rækilega í því máli.
Fjölmiðlalögin, sem var þó alltaf hægt að breyta aftur, voru nógu mikilvæg til að neita að undirrita en Icesave sem er óafturkræf aðgerð mun hann undirrita með glöðu geði þrátt fyrir fyrirslætti eins og hann setur í þessu blaðaviðtali.
Þjóðin þarf nýjan forseta þannig að embættið yrði aftur sameiningartákn þjóðarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson ætti að segja af sér og það strax.
![]() |
Forseti tekur sér frest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.12.2009 | 11:33
Eins og Blómsturvellir í Neskaupstað.
![]() |
Fimm tvíburar í sömu götu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.12.2009 | 18:00
Góð og raunsæ grein !
Nauðhyggja græningjans
Eftir Gunnar Þórarinsson: "Langstærsta tækifærið til nýsköpunar í atvinnulífi og aukinna útflutningstekna í náinni framtíð er uppbygging álvers í Helguvík."
Spekúlantar með huliðshjálm
Eftir hrun fjármálakerfisins standa uppi þrjár meginstoðir íslensks atvinnulífs, sjávarútvegur, áliðnaður og ferðaiðnaður. Án þeirra væri staða íslenska þjóðarbúsins ekki björguleg. Þær skapa einfaldlega mestar gjaldeyristekjur sem við þurfum svo nauðsynlega á að halda. Vart greinir menn heldur á um nauðsyn þess að rjúfa hnignun atvinnulífs með tilheyrandi atvinnu-, úrræða- og vonleysi. En hvar eru tækifærin? Langstærsta tækifærið til nýsköpunar í atvinnulífi og aukinna útflutningstekna í náinni framtíð er uppbygging álvers í Helguvík. Það verkefni mun skapa þúsundir vel launaðra starfa á næstu árum, rjúfa vítahring atvinnuleysis á starfssvæði álversins og hafa margs konar jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Hvað með öll hin tækifærin til að nýta innlenda orku? Staðreyndin er sú að alvöru erlendir fjárfestar bíða ekki í röðum eftir því að fjárfesta hér á landi enda bjóðast víða mun betri skilyrði, þar sem stjórnvöld skilja nauðsyn þess að greiða götu erlendra fjárfestinga í stað þess að leggja stein í götu þeirra. Talað er um hin og þessi sóknarfæri í atvinnusköpun en þegar á hólminn er komið lyppast þau mörg hver niður. Oft er þetta vegna þess að viðkomandi fyrirtæki hafa ekki bolmagn til að ábyrgjast kaup á raforku mörg ár fram í tímann eins og álfyrirtækin verða að gera. Menn mega ekki heldur láta þann sverm af spekúlöntum sem hér flögrar um árlega villa sér sýn. Iðulega er um að ræða tækifærissinna sem hafa uppi stór orð um álitleg verkefni en síðan kemur í ljós að fjárhagslegt bakland spekúlantsins var aldrei fyrir hendi og sjálfur gufar hann gjarnan upp.
Hvolpaburður staðreynda
Ólafur talar um að stóriðja skapi tiltölulega fá störf miðað við tilkostnað. Hið rétta er að stóriðjan skapar hér þúsundir vel launaðra starfa sem skiptir miklu máli þegar meta skal þjóðhagslegt gildi starfsgreinar. Og ekki er um að ræða tilkostnað íslenska ríkisins, kostnaðurinn af uppbyggingu stóriðju fellur einfaldlega á fyrirtækin sjálf. Ólafur heldur því fram að stóriðjan fái raforku á spottprís, en samkvæmt nýlegu mati Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands greiðir stóriðjan hér á landi meðalhátt verð á heimsvísu fyrir raforku. Jafnframt kemur fram í nýlegri skýrslu að dæmigerð raforkunotkun íslenskra heimila hafi lækkað um 30% í verði frá árinu 1997, á föstu verðlagi, að stórum hluta vegna aukinnar raforkuframleiðslu fyrir stóriðju. Ólafur hefur einnig áhyggjur af ónógri arðsemi stóriðju. Er það ekki stóriðjufyrirtækjanna sjálfra að hafa áhyggjur af arðsemi eigin rekstrar? Varla væru þau að reisa hér álver ef þau sæju fram á viðvarandi svartnætti í rekstri. Hugleiðingar Ólafs um að stóriðjan hafi dregið mátt úr annarri uppbyggingu á landsbyggðinni eru hreint fráleitar. Þvert á móti hefur stóriðjan skotið styrkum stoðum undir alls kyns þjónustustarfsemi sem blómstrar sem aldrei fyrr og verkfræðistofur og smærri iðnfyrirtæki flytja út þekkingu í tengslum við íslenskan áliðnað fyrir stórar fjárhæðir á ári hverju.
Umhverfi séra Jóns
Ólafur segir að verstur sé þó umhverfisþáttur stóriðjunnar. Honum til hughreystingar má benda á að við Íslendingar eigum því láni að fagna að geta framleitt orku á vistvænni hátt en flestar aðrar þjóðir. Fyrir vikið er það umhverfisvænt skref í hnattrænum skilningi að nýta hér rafmagn frá jarðhita- og vatnsorkuverum, m.a. til álframleiðslu. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli aukinnar hagsældar og ábyrgðar í umhverfismálum, hér á landi haldast þessi viðmið einfaldlega í hendur. Hið sama gildir ekki um eitt einasta þróað ríki sem stóð að loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn. Ólafur bendir á gríðarlega möguleika í ferðaþjónustu, sem er gott innlegg þó að launin mættu vera hærri, en lætur hjá líða að minnast á umhverfisþáttinn. Allir atvinnuvegir hafa í senn áhrif á afkomu fólks og á umhverfið. Kröfur íslenskra stjórnvalda um mengunarvarnir varðandi stóriðju eru afar strangar og því ber að fagna. Almenningur er líka mjög meðvitaður um mikilvægi mengunarvarna í stóriðju en þar með er sagan öll. Varðar Ólaf t.d. eitthvað um það að ferðaiðnaður er sú íslensk atvinnugrein sem veldur mestri losun gróðurhúsalofttegunda? Íslenskir græningjar boða að áliðnaður sé upphaf og endir alls ills. Hvers vegna þessi rörsýn á álver? Hvers vegna liggja álver svona vel við höggi? Jú, sennilega vegna þess að álver eru auðskilgreindur og áþreifanlegur andstæðingur sem þægilegt er að einbeita sér að.Við Íslendingar þurfum nú að snúa bökum saman og koma hjólum efnahagslífsins á skrið á ný. Þar er nærtækast að koma stórum verkefnum eins og álveri í Helguvík af stað ásamt tilheyrandi virkjunarframkvæmdum.
Höfundur er viðskiptafræðingur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2009 | 09:58
Aðventa
- Brátt nálgast sú helgasta hátíð í bæ
- með heilögu ljósunum björtum.
- Andi guðs leggst yfir lönd yfir sæ
- og leitar að friði í hjörtum.
- En nú virðist fegurðin flúin á braut
- friðurinn spennu er hlaðinn.
- Lífsgæðakapphlaup og kauphallarskraut
- er komið til okkar í staðinn
- Þó vill hann oft gleymast, sem farveg oss fann
- fæddur í jötunnar beði,
- við týnum úr hjartanu trúnni á hann
- og tilefni jólanna gleði.
- Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós
- þá veitist þér andlegur stryrkur,
- kveiktu svo örlítið aðventuljós,
- þá eyðist þitt skammdegismyrkur.
- Það ljós hefur tindrað aldir og ár
- yljað um dali og voga
- þó kerið sé lítið og kveikurinn smár
- mun kærleikur fylgja þeim loga
- Láttu svo kertið þitt lýsa um geim
- loga í sérhverjum glugga
- þá getur þú búið til bjartari heim
- og bægt frá þér vonleysisskugga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2009 | 16:14
Þorláksmessurnar eru tvær, önnur á sumri
Þorláksmessa á sumri er 20. júlí og var lögleidd 1237 til að minnast þess að þann dag 1198 voru bein Þorláks tekin upp til að nýtast til áheita. Var sumarmessa þessi ein mesta hátíð ársins á Íslandi fyrir siðaskipti.
Það væri kannski ráð að landinn færi einnig að borða skötu þann 20.júlí ár hvert !
![]() |
Ekki bara á Þorlák |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2009 | 10:10
Umhugsunarvert !
Auðvitað er það nauðsynlegt að takmarka og minnka losun gróðurhúsaloftegunda. Nú vill Umhverfisráðherra skuldbinda þjóðina til að minnka losun um 30%, sem er ekki lítið. En við eigum umvherfisvæna orku, raforku sem fengin er með ýmist vatnsaflsvirkjunum eða gufuaflsvirkjunum. Í þessu eru sóknarfæri fyrir Ísland, jafnvel að fá hingað til lands starfsemi, sem myndi auka okkar losun en minnka losun á heimsvísu.
En ef starfsemi er sett niður hér á landi og hún gefur frá sér X magn gróðurhúsalofttegunda og þessi starfsemi leysir af hólmi sambærilega starfsemi annarsstaðar sem gefur frá sér 2X magn gróðurhúsaloftegunda, þá hefur Ísland lagt af mörkum mikilvægt skref til minnkunar á losun gróðurhúsaloftegunda þó að losunin hér á landi aukist.
Að sama skapi ef starfsemi er ekki sett niður hér á landi eða í öðrum löndum sem hafa umhverfisvæna orkugjafa en er í staðinn sett niður á stöðum þar sem að brennd eru jarðefni þá eykur það losun gróðurhúsa loftegunda á heimsvísu. Gott dæmi er það þegar Alcoa reisti álver í arabaríki þegar framkvæmdum seiknaði við Húsavík. Ef álver á Bakka hefði losað X magn gróðurhúsaloftegunda þá losar álverið sem reist var í staðinn 2x þar sem orkuöflun kemur frá brennslu jarðefni. Slíkar framvinda minnkar kannski losun Íslendinga en eykur losun á heimsvísu.
Mér sýnist það vanta ákvæði í svona skuldbindingar að hægt sé að flytja losunarkvóta á milli landa enda leiði það til þess að það minnki heildarlosun á gróðurhúsaloftegundum á heimsvísu.
![]() |
Ísland minnki losun um 30% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2009 | 12:20
Afneita staðreyndum !
Sigurður Magnússon og Kristín Fjóla hafa haft völdin á Álftanesi síðustu 3 árin ásamt félugum sínum í Á-listanum. Þau hafa komið sveitarfélaginu í fjárhagslegt þrot og virðast lifa í algerri afneitun á eigin ábyrgð í þessari atburðarrás.
Heimagerðar afsakanir þeirra um áhagstæða aldurssamsetningu samfélagsins og að sveitarsjóður eigi inni hjá Jöfunarsjóð miklar fjármuni eru smjörklípa á staðreyndir málsins en þær eru m.a. að eftir 3 atkvæða sigur í síðustu sveitarstjórnarkosningum þá hentu þau gildandi miðbæarskipulagi og hættu við samning við Eir um uppbyggingu í miðbænum m.a. fyrir eldri borgara. Með því köstuðu þau miklum fjármunum skattgreiðenda á glæ og og þar með frestaðist uppbygging á miðvæðinu og fjölgun íbúa gekk ekki eftir en slík fjölgun þýddi auðvitað meiri útsvarstekjur, m.a. frá eldri borgurum. Nánast allt sem búið var að gera af fyrri meirihluta var kastað á glæ, það var meira að segja skipt um endurskoðendur, lögfræðing bæjarsins osfrv. Þetta var ekki ósvipað eins og gert var í Sovjét í denn þegar nýr leiðtogi tók við. Það kostar að henda skipulagi og hætta við samninga og það kostar þegar uppbygging sveitarfélags stöðvast og auknar tekjur skila sér ekki inn. Rekstur sveitarfélagsins var alla tíð í molum hjá þeim Sigurði og Kristínu Fjólu með neikvætt veltufé frá rekstri. Þegar þau svo fara að tala um að skuldir séu ofmetnar þá er manni öllum lokið. Nær væri að þau myndu biðja íbúa Álftaness afsökunar og þau ættu að fara í alvarlega sjálfskoðun og hætta þessari afneitun staðreynda.
Það er mikilvægt að íbúar Álftanes standi saman í þessum þrengingum og finni lausn á þessari erfiðu stöðu.
![]() |
Gagnrýna skýrslu um Álftanes |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.12.2009 | 08:32
Gott samfélag á Álftanesi !
Þrátt fyrir erfiða stöðu á Álftanesi þá er þar flott samfélag og barnavænt samfélag í fallegu umhverfi. Skálmöld í bæjarstjórn Álftaness hefur komið óorði á þetta góða samfélag. Á listinn tók við ágætu búi árið 2006, en náði á 3 árum á keyra sveitarsjóð í þrot. Þegar ljóst var að sveitarsjóður væri kominn í þrot, þá upphófst söngurinn að sveitarfélagið hefði ekki fengið réttan skerf úr Jöfnunarsjóði Sveitarfélaga og svo var náttúrulega kreppunni líka kennt um. Það væri hollt fyrir forsvarsmenn Á listans að líta gagnrýnum augum á sín verk og sitt vinnulag í þessum hörmungum í stað þess að leita að blórabögglum annarsstaðar.
Þrátt fyrir erfiða stöðu bæjarstjóðs á Álftanesi þá verður áfram gott samfélag, sem þarf að finna leið útúr þessum ógöngum. Þar er ögrun og mikið verkefni að takast á við.
![]() |
Álftanes í gjörgæslu ráðuneytis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2009 | 11:34
Af hverju eru fjármunir fluttir til ?
Hér er ekki verið að spara 20 milljónir heldur er hætt við reglulega leit að ristilkrabbameini og þeir fjármunir sem áttu að nota þar eru notaðir í leit að leg og brjóstakrabbameini.
Í töflu hér að neðan má sjá að á 10 ára tímabili eru margir sjúkdómar sem leggja jafn marga eða fleiri en þeir sjúkdómar, þar sem stundaðar eru regluleg krabbameinsleit.
Dánarorsakir | 1986-2005 |
Eyðni | 26 |
Illkynja æxli í leghálsi, legi og eggjastokki | 493 |
Brjóstakrabbamein | 755 |
Lagnvarandi alkóhólismi | 50 |
Flutningaóhöpp. | 662 |
Sjálfsvíg | 648 |
Blöðruhálskirtill | 854 |
Ristill, endaþarmur | 964 |
Eyðni.
Trúlega er það virkum forvörnum að þakka að þessi sjúkdómur varð ekki að faraldri. Einnig hafa forvarnir aukið upplýsingar um sjúkdómin og þar með minnkað vanþekkingu og fordóma.
Æxli í leghálsi, legi og eggjastokkum og brjóstakrabbamein.
Konur fara reglulega í skimun fyrir bæði brjóst og leghálskrabbameini. Þannig er mörgum lífum bjargað og oft er baráttan við illvígan sjúkdóm hafin mun fyrr sem eykur líkur á bata.
Langvarandi alkóhólismi.
Umræða og upplýsingar ásamt virku starfi SÁÁ hefur skilað samfélaginu ómældum forvörnum og hjálpað hundruðum einstaklingar að ná fótfestu til að lifa með þennan illvíga sjúkdóm.
Flutningaóhöpp.
Við sjáum reglulega í auglýsingar og uppstillt bílflök við þjóðvegin o.s.frv. Þetta hefur ríkt forvarnargildi og bjargar árlega mörgum frá að lenda í alvarlegum bílslysum þar sem afleiðingar geta verið ýmist andlát eða örkuml.
Sjálfsvíg.
Það eru svipað margir sam hafa fallið fyrir eigin hendi á síðutu 10 árum og hafa látist í umferðarslysum. Hér erum við trúlega nánast á byrjunarreit, lítið sem ekkert forvarnarstarf og þögnin er ennþá þung um þennan málaflokk.
Blöðruhálskirtill.
Það eru fleiri karlmenn sem látast úr krabbameini í blöðruhálskirtli en konur úr brjóstakrabbameini. Það er rík þörf á að komið verði á fót reglubundinni krabbameinsleit, eins og tíðkast við leit að brjósta og legháls krabbameini.
Ristill og endaþarmur.
Á 10 ára tímabili látast tæplega 1000 manns og það eru bæði konur og karlar. Það er rík þörf að koma á fót reglubundinni krabbameinsleit fyrir þennan sjúkdóm.
Niðurlag.
Það er mikilvægt að samfélagið setji á fót krabbameinsleitarstöðvar til að skima krabbamein bæði í blöðruhálsi, ristli og endaþarmi. Við að greina sjúkdóma á frumstigi, þá aukast líkur á bata. Færri einstaklingar þurfa að fara í miklar og erfiðar krabbameinsmeðferðir. Að greina sjúkdóminn snemma gerir baráttu sjúkllingsins auðveldari og sparar jafnframt hinu opinbera fjármuni við erfiðar og langvinnar lækningameðferðir. Þeir fjármunir eru betur nýttir í forvarnarstarf. En það e jafnframt stórfurðulegt að fjármunir sem áttu að fara í leit að ristilkrabba hjá einstaklingum á aldrinum 60-69 ára skuli vera fluttir til að leita að krabbameini sem einungis greinist hjá konum, eðli málsins samkvæmt. Hvað eru miklir fjármunir á ári sem fara í virka leit að krabbameini hjá konum og hvað eru mikilir fjármunir sem fara í krabbameinsleit hjá körlum eða krabbamein sem leggst á bæði kyn. Er hér mál sem Jafnréttisstofa ætti að fjalla um?
![]() |
Hætt við skipulagða leit að ristilkrabbameini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.12.2009 | 13:35
Það sem vantar í þessa umræðu !
Það er auðvitað gott og mikilvægt að allar þjóðir leggist á eitt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
En ef starfsemi er sett niður hér á landi og hún gefur frá sér X magn gróðurhúsalofttegunda og þessi starfsemi leysir af hólmi sambærilega starfsemi annarsstaðar sem gefur frá sér 2X magn gróðurhúsaloftegunda, þá hefur Ísland lagt af mörkum mikilvægt skref til minnkunar á losun gróðurhúsaloftegunda þó að losunin hér á landi aukist. Ákvæði um það vantar i svona yfirlýsingar.
![]() |
Íslendingar munu draga úr losun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
-
raggig
-
eyleifosk
-
gummigisla
-
andres08
-
alla
-
gattin
-
eurovision
-
doggpals
-
saxi
-
eysteinn-thor
-
garibaldi
-
killjoker
-
gudrunkatrin
-
gisliivars
-
veravakandi
-
heimirhilmars
-
heg
-
jakobbjornsson
-
joik7
-
kristinnagnar
-
lauola
-
magneak
-
mal214
-
nafar
-
sigrunsveito
-
sigurjonth
-
sighauk
-
slartibartfast
-
sveinni
-
valgerdurhalldorsdottir
-
sparki
-
btryggva
-
keh
-
seinars
-
siggisig
-
sigurjons
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.10.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 187336
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar