6.2.2009 | 09:54
Fjölgar gistinóttum þrátt fyrir hvalveiðar !
![]() |
Gistinóttum í desember fjölgaði um 10% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nafnið litla Moskva hefur þannig loðað lengi við Norðfjörð/Neskaupstað sem var "austasti og rauðasti bærinn á landinu bláa". Þar var ríki vinstri manna eins og Lúðvíks Jósepssonar ofl góðra manna sem settu með afgerandi hætti spor í samtímann.
Gömlu "kommarnir" heima á Norðfirði litu á það sem mikilvægasta verkefni stjórnmálanna að allir hefðu vinnu enda væri atvinna fyrir alla forsenda fyrir að fólk gæti skapað sér góð lífsgæði. Vonandi verður það sami fókus hjá þessari ríkisstjórn sem og þeirri sem tekur við eftir kosningar. Núverandi ríkissstjórn setur sig uppá móti öllum frekari uppbyggingu á álverum, sem skapa hundruðum manna atvinnu. Þannig lofar byrjunin ekki góðu.
Hvað sem því líður þá er það skemmtileg tilviljun að sama dag og Norðfirðingafélagið í Reykjavík heldur sólarkaffið sitt þá tekur fyrsta vinstri ríkisstjórn í 18 ári við völdum !
![]() |
Stjórnarskiptin vekja athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.2.2009 | 23:06
Sorglegt af Jóhönnu!
Björn Bjarnason hefur verið starfsamur ráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir hefur einnig verið starfsamur ráðherra, alltaf þegar hún hefur verið ráðherra. Bæði eru fagmenn og ég ber mikla virðingu fyrir þeim báðum.
Ef Jóhanna hafði þörf fyrir það að sparka í einhvern af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, þá hefði hún gert betra val með því að velja einhverja aðra en Björn Bjarnason. Því var þetta sorglegt af henni. Björn hefur verið starfsamur ráðherra og einn albesti fagmaður sem hefur verið ráðherra á Íslandi síðustu áratugina. Sama má segja um Jóhönnu sem á mikið verk fyrir höndum.
Jóhanna Sigurðardóttir er 67 ára á þessu ári og Björn er 65 ára á þessu ári. Væntanlega er þetta því þeirra síðasta kjörtímabíl. Bæði eru afburðarstjórnmálamenn og vonandi koma nýjir þingmenn á næsta kjörtímabil sem hafa sömu vinnusemi og fagmennsku og þau tvö.
![]() |
Birni þótti lítið leggjast fyrir Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
20.1.2009 | 21:39
Ekki í mínu nafni !
Ómar Ragnarsson marseraði á sínum tíma með 10-15 000 manns niður Laugarveginn og mótmælti Kárahnjúkavirkjun. Það voru margfalt öflugri mótmæli og öfugt við þessi læti við Alþingi í dag, þá voru mótmæli hans eðlileg mótmæli þar sem fólk kom sjónarmiðum sínum á framfæri. Í framhaldi bauð Ómar fram til Alþingis enda taldi sig eiga mikið inni eftir að hafa fengið víðtækan stuðning í mótmælagöngu sinni. Allir vita hvernig það fór, hann náði ekki kjöri, þrátt fyrir víðtæka samstöðu í mótmælagöngu sinni.
Þetta voru 1000-2000 manns eða brotabrot af þeim fjölda sem Ómar Ragnarsson fékk með sér á sínum tíma. Þessir mótmælendur tala ekki fyrir hönd þjóðarinnar og tala sannarlega ekki í mínu nafni. Það er í góðu lagi að mótmæla, það er hluti af okkar lýðræðislega rétti, en svona framferði eins og viðgengst í dag er engum til góðs
Það er mikilvægt núna ríkisstjórnin haldi sjó og klára sína vinnu og svo verði kosið þegar kjörtímabilinu er lokið. Bæði tími, fjármunir og vinna er betur varið í annað en kosningabaráttu eins og ástatt er í þjóðfélaginu.
![]() |
Enn mótmælt við þinghúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2009 | 13:16
Mikilvægt mál.
Upphaflega ráku umhverfisverndarsamtök þann áróður að það þyrfti bjarga hvölum frá útrýmingu. Í dag snýst þetta um eitthvað allt annað, s.s að hvalir séu svo gáfaðir að ekki megi drepa þá og að hvalir eigi bara að fá að vera í friði í höfunum og höfin eigi að vera griðland þeirra go jafnvel að það sé svo erfitt að hafa stjórn á veiðum að betra sé að sleppa því að veiða osfrv. Auðvitað er þetta allt rökleysa, en þetta eru ríkjandi viðhorf víða erlendis.
Meinsemdin í þessu öllu er einmitt að almenningsálitið úti í heimi er á móti hvalveiðum. Til að koma veiðum á og til að skapa sátt um það þá þarf að breyta almenningsálitinum sem umhverfissamtök hafa fóðrað í áratugi á röngum upplýsingum og þ.a.l. byggir almennningur erlendis sínar skoðanir á röngum forsendum. Það er ljóst að íslensk stjórnvöld og hagsmunasamtök hér á landi hafa staðið sig illa í að kynna og verja málstað hvalveiða. Maður spyr af hverju er ekki kynningar bæklingar um hvalveiðar, (Factsheet) í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir ferðamenn sem koma til landsins? Af hverju birtast ekki heilsíðu auglýsingar í erlendum blöðum um staðreyndir um hvalveiðar ? Af hverju heyrir maður ekkert um vinnu íslenskra sendiráða í að kynna málsstað hvalveiða erlendis ? Hvað er gert til að kynna málstað hvalveiða erlendis??
Það eru einföld og efnisleg rök fyrir því að við eigum að nýta hvalstofna eins og aðrar auðlindir. Til þess þarf að breyta almenningsáliti erlendis og það kostar skipulagða vinnu. Stjórnvöld og hagmunaaðilar þurfa að hafa virk samskipti við náttúruverndarsamtök erlendis, nokkuð sem gæti breytt þeirra skoðun á hvalveiðum sem yrði mikilvægt skref. Slík vinna er ekki í gangi og hefur ekki verið. Það virðist lítið sem ekkert vera í gangi annað en að íslenskir fulltrúar fara á þing Alþjóðahvalveiðiráðsins og þar virðist lítið gerast.
Hvalir eru hluti af auðlindum hafsins og ber að nýta á sjálfbæran hátt eins og aðrar auðlindir hafsins. Til þess þarf að skapa sátt um veiðarnar og því miður er langt í land með að það náist og þar stendur uppá stjórnvöld og hagsmunaaðila í sjávarútvegi.
![]() |
Segir að taka verði ákvarðanir í hvalamálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.1.2009 | 20:48
Foreldrajafnrétti og launajafnrétti !
Ég hef oft skrifað um þetta áður en góð vísa er aldrei of oft kveðin.
Á meðan konur bera meiri ábyrgð á uppeldi barna og ábyrgð á heimili þá verður launamunur kynjanna viðvarandi ! Er samfélagið og konur tilbúnar að koma á foreldrajafnrétti? Ég er hreint ekki viss um það.
Munur í foreldraábyrgð kynjanna er almennur, bæði þegar foreldrar búa saman en mestur þegar foreldrar búa ekki saman. Það eru um 14.000 mæður sem búa ekki með barnsfeðrum sínum, en þær hafa lögheimili um 20.000 barna hjá sér, þ.e. barna yngri en 18 ára. Þær bera þ.a.l. mesta ábyrgð á uppeldi þeirra og hafa stöðu, skattalega og félagslega sem foreldri og einstætt foreldri ef þær eru ekki í sambúð með nýjum maka. Það eru um 12.000 feður sem greiða meðlög með þessum 20.000 börnum og flokkast þeir skattalega sem barnlausir einstaklingar ef börn þeirra hafa ekki lögheimili hjá þeim. Trúlega er kynbundinn munur hvergi meiri en í þessum málaflokki, sem telur 26.000 foreldra eða um 16% af vinnnandi fólki á Íslandi. Mismunur í foreldraábyrgð kynjanna í þessum hóp skapar þeim mjög ólíka stöðu á vinnumarkaði. Eðli málsins samkvæmt er þessi hópur á fyrri hluta síns starfsferils þar sem kjör þeirra til langframa eru oft mótuð.
Allar stjórnvaldsaðgerðir sem jafna foreldraábyrgð skapar báðum kynjum sömu forsendur til sóknar á vinnumarkaði.
Foreldrajafnrétti og launajafnrétti er endurspeglun af hvort öðru.
![]() |
Karlar axli ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2009 | 14:30
Glópagull.
Annað kvöld er söngvakeppni Sjónvarpsins. Hér á sömu skrifstofu og ég starfar Einar nokkur Oddsson, sérfræðingur í efnavöru. Hann er með lagið GLÓPAGULL í keppninni annað kvöld.
Einar er ekki bróðir Seðlabankastjóra, þó báðir séu músíkalskir og hæfileikaríkir.
Lagið Glópagull fær mitt atkvæði annað kvöld.
Einar oddsson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2009 | 13:40
Dómsmálaráðherra Frakklands brýtur Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna !
Hér er klassískt dæmi þar sem móðir ruglar saman sínu einkalífi annarsvegar og rétt barns hinsvegar.
Í 7. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur:
Barn skal skráð þegar eftir fæðingu og á það frá fæðingu rétt til nafns, rétt til að öðlast ríkisfang og eftir því sem unnt er, rétt til að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar þeirra.
Dómsmálaráðherra Frakklands er því freklega að brjóta rétt barnsins til að þekkja báða foreldra sína, þar sem það er hægðarleikur að feðra barnið. Ef fleiri en einn maður koma til greina þá getur DNA próf skorið úr um rétt faðerni.
Réttur barnsins til að vera rétt feðrað er mikilvægari en réttur konu til að segja ekki frá því hjá hverjum hún sængaði.
Dómsmálaráðherra Frakklands ætti að skammast og segja af sér.
![]() |
Barnsfæðing vekur umtal í Frakklandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.12.2008 | 10:26
ÞÖRF KYRRÐARSTUND Í JÓLAUNDIRBÚNINGNUM !
Þann 20. desember verður Bænastund með Sr. Svavari Stefánssyni í Fella og Hólakirkju kl. 17.00. Þessi bænastund var fyrst haldin árið 2004 þegar minnst var að 30 ár voru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað. Það er ávallt hollt í jólaundirbúningnum að eiga kyrrðarstund með Norðfirðingum og öðrum.
Endilega látið vini og kunningja að austan vita af þessum viðburði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 09:19
Áfram Lúðvík !
Ég skil nú ekkert í þessum fréttum. Lúðvík er Eyjapeyi, skipstjórasonur og eins og flestir sem aldir eru upp við sjávarsíðuna þá eru hafnir og bátar eitthvað sem vekur áhuga. Lúðvík er með sterkari þingmönnum á Alþingi og það er þörf á hans kröftum þar. Það er líka þörf á að blaðamenn skilji kjarnan frá hisminu í sínum fréttaflutningi. Það að hann lenti um borð í þennan bát er alls engin frétt.
![]() |
Stutt en söguleg sjóferð Lúðvíks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
-
raggig
-
eyleifosk
-
gummigisla
-
andres08
-
alla
-
gattin
-
eurovision
-
doggpals
-
saxi
-
eysteinn-thor
-
garibaldi
-
killjoker
-
gudrunkatrin
-
gisliivars
-
veravakandi
-
heimirhilmars
-
heg
-
jakobbjornsson
-
joik7
-
kristinnagnar
-
lauola
-
magneak
-
mal214
-
nafar
-
sigrunsveito
-
sigurjonth
-
sighauk
-
slartibartfast
-
sveinni
-
valgerdurhalldorsdottir
-
sparki
-
btryggva
-
keh
-
seinars
-
siggisig
-
sigurjons
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 186885
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar