Kreppan !

Það er litlu hægt að bæta við allt krepputalið í samfélaginu, en ég fékk þetta sent. 

 

Á svörtu loftum heyrist óp

frá hárprúða  Oddssyni.

Hann sem áður velmegun skóp

á nú fá vini.

 

Landinn er í kreppuvæl

þunglyndinu að þjóna.

Leysum nú hnútinn með stolti og stæl

þjóðinni til sóma.


Góð niðurstaða hjá Jafnréttisstofu.

Það er full ástæða að fagna þessari niðurstöðu Jafnréttisstofu.  Ég skrifaði um þessi mál þann 15. mai sl á alþjóða degi fjölskyldunnar.   Greinin heitir 15. mai er Fjölskyldudagur Sameinuðu þjóðanna. Þema 2008: Feður og fjölskyldur; ábyrgð og áskoranir.  Þar sagði ég m.a.

Er trúfélag móður merkilegra en trúfélag föður ?

Flestir íslendingar eru í sama trúfélagi og þannig lendir barn sjálfkrafa í trúfélag foreldranna.  

Það  fjölgar aftur á móti foreldrum sem ekki tilheyra sama trúfélagi.  Í lögum  nr 108/1999 segir “8.gr:2.mgr. Barn skal frá fæðingu talið heyra til sama skráða trúfélagi og móðir þess.”?   Hér er trúfélag móður gert rétthærra undir höfði en trúfélag föður.   

Væri ekki eðlilegra að barn, sem ætti foreldra í ólíku trúfélagi,  fengi uppfræðslu um bæði trúarbrögðin og myndi svo seinna velja sjálft hvaða trúfélagi það vildi tilheyra?  


mbl.is Sjálfvirk skráning í trúfélög andstæð jafnréttislögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalkjöt góður kostur.

Þegar svona fréttir berast þá styrkir það enn betur þá skoðun margra að brýnt sé að nýta hvali og neyta kjötsins af þeim.   Sjávarútvegsráðuneytið hefur sannarlega verk að vinna að koma aftur á fót hvalveiðum og vinna þeim málstað fylgis á alþjóðavettvangi og vinna hvalafurðum markaði.  Síðan má skrifa lærða grein hvað íslensk stjórnvöld og hagsmunasamtök hafa staðið sig illa í því að kynna málsstað hvalveiða á alþjóðavettvangi.hvalur


mbl.is Funda vegna írsks svínakjöts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sól á Íslandi.

Verktakar eru að segja upp fólki og hundruðir einstaklinga hafa misst vinnuna.  Verktökum vantar verkefni til að geta haldið sínu hæfa starfsfólki.  Börn horfa uppá foreldra verða atvinnulausa.

Það er sérstakt að hugsa til þess að ekki er langt síðan Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álvers í Straumsvík.  Í miðju góðærinu voru álver ekki nógu fínn vinnustaður fyrir marga.    Það var á köflum talað niðrandi um þau störf sem eru í álverum.  Ef stækkun álvers í Straumsvík væri núna í gangi þá væru verktakar trúlega að vinna við það og færri einstaklingar að missa vinnuna.

Það er mikil blessun fyrir land og þjóð að ráðist var í gerð Kárahnjúkavirkjunar og byggt álver á Reyðarfirði.  Sú framkvæmd hefur haft mikil og varanleg jákvæð áhrif, ekki síst á Austurlandi, þar sem Alcoa er orðinn stærsti vinnuveitandi fjórðungsins.

Það er full ástæða að hrósa ríkisstjórninni fyrir þessar aðgerðir sem kynntar eru í þessari frétt.  Það að standa vörð um atvinnulífið og fara í mannaflsfrekar framkvæmdir skapar fólki atvinnu og það er forsenda til að ná aftur stöðugleika.  

Nú eru einnig sóknarfæri fyrir andstæðinga virkjana og álvera að koma fram með hugmyndir um aðra atvinnuuppbyggingu.

Ef allir leggjast á árarnar þá verður aftur "Sól á Íslandi".


mbl.is Bjarga á fyrirtækjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Munur í foreldra- og heimilisábyrgð orsakar launamun kynjanna !

Á meðan konur bera meiri ábyrgð á uppeldi barna og ábyrgð á heimili þá verður launamunur kynjanna  viðvarandi !  Er samfélagið og konur tilbúnar að koma á  foreldrajafnrétti?  Ég er hreint ekki viss um það.

 

Munur í foreldraábyrgð kynjanna er almennur, bæði þegar foreldrar búa saman en mestur þegar foreldrar búa ekki saman. Það eru um 14.000 mæður sem búa ekki með barnsfeðrum sínum, en þær hafa  lögheimili um 20.000 barna hjá sér, þ.e. barna yngri en 18 ára. Þær bera þ.a.l. mesta ábyrgð á uppeldi þeirra og hafa stöðu, skattalega og félagslega sem foreldri og einstætt foreldri ef þær eru ekki í sambúð með nýjum maka. Það eru um 12.000 feður sem greiða meðlög með þessum 20.000 börnum og flokkast þeir skattalega sem barnlausir einstaklingar ef börn þeirra hafa ekki lögheimili hjá þeim. Trúlega er kynbundinn munur hvergi meiri en í þessum málaflokki, sem telur 26.000 foreldra eða um 16% af vinnnandi fólki á Íslandi. Mismunur í foreldraábyrgð kynjanna í þessum hóp skapar þeim mjög ólíka

stöðu á vinnumarkaði. Eðli málsins samkvæmt er þessi hópur á fyrri hluta síns starfsferils þar sem kjör þeirra til langframa eru oft mótuð.

 

Allar stjórnvaldsaðgerðir sem jafna foreldraábyrgð skapar báðum kynjum sömu forsendur til sóknar á vinnumarkaði. 

 

Foreldrajafnrétti og launajafnrétti er endurspeglun af hvort öðru.


mbl.is Kynbundinn launamunur 19,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkur að pissa í skóinn sinn.

Þetta er fyrsta ríkisstjórn sem Samfylkingin á aðild að.  Vegna óvæntra heimskreppu í fjármálum, þá urðu verkefni ríkisstjórnarinnar önnur og meiri en búist var við þegar ríkisstjórnin var mynduð.  Þegar þetta áfall reið yfir þá fór Samfylking að mælast í skoðanakönnunum með aukið fylgi en Sjálfstæðisflokkur með minna fylgi.  Þá finnst hluta af Samfylkingu í lagi að hætta ríkisstjórnarsamstarfinu, þ.e. gefast upp úti í miðri á.  Þetta er algerlega óábyrg afstaða þessara þingmanna, sem kannski veitir tímabundna hlýju en verður til langs tíma eins og að pissa í skóinn sinn.   Nú ríður á forystuhæfileika Ingibjargar hvort hún haldi hjörðinni saman og þau haldi ótrauð áfram þeirri vinnu sem er í gangi eða hvort þing verði rofið og boðað til kosninga.  Ábyrgð hennar er mikil.  Landið þarf staðfasta stjórn en ekki nýjar kosningar þar sem fyrst verða bræðra og systravíg í prófkjkörum og svo hörð kosningabarátta. Öll sú vinna sem í slíkt færi væri betur varið í að vinna á efnahagskreppunni.
mbl.is Stjórnarsáttmáli heyrir sögunni til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

40 ára afmæli Norðfirðingafélagsins.

Norðfirðingafélagið hélt uppá 40 ára afmælið þann 13. nóv sl. í Fella og Hólakirkju.  Það var mjög góð mæting.  Myndir frá tónlistarhátíðinni má sjá á www.nordfirdingafelagid.is, en set hér einnig nokkrar.

halfdan og stellahlöðversmáriörn oskar  bualfarguðjón og siggi þorbergs

 

lokamyndgg kynnir  danni þorsteinshildur þórðarguðmundur Rafnkell


Mjög gott hjá Jóni !

Þetta er mjög þörf áminning hjá Jóni.  Útspil Samfylkingarinnar eru með ólíkindum.  Það hleypur "kosningagredda" í flokkinn þegar flokkurinn sér ágæta útkomu í skoðankönnunum.  Nær væri að sýna ábyrgð og reyna að stýra þjóðarskútunni í gegnum þennan ólgusjó og koma henni í höfn, Friðarhöfn.  Í stað þess vilja sumir í Samfylkingunni fara að eyða tíma og peningum í kosningar.  Þjóðin þarf ekkert á því að halda og slíkt tal er ábyrgðarleysi.  Þegar kjörtímabilinu er lokið þá geta flokkarnir lagt sín verk í dóm kjósenda, þangað til ber þeim að vinna vinnuna sína, skv því umboði sem kjósendur hafa veitt þeim. 


mbl.is Gagnrýnir Björgvin og Þórunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snemmbær eftirlaun !

Þegar þrengir að á vinnumarkaði þá er í sumum löndum og hjá sumum fyrirtækjum reglur um snemmbær eftirlaun.  Þetta nefnist tidlig pensionering á Norðurlöndunum og early retirement á engilsaxnesku.  Það virkar þannig að einstaklingar sem komnir eru yfir sextugt fara á eftirlaun í stað þess að yngra  fólki sé sagt upp.   Það hlýtur að vera betra fyrir samfélagið að gengið sé frá snemmbærum eftirlaunum frekar en að yngra fólk missi vinnuna með þeirri hættu að það missi fótanna í tilverunni.  Núna er full ástæða að skoða svona ákvæði fyrir íslenskan vinnumarkað, það ætti að vera sameiginlegt hagsmuna mál aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar.  
mbl.is Detta út af vinnumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónotuð íslensk nöfn.

Við landnám var málið fjölskrúðugt af nöfnum.  Hjálagt er listi af nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn ber í dag. 

 

Alfarinn,  Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur, Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð, Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður, Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp, Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik, Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður, Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur, Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur, Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar, Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður, Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir, Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur, Oddkatla, Óblauður, Saxi,  Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur, Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir, Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur, Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni, Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur, Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur, Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja, Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur, Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli, Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta, Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.

Væntanlega þarf ekki leyfi mannanafnanefndar til að skýra eitthvað af ofangreindum nöfnum.   Sum nöfnin eru alls ekki slæm eins og t.d. Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur Þjóðar.   Sum nöfn finnst mér hinsvegar nafnleysa og með neikvæða merkingu.  En eitt sinn var ekki hægt að nota nafnið Mörður, vegna "Lyga Marðar". Nú er það nafn vel þekkt og samþykkt, þannig geta nöfn öðlast samþykki.  Kannski eiga einstaklingar eftir að bera  nafnið Fálki rétt eins og Hrafn og Örn.  Íslenska málið býður uppá mörg ónotuð nöfn og kannski ekki nauðsynlegt að leita langt að nýjum nöfnum.


mbl.is Jón og Gunna heita nú Kári og Sara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 186888

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband