Austfirðingaball á Players 12. apríl 2008.

Hið margrómaða Austfirðingaball verður haldið á Players í Kópavogi laugardaginn 12. apríl 2008. Þessi böll eru einfaldlega bara snilld og eitthvað sem engin má missa af og er dagskráin skotheld að venju.

Borgfirska stórstirnið Magni Ásgeirsson fer þar fremstur meðal jafningja ásamt hljómsveit sinni Á móti sól og væri að æra óstöðugan að hafa fleiri orð um það.

Hljómsveitin Dísel með Eskfirðinginn og Idol-söngvarann Eirík Hafdal í broddi fylkingar.
Þeir félagar hafa verið að koma sterkir inn að undanförnu og voru m.a. í hljóðveri á dögunum og mun afrakstur þess líta dagsins ljós á næstu misserum.

Stórsöngvarinn og norðfirðingurinn Guðmundur R. Gíslason gaf út sína fyrstu sóló plötu á síðasta ári og munum við væntanlega fá að heyra lög af henni í bland við annað efni sem kappinn hefur verið viðriðin í gegnum tíðina.

Og síðast en ekki síst Birna Sif sem stóð sig eins og hetja í Bandinu hans Bubba þar sem hún var austfirðingum til sóma með frammistöðu sinni og er þetta hennar fyrsta opinberlega framakoma eftir keppnina en jafnframt örugglega ekki sú síðasta.


austurglugginn.is er sérstakur samstarfsaðili í ár og má benda á umræðu um Austfirðingaball á spjallinu.

Nú er bara að drífa sig og hafa samband við austfiska vini og vandamenn og skella sér á geggjað Austfirðingaball á Players.


Ps. Það má einnig geta þess að Austfirðingaballið sem bætt var við síðasta haust fór langt fram úr vonum og sennilega eitt fjölmennasta ballið frá upphafi. Þetta verður að sjálfsögðu endurtekið og nú er um að gera að taka frá þriðju helgina í sept. Nánara tiltekið föstudaginn 19. september 2008, dagskráin er óðum að skýrast og hægt að fylgjast með því hér á síðunni en sem sagt Austfirðingaball á Players 19. Sept. 2008.

Ónotuð íslensk mannanöfn ! Frá landnámi og miðöldum.

Í æsku umhverfi mínu var nafnið Eyleif  vanalegt. Svo kemst maður að því að nafnið er mjög fágætt.  Þá veltir maður fyrir sér hvort ekki séu mörg gömul nöfn í íslenskunni fágæt og jafnvel ekki  notuð í dag.  Við smá grúsk þá sýnist manni eins og  við landnám hafi málið verið mjög fjölskrúðugt af nöfnum en svo verið notuð færri nöfn á miðöldum en á síðustu öld orðið nokkur vakning að nota ný nöfn eða ný gömul nöfn. Hjálagt er listi af nöfnum sem voru notuð á miðöldum og á fyrstu öldum landnáms en enginn ber í dag. 

 

Alfarinn,  Andríður, Auðúlfur,Ásbera, Ásleif, Ásleifur, Ávaldi, Bálki,Bárekur, Bjálfi, Bjolllok,Brattur, Bresi, Brigíð, Brúnmann, Böðólfur, Böggvir, Bölverkur, Dufnall, Fastný, Geirröður, Geitir, Goti, Grenjaður, Grjótgarður, Gufa, Hallaður, Herröður, Hjálp, Hjör, Hjörr, Hneitir, Hrifla, Höggvandill, Járnskeggi, Hrani, Kenik, Kjalvör, Knjúkur, Koltorfa, Kriströður, Kúgaldi, Liður, Maddaður, Mýrún, Mæfa, Nefsteinn, Niðbjörg, Ormhildur, Ópía, Rafarta, Ráðormur, Reginleif, Reistar, Skarfur, Skólastika, Skúfur, Snartur, Stórólfur, Svartkell, Vaði, Vakur, Véfröður, Vilbaldur, Vilgeir, Þjóðar, Þorbeinir, Þórvé, Ögur, Öndóttur, Alrekur, Ármóður, Dufgús, Finnvarður, Gríss, Heinrekur, Hrolleifur, Hrosskell, Hyrningur, Hæringur, Jólgeir, Kaðall, Klaufi, Kleppur, Kolbrandur, Kýlan, Leggur, Ljótólfur, Oddkatla, Óblauður, Saxi,  Sigvör, Skefill, Snærir, Valbrandur, Ægileif, Böðmóður, Fálki, Geirleifur, Grís, Heimlaug, Hlenni, Hróðgeir, Hrútur, Ísröður, Leiðólfur, Óleifur, Ósvífur, Rauður, Rjúpa, Snörtur, Stari, Söxólfur, Þjóðrekur, Þjóstólfur, Þorgestur, Áli, Brúni, Húnröður, Kleppjárn, Klyppur, Naddur, Skúmur, Sölvör, Valþjófur, Vébrandur, Þorljótur, Þraslaug,Ölmóður, Lambi, Otkatla, Þórhaddur, Ásbrandur, Konáll, Tófa, Kjallakur, Kollsveinn, Loðmundur, Refur, Kollur, Órækja, Sámur Sokki, Surtur, Eindriði, Hróaldur, Svertingur, Bótólfur, Þorleikur, Beinir, Hafur, Sveinungi, Gamli, Þorgautur, Ásvör, Kolli, Ásgautur, Svarthöfði, Krákur, Hemingur, Kálfur, Yngvildur, Hallótta, Svartur, Kolþerna, Alleif, Álaug, Broteva/efa, Etilríður, Eyfríður, Elíná, Fabían, Hegri, Ísleikur, Jóríður, Lífgjarn, Munnveig, Oddkell, Rustikus, Túnis.

Væntanlega þarf ekki leyfi mannanafnanefndar til að skýra eitthvað af ofangreindum nöfnum.   Sum nöfnin eru alls ekki slæm eins og t.d. Ásleifur, Bresi, Ávaldi, Goti,Ásbrandur Þjóðar.   Sum nöfn finnst mér hinsvegar nafnleysa og með neikvæða merkingu.  En eitt sinn var ekki hægt að nota nafnið Mörður, vegna "Lyga Marðar". Nú er það nafn vel þekkt og samþykkt, þannig geta nöfn öðlast samþykki.  Kannski eiga einstaklingar eftir að bera  nafnið Fálki rétt eins og Hrafn og Örn.  Íslenska málið býður uppá mörg ónotuð nöfn og kannski ekki nauðsynlegt að leita langt að nýjum nöfnum.


Endurspeglar mun í foreldraábyrgð kynjanna !

Ótrúlegt hvað er fjallað mikið um launamun kynjanna en minna um annan kynbundinn mun.  Langar að benda á hjálagða grein, sem heitir "Launamunur kynjanna og foreldraábyrgð"Launamunur kynjanna er á margan hátt endurspeglun á þeim mun sem kynin bera ennþá á uppeldi barna.  Þetta verður sérstaklega  skýrt þegar foreldrar búa ekki saman.

Foreldrajafnrétti og launjafnrétti mun haldast í hendur.


mbl.is Launamunur kynjanna 15%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðlagsgreiðendur; Útlagar nútímans.

Hver  hefur ekki séð kúrekamyndir, þar sem fógeti auglýsir eftir meintum glæpamönnum með því að hengja plaköt út um alla sýslu.  Á plakötunum stendur "WANTED" og þá  var  einnig stundum "WANTED, dead or alive".   Í  myndunum voru oft hinir eftirlýstu kúrekar sem voru fórnarlömb aðstæðna. Þetta voru útlagar eða "outlaws" eins og það heitir á hinu engilsaxneska máli.

outlaws 

Ennþá er Kaninn  við  sama heygarðshornið.  Nú eru útlagar nútímans ekki ógæfusamir kúrekar heldur  meðlagsgreiðendur.  Í Los Angeles  er nú átak að koma í fangelsi "Top 10" skuldurum meðlaga !   Um það má lesa hér í vefútgáfu Los Angeles Times.   Myndir af þessum 10 ógæfu  mönnum lenda á "FBI's Most Wanted list"  og eru þar í hópi með Osama Bin Laden.  Samkvæmt heimildum eru um 80% af þeim sem skulda meðlög í Kaliforníu einstaklingar sem hafa tekjur við fátæktarmörk eða lægri tekjur og yfir 25% af útistandandi meðlagskröfum eru vextir.   Ætli meðlagsgreiðendur séu ekki bara "niggara 21 aldarinnar".

Þrátt fyrir  að feður og meðlagsgreiðendur hafa átt og eigi fáa formælendur hér á  Íslandi,  þá verður  vonandi umræðan og framkvæmd stjórnvalda aldrei aldrei svona vitlaus hér á landi.   

 


Umboðsmaður Alþingis er ekki óskeikull.

Að öllu jöfnu er talað um embætti Umboðsmanns Alþingis af mikilli virðingu.  Umboðsmaður er ekki bara Tryggvi Gunnarsson, heldur embætti sem hann veitir forstöðu.  Þar starfa a.m.k 5 lögmenn.  Ekki veit ég hver er ráðningarferlið á þessum einstaklingum.  Er gerð t.d. svipuð krafa við ráðningu eins og gerð er við ráðningu  héraðsdómara ?  Eða er bara nægjanlegt að vera lögfræðingur og þannig gerðar sömu kröfur eins og þegar ráðin er fulltrúi hjá embættum Sýslumanna. Hvað sem því líður þá verð ég að segja að það sem ég þekki til embættis Umboðsmanns Alþingis þá veit ég að það, sem frá embættinu kemur, getur verið umdeilanlegt.

Embættið hefur ítrekað úrskurðað að Sýslumönnum sé heimilt að dæma einstaklinga (feður) í aukið meðlag.  Eina forsendan sem liggur þar að baki eru tekjur þess er greiða meðlagið.  Skiptir þá engu máli tekjur þess er þiggur meðlagið. Það skiptir engu máli hversu mikið barnið er hjá meðlagsgreiðenda, það skiptir engu máli hvað það kostar að fá barn til sín. 

Ég þekki dæmi þess að barn sé hjá föður sínum 12 daga í mánuði og faðirinn hafi minni ráðstöfunartekjur en móðir, þ.e. þegar búið er að taka tillit til skattafrádráttar, barnabóta, o.þ.h.  Þessi maður er úrskurðaður í aukið meðlag. Þetta er í raun ekkert annað en eignaupptaka og þetta er blessað af Umboðsmanni Alþingis (mál 4899/2007).  Þessi úrskurður birtist ekki á leitarvef embættisins.Meginþema gildandi barnalaga (76/2003) er að það sem er barni fyrir bestu skuli ráða þegar ákveða á eitthvað um  hag barna.

 

Í gildandi barnalögum er kveðið á um framfærsluskyldu foreldra. sbr 53. gr. „Skylt er foreldrum, báðum saman og hvoru um sig, að framfæra barn sitt. Framfærslu barns skal haga af hliðsjón af högum foreldra og þörfum barns.“  Í 57 gr. segir „Meðlag skal ákveða með hliðsjón af þörfum barns og fjárhagsstöðu og öðrum högum beggja foreldra, þar á meðal aflahæfi þeirra.  

 

Embætti Umboðsmanns Alþingis blessar athafnir framkvæmdavaldsins sem hámarkar fjárstreymi frá meðlagsgreiðanda (föður) til lögheimilisforeldris (móðir) og túlkar það sem bestu hagsmuni  barna.  Þetta opinberar þekkingarleysi embættisins á hvað séu bestu hagsmunir barna og túlkun þeirra á ákvæðum barnalaga sem engan veginn stenst tímans tönn.  

 

Þegar embætti Umboðsmanns Alþingis  er ósammála túlkun Árna Matthiesen um hver sé  hæfastur til að gegna  embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Norð Austurlands,  þá segir það mér ekkert annað en að embættið er ósammála Árna.  Hvað sem er rétt eða rangt í þessu máli þá felst enginn sannleikur í túlkun embætti Umboðsmanns Alþingis. 

 


Suðurdeildin hjá 1964 árganginum frá Neskaupstað.

Þann 27.03.2008 hittumst við 8 stk af gömlu bekkjarfélugunum á Kaffi Victor. Flott og fínn hittingur og er myndin hér að neðan af hópnum.  Frá vinstri. Hjörvar Guðmundsson, Þorsteinn Sigurðsson, Kristín Kristinssdóttir, Gísli Gíslason, Gunnar Þorsteinsson, Sigríður Ósk Halldórsdóttir, Fjóla Waldorf og Sveinn Ásgeirsson.

hittingur 27.03


Hvað með rétt barnanna ?

Það er gleðilegt á margvíslegan hátt að þetta sé að nást í gegn.  En ég velti fyrir mér tvennu

 

a) Hvar eru réttindi barna í þessu?

Í Barnasáttmála Sameinuðuþjóðanna stendur  7. gr":.
1. Barn skal skráð þegar eftir fæðingu, og á það frá fæðingu rétt til nafns, rétt til að öðlast ríkisfang, og eftir því sem unnt er rétt til að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar þeirra."

Þegar börn eru yfirgefin eins og í Kína,þá er ekki hægt að rekja uppruna þeirra og þá hafa foreldrarnir brotið þann rétt sem þau eiga skv 7. gr. En þegar barn er getið með tæknifrjóvgun og fær aldrei að vita hver hinn líffræðilegi föður er, þá er þjóðríki búið að brjóta þennan rétt barnsins.  Ég veit að sum ríki hafa brugðist við þessu og sett það inn að börn getinn með tæknifrjóvgun eigi rétt á að vita hver hinn líffræðilegi föður er þegar þau eru orðinn 18 ára.  Þau eiga engann rétt til erfða eða annað, bara vita hver viðkomandi er og ef það er einhver fjölskyldusaga um t.d. sjúkdóma.

b) Hvar er sambærilegur réttur einhleypra karla?

Ef konur mega fá gjaf sæði til að ganga með barni, þá hlýtur löggjafinn einnig að eiga að setja lög sem skilgreinir rétt einstæðra karla til að fá "leigumóðir" til að ganga með barn, getið með hans sæði.  Annað er mismunur á milli kynja og það er ólöglegt, skv jafnréttislögum og stjórnarskrá Íslands.  Barnið í slíkum tilvikum ætti eins að fá að vita hver hin líffræðilega móðir er þegar barnið er orðin 18 ára

 

 


mbl.is Einhleypar konur í tæknifrjóvgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.1964.is

Kiddi á Sjónarhól bregst ekki. Hann er búinn að útbúa heimasíðu fyrir skráningu á fermingarbarnamótið sem verður á sjómannadaginn í Neskaupstað.  Hver og einn í árganginum fær aðgangs og lykilorð og skráir sig þar.  Einföld og flott síða. 

Húrra fyrir Guðlaugi Þór !

Það er full ástæða til að hrósa Guðlaugi og starfsfólki hans fyrir þarft framtak. Skrifaði um krabbameins mál hér  og vakti athygli á þessum málum.  Þakka ber það sem vel er gert.


mbl.is Karlmenn séu vakandi fyrir krabbameinseinkennum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyleif amma orðið 100 ára í dag !

Eyleif Jónsdóttir amma mín hefði orðið 100 ára í dag.  Hún fæddist að Horni við Hornafjörð og ólst þar upp. Hún kynntist afa, Gísla Bergsveinssyni er hann var á vertíð á Hornafirði.  Þau bjuggu alla sína tíð á Norðfirði.  Þegar afi  lést árið 1971 þá dvaldist ávallt einn af okkur bræðrum hjá ömmu allar götur til 1985 er hún flutti út í Breiðablik, sem eru íbúðir fyrir aldraða á Norðfirði.  Fyrst var það ég og Jóhann sem nutum þeirra forréttinda að búa hjá henni til skiptis og seinna Guðmundur og Eyji.   

Föður afi og amma Eyleifar ömmu hétu Eyjólfur og Guðleif og var hún skírð í höfuðið á báðum.  Í dag bera 3 afkomendur hennar nafnið, en það er Eyleif Björg á Ísafirði, Eyleif Þóra á Álftanesi og Eyleif Ósk dóttir mín.   Ég held að aðeins okkar ætt og ein ætt frá Akranesi noti þetta nafn.  Læt svo fylgja  mynd af ömmu með foreldrum mínum á 80 ára afmæli hennar árið 1988.  Svo er önnur mynd af nöfnu hennar á Goðamótinu á Akureyri.

Eyleif ammaEyleif godamot 2008


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband