Foreldrajafnrétti í Noregi !

Þessi ágæta kona er á móti því að feður fá aukinn rétt til fæðingarorlofs þar sem það skerði sjálfsagðan rétt móður til að vera með sitt barn fyrsta árið.   Í Noregi fá feður 5 vikur en mæður 12 mánuði.  Finnst einhverjum sanngjarnt?? Svona kerfi hefur afgerandi áhrif á frama móður á vinnumarkaði og viðhaldur þannig lauanmun kynjanna.   Ímyndið ykkur móðir sem eignast 3 börn eftir háskólanám á aldrinum 26-36, samaborið við föður á sama aldri.

Það að feður fái jafnan rétt til að umgangast börn sín er jafnréttismál en ekki síður bestu hagsmunir barna.   Rannsóknir sýna að börn sem mynda rík tengsl við báða foreldra spjara sig betur, jafnvel þó foreldrar búa ekki saman.  Fordómar útí foreldrajafnrétti seinkar að launajafnrétti kynjanna náist.

Viðhorf Anniku Huitfeldt opinberar viðhorf margra kvenna er telja sig jafnréttissinna.  Þeim finnst sjálfsagt að beita sértækum reglum til að tryggja að konur séu a.m.k 50% í stöðum og stjórnum í samfélaginu.  Hinsvegar er þessi sami hópur alltaf á bremsunni þegar jafna á rétt barna til beggja foreldra.   Þar er sjálfsagt að konur og mæður ráði áfram og mæður hafi 12 mánaða fæðingarorlof samanborið við 5 vikur fyrir feður.

Fyrir nokkru var jafnréttisráðherra í Noregi Karita Bekkemellen. Hún stefndi að foreldrajafnrétti, bæði með fæðingarorlofslögum sem og að báðir foreldrar bæru sameiginlega ábyrgð á börnum eftir skilnað.   Henni var vikið til hliðar og nú er önnur kona tekin við eftir að innflytjandi millilenti í ráðuneytinu.  Nýja konan, Annika,  er á móti foreldrajafnrétti og það virðist frændum vorum í Noregi þóknanlegt.

Viðhorf Anniken Huitfeldt enduspeglast líka hjá áberandi einstaklingum á Íslandi, sem gefa sig út fyrir að vera jafnréttissinnaða.  Þannig líkti Kolbrún Halldórsdóttir Félagi um foreldrajafnrétti við fótboltafélag á alþingi og framkvæmdarstjóri Jafnréttisstofu hefur sagt að barátta forsjárlausra foreldra sé ekki hluti af jafnréttibaráttunni.  Þannig hafa þeir feður og karlar sem vilja benda á hina hlið jafnréttismála mætt fordómum þeirra sem telja sig eiga þennan málaflokk. 

Á meðan þeir sem telja sig sjálfskipaða málsvara jafnréttis fjalla bara um kvenntréttindamál, þá verður einstreymisloki á umræðunni og umræðan verður áfram í blindgötu. Jafnrétti er gagnvirkur ferill og þá þarf að viðurkenna það og fjalla um það.  Það eru því miður litlar líkur á því á meðan áberandi þingmenn líkja Félagi um foreldrajafnrétti við fótboltafélag og æðsti embættismaður jafnréttimála segir að barátta forsjárlausra sé ekki hluti af jafnréttisumræðunni.

Foreldrajafnrétti og launajafnrétti mun haldast í hendur !


mbl.is Nýr ráðherra í Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fermingarbarnamótið, mæting

Svona er staðan skv því sem ég kemst næst.  Það eru bara tveir búnir að afboða sig en stór hópur á eftir að láta vita hvort þau koma.  Væri gaman að sjá sem flesta.

Búin að tilkynna mætingu:

  • Auðunn Konráðsson Klakksvík, Færeyjum
  • Eysteinn
  • Gunnar
  • Kristín Kristins
  • Jón Einar
  • Gísli
  • Sigga Axels
  • Kristján J. Kristjánsson
  • Sigurjón Antonsson
  • Þorsteinn Sig
  • Fiffi
  • Fjóla Waldorf
  • Sveinn Ásgeirs
  • Bergur Hrólfs
  • Axel
  • Sigga Ósk
  • Beddi
  • Íris
 

Mæta ekki:

  • Jón Finnur
  • Eggert Brekkan
  • Einar Ármanns
  • Tóta Kela.
 

Óvíst hvort þau mæta

  • Bjarni Halldór
  • Þórstína
 

Ekki tilkynnt:

  • Víðir Þór
  • Baddi Óli
  • Hilmar Ægir
  • Halldór Þóris
  • Jón Gunnar
  • Ingvar Hrólfs
  • Raggi Guðmunds
  • Lára Kristins
  • Magga Högna
  • Ingvar Más
  • Sveinbjörg
  • Þórhildur
  • Fúsi
  • Árný
  • Erik Gjöveraa
  • Bryndís Baldurs
  • Kristín Steingrímsdóttir (Danmörk)
  • Högni
  • Hrefna Hjálmarsdóttir (Noregi)
  • Þór Sigurðsson
  • Helga Guðmundsdóttir
  • Óðinn Hauksson
  • Einar Smárason
  • Gunna Hilmars
  • Gunna Sveins
  • Elísabet Grettis
  • Arnfinnur

Fleiri sem vantar?


Sólarakaffi Norðfirðingafélagsins á morgun !

Kl. 15.00 í Fella og Hólakirkju. Meðal efnis:

  • Tónlistaratriði Davíð Samúelsson
  • Upplestur Jón Knútur   Ásmundsson -  Elísabet Karlsdóttir.

NORÐFIRÐINGAR Á SUÐVESTUR HORNINU: FJÖLMENNUM.


Fermingarbarnamót 1964 árgangsins í Neskaupstað.

Þá er það ákveðið að 1964 árgangurinn frá  Neskaupstað heldur uppá 30 ára fermingarbarnamót.  Að sjálfsögðu verður þetta haldið í firðinum fagra fyrir austan um Sjómannadagshelgina.   

Gamlar myndir af árgangnum má skoða hér

Svo væri gott að fólk úr árganginum myndi kvitta í athugasemdir og staðfesta komu eða fjarvistir.

Hlakka til að sjá sem flesta.


Spádómur í fyrirsögninni.

Það er eins og blaðamaður geri ráð fyrir að uppsagnir eigi eftir að verða fleiri, enda sagt "uppsagnir hafnar" og þá er meira í farvatninu.  Hefði ekki allt eins verið hægt að skrifa, "bankar bregðast við breyttum aðstæðum með hagræðingu" e.þ.h.

Það erhægt að tala væntingar í efnahagsmálum upp og niður.  Svona fyrrisögn getur verið hluti af því að tala eða skrifa efnahagsástandið inní kreppu.  Ábyrgð blaðamanna er mikil.


mbl.is Uppsagnir hafnar í bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðfestir fjölda annarra rannsókna !

Allar rannsóknir hníga að því að báðir foreldrar eru ávallt bestu hagsmunir barna. Langar að benda á gamlan link af heimasíðu Félags um Foreldrajafnrétti (áður Félags ábyrgra feðra), en þar er vitnað í fjölda rannsókna sem allar staðfesta það sem þessi sænska rannsókn staðfestir.

Einnig má benda útdrátt af vefnum The Liz Library.  Þar segir  í hnotskurn að að börn tapa aldrei á sameiginlegri forsjá.

“Joint custody and shared parenting have been studied for more than a quarter-century, with the majority of studies indicating significant benefits for children. About a third of existing studies show no difference between joint and sole custody for children's adjustment to divorce. The critical factor appears to be conflict between parents. When parents cooperate and minimize conflict, children do better with shared parenting. If there is significant conflict between parents, however, shared parenting provides no benefits and children do no better (and no worse) than they do in sole custody. This section summarizes some of the research published in the past decade.” [1]

Þegar allt þetta er skoðað þá undirstrikar það mikilvægi þess að frumvarp Daggar Pálsdóttir hljóti brautargengi í þinginu.   Báðir foreldrar eru bestu hagsmunir barna.

mbl.is Pabbar auka hamingjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðfirðingar á Næsta bar í kvöld!

Ég sá í Fréttablaðiðinu í morgun að Jón Knútur Ásmundsson heldur útgáfuteiti á Næsta bar í kvöld klukkan 6 í tilefni af útkomu bókarinnar "Nesk".  Kristinn Pétursson útgefandi bókarinnar kallar hana fyrstu bloggbók á Íslandi.

Það kemur fram í fréttinni að hann er rauðhærður og er með bloggsíðu á vefslóðinni www.raudhausar.com og er forsenda að vera rauðhærður til að geta bloggað þar.  Sniðugur húmor.  Ef ég man rétt þá voru Skagamenn með keppni um rauðhærðasta íslendinginn, þegar þeir halda írska daga hátíðlega.

Í útgáfuteitinu mun Jón Knútur  lesa úr bók sinni og Katrín Oddsdóttir fjalla um blogg.  Þá mun Hlynur Ben spila en hann er líka norðfirðingur.

Fyrir fólk eins og mig og aðra Nobbara, sem hafa búið í aldarfjórðung eða meir fjarri heimahögunum, þá er Jón Knútur sonur Ása rauða og Hildar ljósu.  Hlynur er sonur Benna og Röggu Hjálmars.

Það er full ástæða fyrir Norðfirðinga, Fjarðabyggðarbúa og alla austfirðinga til að mæta.


Gat hún ekki haldið sambandi við hann í fangelsinu?

Það er ekkert nýtt að einstaklingur sem skortir  föðurímynd í uppeldinu lendir frekar afvega í lífinu.  Það er eins og Lohan hafi misst samband við föður sinn þegar hann lenti í fangelsi vegna ógæfu sinnar.   

Á heimsvísu er kynbundinn munur á því hvernig feður og mæður eru meðhöndluð þegar þau lenda í fangelsi.  Ef móðir lendir í fangelsi þá er unnið að því að tryggja og treysta sambandið við barnið, jafnvel fær móðirin að hafa barnið með sér í fangelsi.   Feður lenda bara í fangelsi og oftar en ekki slitnar þá sambandið við börnin og jafnvel talið best að börnin hafi ekkert samband.   Í hjálagðri færslu er fjallað um hvernig þetta er í Bretlandi.    Þar kemur m.a. fram að börn sem áfram njóta samvista við föður sinn, einnig þegar hann er í fangelsi spjara sig betur.  


mbl.is Skorti föðurímynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forvarnir í heilbrigðismálum !

Það má hrósa Alþingi Íslendinga fyrir að ræða af alvöru um að setja á fót skimun fyrir blöðruháls og ristilkrabbamein.   Á Íslandi er regluleg krabbameinsleit fyrir bæði brjósta- og leghálskrabbamein.  Ég velti fyrir mér af hverju er ekki reglubundin skimun til að greina fleiri sjúkdóma ?   

 

Í töflu hér að neðan má sjá að á 10 ára tímabili eru margir sjúkdómar sem leggja  jafn marga eða fleiri en þeir sjúkdómar, þar sem stundaðar eru regluleg krabbameinsleit.

 
Dánarorsakir1986-2005
Eyðni26
Illkynja æxli í leghálsi, legi og  eggjastokki493
Brjóstakrabbamein755
Lagnvarandi alkóhólismi50
Flutningaóhöpp.662
Sjálfsvíg648
Blöðruhálskirtill854
Ristill, endaþarmur964
Heimild.  www.hagstofa.is 

Eyðni.

Trúlega er það virkum forvörnum að  þakka að þessi sjúkdómur varð ekki að faraldri.  Einnig hafa forvarnir aukið upplýsingar um sjúkdómin og þar með minnkað vanþekkingu og fordóma.

 

Æxli í leghálsi, legi og eggjastokkum og brjóstakrabbamein.

Konur fara reglulega í skimun fyrir bæði brjóst og leghálskrabbameini.  Þannig er mörgum lífum bjargað og oft er baráttan við illvígan sjúkdóm hafin mun fyrr sem eykur líkur á bata.

 

Langvarandi alkóhólismi.

Umræða og upplýsingar ásamt virku starfi SÁÁ hefur skilað samfélaginu ómældum forvörnum og hjálpað hundruðum einstaklingar að ná fótfestu til að lifa með þennan illvíga sjúkdóm. 

 

Flutningaóhöpp.

Við sjáum reglulega í auglýsingar og uppstillt bílflök  við þjóðvegin o.s.frv.  Þetta hefur ríkt forvarnargildi og  bjargar árlega mörgum frá að lenda í alvarlegum bílslysum þar sem afleiðingar geta verið ýmist andlát eða örkuml.

 

Sjálfsvíg.

Það eru svipað margir sam hafa fallið fyrir eigin hendi á síðutu 10 árum og hafa látist í umferðarslysum.  Hér erum við trúlega nánast á byrjunarreit, lítið sem ekkert forvarnarstarf og þögnin er ennþá þung um þennan málaflokk.

 Blöðruhálskirtill.

Það eru fleiri  karlmenn sem látast úr krabbameini í blöðruhálskirtli en konur úr brjóstakrabbameini.  Það er rík þörf á að komið verði á fót reglubundinni krabbameinsleit, eins og tíðkast við leit að brjósta og legháls krabbameini.

 

Ristill og endaþarmur.

Á 10 ára tímabili látast tæplega 1000 manns og það eru bæði konur og  karlar.   Það er rík þörf  að koma á fót reglubundinni krabbameinsleit fyrir þennan sjúkdóm. 

  Niðurlag.

Það er mikilvægt að samfélagið setji á fót krabbameinsleitarstöðvar til að skima  krabbamein bæði í blöðruhálsi,  ristli og endaþarmi.  Við að greina sjúkdóma  á frumstigi, þá aukast líkur á bata.  Færri einstaklingar þurfa að fara í miklar og erfiðar krabbameinsmeðferðir. Að greina sjúkdóminn snemma gerir baráttu sjúkllingsins auðveldari og sparar jafnframt hinu opinbera fjármuni við erfiðar og langvinnar lækningameðferðir.  Þeir fjármunir eru betur nýttir í forvarnarstarf.


Tími Þorrablóta.

Um síðustu helgi fórum við hjónin á þorrablót hér á Álftanesi. Það var margt um mannin, flott skemmtiatriði og Sigga Rósa og Rikki stjórnuðu þessu af mikilli list.  Svo var flott ball en þetta var haldið í íþróttahúsinu. Þetta var frábær skemmtun.  Lions klúbbur Álftaness og Kvennfélagið á Álftanesi eiga heiður skilin fyrir að halda árlega frábær þorrablót.

Nú erum við hjónin stödd á æskuslóðunum austur í Neskaupstað.  Hér ríkir vetur rétt eins og á höfuðborgarsvæðinu.   Alltaf fallegt á Austurlandi, sama hvort það er sumar eða vetur.   Á morgun er kommablótið, þ.e. Þorrablót Alþýðublandalagsins í Neskaupstað og á það erum við að fara !!!  Já Alþýðubandalagið í Neskaupstað er víst til og heldur eitt þorrablót á ári og það þarf ekkert flokksskírteini þar inn !  Ég býst við að það sé ekki á mörgum stöðum á landinu þar sem fólk kemur með þorramat í trogi, þ.e. hópar um hvert trog, en sá siður lifir góðu lífi hér og er skemmtileg stemmning.   Svo er þetta líka flöskuball eins og í denn.  Ég hef ekki farið á þorrablót í Neskaupstað síðan 1982 svo þetta verður spennandi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband