Neskaupsstað og Neskaupstað

Æ,æ, sem burtfluttum Norðfirðing finnst manni alltaf dapurt þegar Neskaupstaður er skrifaður með tveimur SS-um, þ.e. NeskaupSStað.  Alveg sérstaklega finnst manni það miður þegar hið hávirðulega Morgunblað gerir það.  Maður hefur alltaf  talið að Morgunblaðið sé skrefi framar en aðrir fjölmiðlar í mörgu þ.m.t stafsetningu.
mbl.is Kennsla fellur niður í Neskaupstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margir karlar eiga líka í vanda.

Umræða um ofbeldi gengur oftast út á að konur séu fórnarlömb og karlar gerendur í nánast öllu ofbeldi.    Ég vil benda á vísindagreinasafn sem fjallar um að konur eru minnst jafn ofbeldisfullar  og  karlar, þeirra ofbeldi er þó öðruvísi.   Þar segir í samatekt.

#This bibliography examines 209 scholarly investigations: 161 empirical studies and 48 reviews and/or analyses, which demonstrate that women are as physically aggressive, or more aggressive, than men in their relationships with their spouses or male partners.  The aggregate sample size in the reviewed studies exceeds 201,500. #

Skv öðrum alþjóðlegum rannsóknum eru oftast báðir aðilar ofbeldisfullir, þegar ofbeldi er í parasamböndum. Um það má lesa hér.  

Það er eins með umræðuna um ofbeldi eins og umræðuna um jafnrétti. Hún er einhliða, stillir konum upp sem fórrnarlömbum og körlum sem gerendum.   Sú mynd er röng.

Í Noregi er til karlaathvarf sem fjallar um vandamál karla í samfélaginu.   Heimasíða þess er http://www.reform.no/    Ég trúi því vel að þörf væri fyrir karlaathvarf á Íslandi. 


mbl.is Karlaathvörf yfirfull í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helgi Seljan og Sigmar Guðmundsson góðir yfirheyrslu fréttamenn !

Ég fylgdist með Kastljósi í kvöld, þar sem Helgi Seljan tók þá Óskar Bergsson og Ólaf F Magnússon á beinið.   Helgi er góður yfirheyrslu fréttamaður raunar held ég bara sá besti í þessu ásamt Sigmari Guðmundssyni. 

Það er ekki sama hvernig menn eru yfirheyrðir  Mér finnnst þeir tveir ná að "mjólka" þær upplýsingar sem þarf út úr þeim sem þeir yfirheyra, þeir stjórna viðtalinu og þeir eru ekki dónalegir.  Þetta er hárfín lína.  Nútíma fréttamenn báðir.


Áfram Álftanes !

Nú gerist það í annað sinn að Álftnesingar mótmæla deiliskipulagi fyrir miðsvæði Álftanes. 

Á síðasta kjörtímabili var mótmælt.  Kröftug mótmæli en mótmælin voru almenn og  huglæg, þ.e. að hús væru ljót, steinkubbaldar og skipulagið uppfylti ekki væntingar og mótmælendur vildu fá að velja um fleiri kosti. 

Nýr meirihluti komst til valda og  var gildandi skipulagi hreinlega hent, þrátt fyrir að 49,9% af búum væru á bakvið það.  Í gang fór löng og dýr vinnusyrpa, sem hefur kostað mikið, raunar mjög mikið og trúlega hundruði milljóna þegar allt er tekið saman.  Um fjármála óreiðu meirihlutans mætti skrifa lærða grein.

Hönnun á nýju deiliskipulagi á miðsvæði Álftaness byggð á vinningstillögu Gassa virtist oft vera einleikur bæjarstjóra með arkitektum.   Að auki hefur sjálfumgleði meirihlutans hefur verið mikil, fyrst var sagt að nú væri búið að búa til sátt um miðbæjarskipulagið, svo var sagt að afmarkaður hópur væri óánægður.   Mótmælin eru víðtæk og trúlega mun almennri nú en á síðasta kjörtímabili, enda mun minni vinna sem nú fór fram við að safna undirrskriftum sem þó skilaði 700 undirrskriftum.  Málflutningur Á lista um sátt eða afmarkaðan óánægjuhóp er því hreinlega röng.

Að þessu sinni snúast mótmælin um ákveðna þætti í skipulaginu sem lýtur að umferðaröryggi öryggi barna á Álftanesi.  Mótmælin nú er því hlutlæg með rökum ólíkt huglægum mótmælum á síðasta kjörtímabili.

Það er mikilvægt að bæjarstjórn, meiri- og minnihluti, finni sameiginlega leið að lausn útúr þessum málum.  Forsenda fyrir því er að í bæjarstjórn verði slíðruð sverðin og bæjarstjóri og meirihlutinn komi niður úr þeim fílabeinsturni sem þau virðast hafa verið í og vinni saman að lausn á skipulagsmálum bæjarins.  HAGSMUNIR ALLRA ÍBÚA ER AÐ VEÐI og FULLTRÚAR ALLRA ÍBÚA EIGA AÐ KOMA AÐ MÁLUM MEÐ BEINUM HÆTTI.


mbl.is Álftnesingar mótmæla nýju deiliskipulagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hending eftir dóttir mína

Ég var að taka saman blöð sem dóttir mín hafði krotað á.  Þar var á einu blaði eftirfarandi.

"Írak

réðst á

Vestmannaeyjar

Þá dó máfur "

Kannski er þetta öll hættan sem vesturlöndum hefur  stafað af Írak.


Gengur vel hjá þeim gamla í meðferðinni.

Hér fyrir nokkrum vikum sagði ég frá veikindum föður míns.  Það er skemmst frá því að segja að hann var mjög veikur.  Hann fór í stóma aðgerð sem gekk vel og svo hefur hann verið í lyfjagjöf og komið til þess á tveggja vikna fresti.   Ekki spillir að hafa frábæran læknir Friðbjörn Sigurðsson og sama er að segja um hjúkrunarkonuna sem sér um lyfjagjöfina, sem og allt starfsfólk LSH.  Það er marktækur munur á útliti hans og heilsu og það er greinilegt að lyfin hafa virkað vel á meinin.  Svo þegar hann kemur suður og annað hvort fussar yfir veðrinu eða umferðinni hér í höfuðborginni, þá er það ekkert annað en skýr vísbending að hann er að ná fyrri heilsu.


Kaldsjávarækjan hefur misst forystuna í Englandi.

Fyrir utan allskonar sætindi og jólavörur þá eru mandarínur trúlega ein af þeim fáu hollu neyslu vörum sem aðeins er í búðum fyrir jól.  Áður voru epli og appelsínur svona jólavara en er í dag hversdagsvara.   Eitt sinn var pilluð kaldsjávarrækja svona jóla vara í Englandi.   “Prawn cocktail” var hluti af af þeirra jólastemmningu rétt eins og hjá okkur að fá mandarínur í búðir.  Nú er pilluð rækja búin að vera í mörg ár eins og epli og appelsínur þ.e. hverdagsvara.hz1l3147_640  

 

Breski markaðurinn hefur tekið um 50% af pillaðri rækju úr Atlantshafinu. Á síðustu árum fóru að koma ýmsar aðra rækjutegundir frá fjarlægum löndum inná breska markaðinn.    Oft eru þetta stærri rækjur en kaldsjávarrækjan, jafnvel með sterkari lit.  Nú er ég ekki hlutlaus en almennt finnst mér heitsjávarrækjur ekki eins bragðgóðar og pilluð rækja úr Atlantshafinu. 

Jólin 2007 í Englandi eru trúlega  fyrstu jólin þar sem  heitsjávarrækja er ráðandi í auglýsingum frá súpermörkuðunum en ekki okkar kaldsjávarrækja.   Forysta kaldsjásvarrækju, sem hefur staðið í áratugi er því lokið á breska markaðnum.  Með heitsjávarrækju kom alls konar vörunýjungar sem hentugra er að gera á stærri rækjum.

seafood party pack

 

Nú er samkeppnin ekki endilega innbyrðis á milli þjóðanna  eða framleiðendanna sem framleiða rækju úr Norður Atlantshafi, heldur er samkeppnin ekki síður almennt  við rækju sem framleidd er í Asíu og þá oft framleidd í eldi.  Sú rækja eykur markaðshlutdeild sína hratt á okkar hefðbundnu mörkuðum.

 

heitsjávarrækja  Samherji lokar rækjuverksmiðjunni Strýtu.Nú var í fréttum að Samherji er hættur að framleiða pillaða rækju.  Áður höfðu mörg öflug fyrirtæki eins og Eskja, Sigurður Ágústsson, Hraðfrystihúsið Gunnvör og Þormóður Rammi hætt framleiðslu á pillaðri rækju.  Ýmis önnur fyrirtæki í greininni höfðu orðið gjaldþrota eða hætt starfsemi. 

Trúlega heldur framleiðendum á kaldsjávarrrækju áfram að fækka þar sem að samkeppnin verður áfram hörð, bæði innbyrðis en ekki síst við ýmsar tegundir af rækju frá fjarlægum löndum eins og Asíu. 


mbl.is Rækjuvinnslu hætt á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fathersdirect skiptir um nafn.

Þekktustu  feðrasamtök í Bretlandi, Fathersdirect hefur skipt um nafn og heitir núna Fatherhood Institute.   Ástæðan fyrir nafnabreytingunni ku vera sú að ýmsir í stjórnkerfinu  ytra  fannst nafnið Fathersdirect væri of harðskeytt, og direct væri í anda "direct action",  en félagsskapurinn starfar á þveröfugan hátt, þ.e. vinnur með stjórnmálamönnum og stjórnkerfinu.  Félagsskapurinn fjallar um hlutverk feðra í nútíma samfélagi á víðasta hátt.  Forsjárlausir feður eru því aðeins hluti af því sem þeir fjalla um.  En önnur samtök í Englandi eins og Families Needs Fathers fjalla nær eingöngu um þau mál og svo eru róttæk samtök eins og  Fathers 4 justice sem seinna hétu Real fathers for Justice fjalla um forsjárlausa.

Það er því ekki bara Félag  ábyrgra feðra, nú Félag um foreldrajafnrétti,  sem skiptir um nafn í takt sem hluti af ímyndarátaki.


Afmælisdagur Eyja bróðir.

Dagurinn 5.janúar skipar alltaf sérstakan sess, þar sem að þetta var fæðingardagur Eyja bróðir.   Eyleifur Þór fæddist 5. janúar árið 1973 en lést 12. febrúar árið 1989.  Hann hefði því orðið 35 ára í dag.  Minningin um góðan dreng lifir.  eyji bróðir

 

 

 


Áramót 2007/2008

Mynd000Um leið og við sendum öllum vinum og vandamönnum bestu áramótakveðju, þá hlökkum við til að vera með Ragga og Birnu og fjölskyldu að Eikarási 3, Garðabæ í kvöld.  Hjálögð mynd er af þeim þegar yngsti fjölskyldumeðlimurinn var skírður, Daníel Darri.  Sr.Hans Markús, nágranni þeirra skírði

 

Svo er hér ein mynd frá gamlárskveldi, þegar hópurinn góði að Eikarási 3, skemmti sér yfir  skaupinu.

Jól og áramót 2007 027


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 186894

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband