Bhutto fjölskyldan verður að goðsögn í Pakistan !

Það er ekki einungis  að Benazir Bhutto falli í Pakistan heldur var faðir hennar Ali Bhutto tekinn af lífi eftir mjög umdeild réttarhöld árið 1979.  Ali Bhutto var forseti Pakistans frá 1971 - 1973 og forsætisráðherra frá  1973-1977. 

Hershöfðinginn Muhammed Zia -ul Hag, gerði byltingu og setti á fót sýndarréttarhöld og í framhaldinu var faðir hennar tekinn af lífi.  Eftir aftöku hans árið 1979 þá fór Benazir Bhutto að verða virk í stjórnmálastarfi.

Nú þegar Benazir Bhutto er líka fallin frá þá fer þessi fjölskylda að verða  sveipuð  goðasagankenndum blæ.   Vonandi verður goðsagnakenndur blær þessarar fjölskyldu  til þess að virkt lýðveldi kemst á í Pakistan.


mbl.is Benazir Bhutto látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyleif dóttir mín 11 ára í dag.

Árin líða svo undurfljótt og í dag er Eyleif Ósk dóttir mín  11 ára.  Gísli og Eyleif voru hér áðan og fleiri gestir.  Það var glatt í góðra vina hóp.IMG_1618 Hér er mynd af Eyleifu með bleiku húfuna sem hún fékk frá Sveinu og Geir í jólagjöf.   Með henni eru Þórdís og Júlía Ruth Ragnars og Birnu börn.    Áðan skutlaði ég svo Eyleifu og  Gísla til móður sinnar en þar tók við annað fjölskylduboð með móðurfólkinu.  Nóg að gera við að hitta vini  og vandamenn.  Jólin eru jú til að samgleðjast og treysta fjölskylduböndin.

Í  dag hefði einnig nafni minn og frændi Gísli Sigurður Geirsson, orðið 50 ára gamall en hann lést árið 1993 úr  krabbameini.  Foreldrar Gísla voru Sveina frænka (systir pabba) og Geir Sigurjónss, þau er gáfu Eyleifu dóttir minni bleiku húfuna sem hún er með á myndinni.

Óska svo öllum blogg vinum Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þökk fyrir það liðna.  Síðast en ekkí síst, stórt knús til afmælisbarnsins.

 


Þorlákur helgi og Þorláksmessa

Þorláksmessa, sem er kennd við Þorlák helga sem var  Þórhallsson og fæddur 1133 að Hlíðarenda í Fljótshlíð.  Hann lést árið 1193 og varð því 60 ára, sem hlýtur að hafa verið hár aldur á þeim tíma.    

Þorlákur hélt utan til náms og var sex ár (1153-1159) í París og Lincoln. Á báðum stöðum voru frægir skólar á tólftu öld. Þegar til Íslands var komið varð hann fyrst prestur í Kirkjubæ á Síðu 1162 og seinna að Þykkvabæ í Álftaveri og gerðist ábóti.   

Á alþingi 1174 var Þorlákur kosinn biskup í Skálholti í stað Klængs Þorsteinssonar.  Verðandi biskupar á Íslandi þurftu að fara til Þrándheims til vígslu, enda heyrði hin íslenska kaþólska kirkja undir biskupinn í Niðarósi.  Þorlákur fór ekki utan til vígslu fyrr en 1177 og var vígður til biskups í Niðarósi 2. júlí 1178.  Þorlákur var svo biskup í Skálholti til dauðadags.    

Snemma var farið að leita til Þorláks með meinsemdir manna og plágur ýmsar og þótti blessun hans kröftug til að bægja slíku frá.   Á kaþólskum tíma voru yfir 50 kirkjur helgaðar heilögum Þorláki.  Aðeins Pétri postula, Maríu og Ólafi helga voru helgaðar fleiri kirkjur en honum.  Jóhannes Páll páfi II útnefndi Þorlák verndardýrling Íslands með tilskipun 14. janúar 1985. 

Þorláksmessurnar eru tvær.

Sú Þorláksmessa sem við þekkjum er 23. desember miðast við dánardag Þorláks helga.  Þorláksmessa á sumar  er 20. júlí, en þann dag voru bein hans tekin úr jörðu árið 1198 og var sú Þorláksmessa lögtekinn 1237.   Kirkja heilags Þorláks stóð í Þorlákshöfn, sem var og er mikilvæg verstöð á landinu bláa. .  Í bókinni sögu daganna segir Árni Björnsson svo frá: “ Þorláksmessa á vetur varð lífsseigari en sumarmessan eftir siðaskipti og veldur þar nálægð jóla.  Þá var soðið hangikjöt til jólanna, og víða smakkað á því um leið.  Almennari var þó sá siður að hafa fiskmeti, skötu eða soðinn harðfisk á borðum á Þorláksmesu.  Í upphafi kann þetta einfaldlega að hafa  verið ómerkilegur hversdagsmatur rétt fyrir stórhátíðina, en í fiskátinu kynni einnig að gæta leifa af katólskri jólaföstu eða sérstakri Þorláksmessuföstu.  Á 20. öld hafa Vestfirðingar haldið tryggð við kæsta skötu sem Þorláksmessumat og er sá siður orðinn almenntur. 

Í Lincoln stendur glæsileg dómkirkja.  Þorlákur helgi kom til Lincoln frá París árið 1157 og var þar til 1159.   Árið 1072  var hafist handa við að byggja dómkirkjuna og var bygging hennar langt komin þegar hann var þar.

 

Tengsl á milli Lincoln og Þrándheims voru nokkur á tímum Þorláks helga..  Dómkirkjan í Þrándheimi er byggð að fyrirmynd kirkjunnar í Lincoln.   Elsti hluti dómkirkjunnar í Þránheimi (Niðrarósi)  var í byggingu  frá 1130-1180.  Sá hluti var því enn í byggingu þegar Þorlákur helgi vígðist í Niðarósi til biskups.   Efalaust hefur hann kannast við ýmislegt í arkitektúr Niðarósdómsins frá dögum sínum í Lincoln. Kannski hefur hann lagt mönnum góð ráð við að gera dómkirkjuna í Þrándheimi  að hluta að fyrirmynd dómkirkjunnar í Lincoln.  Hvað sem því líður þá er það söguleg staðreynd að Niðrósdómurinn í Þrándheimi er að reistur að hluta að fyrirmynd dómkirkjunnar í Lincoln og Wesminister Abbey í London, enda komu m.a. iðnaðarmenn frá Englandi til að reisa kirkjuna í Þrándheimi.   Kórinn í báðum kirkjum er  mjög líkur.

 

Lincoln

Í Lincoln er Þorlákur helgi ekki alveg gleymdur.  Ekki langt frá  Dómkirkjunni í lítilli kirkju, sem nú er bókasafn og upplestrarsalur fyrir stúdenta, er glerlistaverk .  Þar eru 5 dýrlingar merktir í hver sína rúðu í glugganum.   Einn af dýrlingunum er Þorlákur helgi og er í annarri rúðu frá vinstri ef maður er inní lestrarsalnum. Myndir af kirkjunum í Þrándheimi og Lincoln má sjá hér

 

Ég hef búið og starfað í Lincoln og komið til Þrándheims. Ólíkir en samt líkir bæir.  Lincoln stendur inní miðju landi á meðan Þrándheimur er við sjó og stendur við ár ósa,  Niðurósa.  Báðir staðir eru Háskólabæir, sem eiga ríka sögu, fallegar byggingar og það er vel hægt að  mæla með heimsókn á báða staði.

 

Megi skatan bragðast vel á Þorláksmessu.

 

Samkvæmt rannsóknum eru kynin jafn ofbeldisfull, þó ofbeldið sé ólíkt.

Umræða feminista gengur oftast út á að konur séu fórnarlömb og karlar gerendur í nánast öllu ofbeldi.  Svipuð umræða kemur frá þeim stofnunum samfélagsins sem á að fjalla um jafnréttismál.  Ég vil benda á vísindagreinasafn sem fjallar um að konur eru minnst jafn ofbeldisfullar  og  karlar, þeirra ofbeldi er þó öðruvísi.   Þar segir í samatekt.

#This bibliography examines 209 scholarly investigations: 161 empirical studies and 48 reviews and/or analyses, which demonstrate that women are as physically aggressive, or more aggressive, than men in their relationships with their spouses or male partners.  The aggregate sample size in the reviewed studies exceeds 201,500. #

Skv öðrum alþjóðlegum rannsóknum eru oftast báðir aðilar ofbeldisfullir, þegar ofbeldi er í parasamböndum. Um það má lesa hér.  

Það er eins með umræðuna um ofbeldi eins og umræðuna um jafnrétti. Hún er einhliða, stillir konum upp sem fórrnarlömbum og körlum sem gerendum.   Sú mynd er röng.

 

 

 


mbl.is Ekki um jólakort að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvöldstund Norðfirðingafélagsins í Fella- og Hólakirkju.

Þann 20. desember 1974 féllu tvö snjóflóð í Neskaupstað, með þeim afleiðingum að atvinnulíf staðarins lamaðist og 12 einstaklingar létust.   Slíkir atburðir fara aldrei úr minni þeirra er voru í Neskaupstað þennan dag.

Þegar 30 ár voru liðin frá þessum atburðum þá stóð Norðfirðingafélagið í Reykjavík fyrir messu í Fella og Hólakirkju, þann 20. desember 2004.  Það var þétt setin kirkja og Sr. Svavar Stefánsson sem var lengi prestur í Neskaupstað fór með ákaflega fallega tölu.  Síðan hefur Norðfirðingafélagið staðið fyrir messu þann 20. desember og ávallt í Fella og Hólakirkju þar sem Sr. Svavar hefur farið með tölu.

Í dag eru 33 ár  síðan þessir hræðilegu atburðir gerðust og var ein slík bænastund haldin í dag.  Það mættu liðlega 40 manns.  Þetta var eins og alltaf falleg stund og alltaf stendur Sr. Svavar fyrir sínu og ríflega það.    Alltaf er gaman að hitta Norðfirðinga.  Fyrir suma af okkur burtfluttu er þessi stund að verða fastur liður í jólaundirbúningnum.

Foreldrar mínir komu með okkur í bænastundina í dag en faðir minn hefur verið í krabbameins meðferð.  Hann er allur að hressast og eftir þessa fallegu stund fórum við á veitingastað og fengum okkur snarl.  Það er sannarlega jákvæð breyting á hans líðan og vonandi heldur meðferðin áfram að gera honum gott.  Bætt líkamleg heilsa styrkir hann og gefur von um bætt lífsgæði.  Foreldrar  mínir fara svo austur á morgun. 

Hér er svo mynd af firðinum fagra, Norðfirði,  með teikningu af þeim Snjóflóðavörnum sem voru settar fyrir ofan Víðimýri.  

Norðfjörður snjóflóðavarnir

 

 


Reykjavíkur flugvöllur og hreinlætisaðstaða fyrir stomaþega !

Foreldrar mínir komu suður í kvöld, en faðir minn er að fara í læknisskoðun á morgun til að ákveða frekari meðferð.   Útlitið á honum fannst mér svipað og þegar hann fór austur og það gladdi mig. 

Nú er faðir minn með stoma poka og hefur það  gengið eftir atvikum þokkalega.  Pabbi sýndi mér salernisaðstöðuna á Reykjavíkurflugvelli.  Eina WC aðstaðan sem hentar stomaþegum er inni á svæðinu sem lokast þegar Færeyjar og Grænlandsflug koma. Þar er eina salernið með vask og klósett í sama rými.  Hann sagði að aðrir stomaþegar hefðu sagt sér frá þegar þeir hafa komið að austan og á sama tíma og Grænlands/Færeyjarflug og kakan hafi losnað.   Þá eru þessir einstaklingar í ákaflega erfiðri stöðu, enda engin boðleg salernisaðstaða tilstaðar fyrir þá á Reykjavíkurflugvelli.  Hitt salernið er með vaskana fyrir framan klósettin og henta þannig ekki til  að skipta um stoma poka, hvað þá kökuna.

Pabbi var alveg undrandi á því að enginn skyldi fjalla um þetta aðstöðuleysi sem stomaþegar þurfa að búa við á Reykjavíkurflugvelli þegar flug frá Færeyjum og Grænlandi teppir þetta eina salerni sem hentar.    Ég set því þessa punkta hér inn og vek athygli á þessu þarfa máli og deili skoðun og áhyggjum föður míns.  Þetta er eitt af þessum málum sem maður leiðir ekki hugann að fyrr en einhver nákominn er í svona aðstöðu.

Ég held að hver einasti maður sé sammála því að almennt er aðstaðan almennt á Reykjavíkurflugvelli ekki í nokkrum takti við nútímann og í raun til háborinnar skammar.

 


Ótrúleg vinnubrögð Á lista og fréttamennska.

Þessi frétt er dæmigerð fyrir vinnubrögð Á lista.  Stílfærð frétt eins  og oftast frá Á-lista og Bæjarútgerðinnni.  Langar að benda á grein sem fjallar um hin óvönduðu vinnubrögð sem voru viðhöfð við gerð og umfang þessarar skoðannakönnunar.  Greinin er hér .   
mbl.is Meirihluti íbúa Álftaness vill „Grænan miðbæ“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin klisjan um kynin

Önnur klisja um kynin er að karlar séu margfalt ofbeldisfyllri en konur.  Ég vil benda á vísindagreinasafn sem fjallar um að konur eru minnst jafn ofbeldisfullar  og  karlar, þeirra ofbeldi er þó öðruvísi.  Framsetning á ofbeldi hér á landi  og í Skandinavíu er  að karlar séu gerendur í 80-90% af öllu ofbeldi.  Þetta er trúlega fjarri öllu sanni.  Skv rannsóknum eru oftast báðir aðilar ofbeldisfullir, þegar ofbeldi er í parasamböndum. Um það má lesa hér.   Um þetta er ekki fjallað.
mbl.is Rannsókn: Karlar eru málgefnari en konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömul bekkjarmynd.

Vinur minn og gamall bekkjarbróðir Gunnar Þorsteinsson er í heimsókn.  Hann gaf mér gamlar myndir, m.a. þessa sem var af annarri bekkjardreild 1964 árgangsins.  Þetta er trúlega tekið í 4. bekk sem í núverandi kerfi væri 5 bekkur.  Kennari var Guðríður Kristjánsdóttir.  Ég er lengst til hægri í næst fremstu röð.  Myndir sem Gunnar lét mig fá má sjá hér


Lyfjameðferð hefst

Foreldrar mínir komu suður í gær og í dag fór ég með þau á LSH.  Hittum ágætan lyfjalækni Friðbjörn Sigurðsson.  Hann var heiðarlegur og sagði eins og var að sjúkdómurinn hjá pabba væri illvígur og langt gegninn.  Það breytir ekki því að það er oft ótrúlegt hvað meðferðir hjálpa og bæta lífsgæði sjúklinga, þó þeir þurfi að lifa með sjúkdómnum.  Það var ákveðið að pabbi fer í 8 vikna lyfjameðferð. Hann getur verið fyrir austan mest allan tímann en kemur aðra hverja viku suður til að fá lyfjagjöf í æð. 

Eftir skoðun fór hann að fá lyfjagjöf í æð, en ég fór að útrétta og fór m.a. niður á Tryggingarstofnun ríkisins.  Það er sérstakt að koma þar inn og taka númer og láta starfsmannin fá pappíra pabba.  Þar er manni tilkynnt að það taki tvær vikur að komast inní kerfið, svo TR greiði eða taki þátt í  kostnaði vegna lyfja og stomapoka.  Maður hugsaði tvær vikur að skrá einstakling inní eitthvað kerfi.  Það er greinilegt að þetta er steinrunnin ríkisstofnun, þar sem hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir.  Enda skilst mér að stutt sé síðan starfsmaður varð uppvís að því að stela tugum milljóna og fráfarandi forstjóri sagði að það vantaði allar heildarstefnumótun fyrir stonfunina.  Það er mikil gæfa að hafa ekkert þurft að sækja til þessarara stofnunar.

Ég sótti svo pabba og mömmu á sjúkrahúsið, en pabbi fór beint í rúmið,  orkulítill eftir lyfjagjöfina. Þau fara svo austur á morgun, sem er gott.  Það er nú þannig að heima er best og í slíkum tilvikum er það langt best að vera heima ef mögulegt er.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 186895

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband