Merkilegur Forseti.

Það var ekkert auðvelt að setjast í stól Forseta á eftir frú Vigdísi Finnbogadóttur.  Vigdís var eins og fyrri Forsetar eins konar samnefnari þjóðarinnar og þó hún væri ekki óumdeild, þá naut hún mikillar virðingar bæði hér heima og ekki síst á alþjóðavettvangi, fyrsta konan í heiminum sem var kosin Forseti í lýðræðislegum kosningum.  Fyrir það fékk bæði hún og Ísland heimsathygli.  Hún sat á friðarstól sem Forseti og undirritaði öll lög sem hún fékk frá Alþingi.  Það sama höfðu fyrri Forsetar gert.  Ólafur var aftur á móti fræðimaður og umdeildur mjög úr sínu pólitíska starfi.  Með þann bakgrunn sest hann í stól Forseta og tekur við af Vigdísi Finnbogadóttur.   Ólafur hefur vart setið á friðarstóli, því hann var meðvirkur með ríkjandi fjármálaöflum og gekk erinda 365 þegar hann neitaði að undirrita fjölmiðlalögin um árið.  Ég tel að það hafi verið mikið ógæfa, því við búum við ósjálfstæða fréttamennsku.  Með því að neita að undirrita fjölmiðlalögin, þá kallaði einnig hann yfir sig reiði manna sem flestir voru ekki í sama flokki og hann hafði verið í.  Nú hefur hann aftur á móti í tvígang sent Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu og uppskorið vinsældir hjá þeim sem áðurfordæmdu hann vegna fjölmiðlafrumvarpsins.  Þeir sem áður dásömuðu hann eru nú óánægð í meira lagi með framgöngu hans í Icesave. Það má því með sanni segja að Ólafur sé umdeildur en trúlega er hann eftir sem áður að verða einn merkasti Forseti Lýðveldisins Íslands, sem hefur skráð nafn sitt með afgerandi hætti á spjöld sögunnar.
mbl.is Hlutverk forseta að veita stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gísli Gíslason

Höfundur

Gísli Gíslason
Gísli Gíslason
Höfundur er 45 ára frá Norðfirði, búsettur á Álftanesi, faðir og áhugamaður um jafnréttismál
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_3280
  • m6 toll plaza great wyrley
  • Vegatollur-banner2
  • Vegatollur-banner2
  • isbjörn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 70
  • Frá upphafi: 183967

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband