15.6.2008 | 12:00
Mikilvæg frétt !
![]() |
Mannvit bætir við sig 70 manns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt 26.10.2008 kl. 20:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2008 | 10:59
Álftanes – Umdeilt deiliskipulag samþykkt
Gísli Gíslason skrifar um skipulagsmál á Álftanesi: "Samþykkt skipulag sem er með sömu grunnþáttum og íbúar mótmæltu, þ.e. með Skólaveg og sundurklippta Breiðumýri."
Á Álftanesi hefur lengi verið ágreininngur um skipulag og uppbyggingu miðsvæðisins. Þannig risu á síðasta kjörtímabili mótmæli, sem byggðust á huglægum rökum eins og að gildandi skipulag uppfyllti ekki kröfur íbúa, hús væru ljót o.s.frv.
Við síðustu kosningar náði Á-listi meirihluta með þriggja atkvæða mun. Þeir hreinlega hentu því skipulagi sem var í gildi og köstuðu þar með tugmilljónafjárfestingum í þeirri vinnu. Ekki tókst betur til með nýtt skipulag en að nú risu aftur mótmæli, kröftugri en nokkru sinni fyrr. Ríflega helmingur kosningabærra manna mótmælti. Megininntak mótmælanna var að ekki skyldi leggja svokallaðan Skólaveg og ekki skyldi klippa veginn Breiðumýri í sundur.
Það skipulag sem var samþykkt í bæjarstjórn hinn 22. maí sl. er áfram með Skólaveg, sem þó hefur fengið nýtt nafn og stefnu vegarins aðeins verið hnikað. Áfram á að klippa í sundur Breiðumýri. Margvíslegar aðrar breytingar hafa þó verið gerðar eins og að lækka hús um 10 sm, minnka byggingarmagn og flytja bensínstöð. Það er óhætt að segja að þessar breytingar eru til bóta, enda það skipulag sem kynnt var meingallað. Á heimasíðu bæjarins er bókað: Bæjaryfirvöld þakka fyrir áhuga og þátttöku íbúa, en niðurstaða deiliskipulagsvinnunnar er einmitt dæmi um það hvernig umræða frá íbúum leiðir til nýrri og betri lausna í skipulagi.
Staðreyndirnar tala sínu máli. Á-listi hefur nú samþykkt skipulag sem er enn með sömu grunnþáttum og ríflega helmingur kosningabærra íbúa mótmælti, þ.e. með Skólaveg og sundurklippta Breiðumýri. Það er sérkennilegt að þakka íbúum fyrir ábendingar um leið og ekki er tekið tillit til helstu grunnþátta sem íbúar gerðu athugasemdir við.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2008 | 08:55
Mogginn um álið !
Sú var tíð að maður bar mikla virðingu fyrir ritstjórnar greinum Morgunblaðsins. Ég held að velflestir séu sammála að blaðið og ritstjórnarstefna þess hefur veikst verulega á síðustu árum. Mogginn hafði m.a. miklar efasemdir um ágæti framkvæmda við Kárahnjúka og byggingu álvers á Reyðarfirði. Mér fannst blaðið falla í nákvæmlega sömu gryfju og aðrir fjölmiðlar hér á landi með einhliða fréttamennsku af þessum framkvæmdum. Það er því sérstaklega ánægjulegt að lesa leiðar Morgunblaðsins í dag þar sem segir m.a:
"Þegar jafnt net- sem bankabólur springa verður framleiðsla á hrávörum eins og áli hlutfallslega verðmætari en áður. Viðskiptajöfnuður, sem margir horfa til þegar styrkur efnahagslífsins er metinn, er hagstæðari en ella. Verðmæti sem felast í fallvötnum og jarðvarma eru nýtt. Fjöldi fólks hefur lifibrauð sitt af því að starfa í álverum eða starfsemi þeim tengdri. Tekjur hins opinbera af þessari starfsemi nema milljörðum króna sem notaðir eru til að veita mikilvæga opinbera þjónustu.
Erfiðar aðstæður í efnahagslífinu setja þennan ávinning af starfsemi álvera í nýtt samhengi. "
Þessi tónn er raunsær og ánægjulegur. Vonandi er þetta upphafið að endurreisn Morgunblaðsins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2008 | 11:44
Orð í tíma töluð hjá Árna Johnsen !
Þingmaðurinn og lífskúnsterinn Árni Johnsen skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, sem ber yfirskriftina "Barnaleg Björk". Hann fjallar þar um misskilda umhverfisvernd. Margir aðilar gefa íslendingum "hollráð" að það megi ekki virkja og það megi ekki veiða hvali osfrv. Þetta á allt að skemma ímynd Íslands. Árni segir m.a.:
"Þessi hollráð koma t.d. frá listamönnum eins og Björk sem hefur vissulega kynnt Ísland á sinn hátt, en alltaf út frá sínum forsendum. Hennar kynning hefur tvímælalaust verið jákvæð, en í draumum ævintýranna má ekki gleyma raunveruleikanum, fólkinu í okkar landi sem vantar vinnu, heilu landsvæðunum sem vantar grósku og drifkraft núna."
Það þurfa fleiri að vera eins og Árni Johnsen og þora að stíga fram og segja sínar skoðanir, líka þó þeir séu ósammála okkar frægustu listamönnum. Ég gef Árna Johnsen fullt hús stiga fyrir grein sína í Morgunblaðinu í dag.
Jafnframt ber ég virðingu fyrir skoðunum Bjarkar, sem ég held að sé nokkuð sem skoðanasystkyni hennar hafi ekki fyrir sjónarmiðum okkar sem viljum nýta hóflega landsins gæði.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.6.2008 | 18:45
Glæsilegur borgarstjóri!
![]() |
Hanna Birna verður borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.5.2008 | 10:01
Sjómannadagskaffi Norðfirðingafélagsins.
Sjómannadagskaffi Norðfirðingafélagsins verður haldið á Kaffi Reykjavík á Sjómannadaginn, sem er næstkomandi sunnudag, 1. júní.
Undanfarin ár hafa þetta verið stórskemmtilegar samkomur og vaxandi mæting. Það hressir alltaf sál nobbarans að hitta sveitunga sína. Það er því full ástæða að hvetja fólk til að mæta.
Kaffi og kökur á kr. 1200 pr mann, minnst 17 sortir í boði.
Sjómannadagsblaðið verður selt.
Harmonikkuleikur
Kaffisamsætið verður milli kl. 15 og 17.
Vinir og fjölskylda | Breytt 26.10.2008 kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2008 | 09:48
Dagur Barnanna!
Dagur barnanna er í dag á Íslandi í fyrsta sinn. Það er full ástæða til að óska öllum börnum til hamingju með daginn. Það er mikilvægt að landið merki einn dag á dagatalinu börnum og fjalli um stöðu þeirra í samfélagi nútímans. Auðvitað sérstök kveðja til minna frábæru barna en þau heita Eyleif Ósk og Gísli Veigar.
Þegar Félaga ábyrgra feðra (foreldrajafnrétti) gaf út sitt fyrsta blað árið 2006, sem hét Ábyrgir feður þá var fjallað um það í grein á bls 13 að hér á landi væri enginn feðradagur, enginn dagur barnsins og enginn dagur fjölskyldunnar. Feðradagurinn er kominn og nú Dagur barnsins. Vonandi verður einnig í framtíðinni einn dagur helgaður fjölskyldunni. Fjölskyldan er áfram hornsteinn í okkar samfélagi en hún er orðinn fjölbreyttari og samsettari. Það er full þörf á að samfélagið velti einnig fyrir sér stöðu fjölskyldunnar í samfélagi nútímans.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.5.2008 | 13:01
Sorglegur Á-listi !
Þeir félagar í Á lista, telja sig yfir allt og alla hafna. Þeir neita lóðarhafa um að byggja á lóð sinni til að tryggja útsýni fyrir forseta bæjarstjórnar, þann er veitti oddvita D-lista vítur. Bæjarstjóra er alveg sama þó hæstiréttur kemst að því að lóðin er byggingarlóð. Nú á bara að taka þess lóð útaf skipulagi til að tryggja endanlega forseta bæjarstjórnar sitt útsýni. Þetta er ekkert annað en pólitísk spilling og valdníðsla.
Kristján og Sigurður vilja greinilega að kæfa lýðræðislega umfjöllun á Álftanesi. Það er mikilvægt að allt lýðræðissinnað fólk haldi áfram að veita Á lista málefnalegt aðhald.
Þessi ávítun beinir athyglinni frá þeirra sjálfumglaða miðbæjarskipulagi sem um helmingur kosningabærra manna mótmælti yfir á oddvita D-lista. Í sjálfumgleði sinni kalla þeir skipulagið sitt "hinn græna miðbæ". Það skipulag samþykktu þeir á sama fundi og Á listi ávítti oddvita D-lista.
Það er mikilvægt að það náist sátt á Álftanesi en því miður er það varla fyrirsjáanlegt með þá tvo í brúnni hjá Á lista.
![]() |
Bæjarfulltrúi víttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.5.2008 | 16:01
Ef mæðurnar eru fíklar en feðurnir ekki, af hverju er þá forsjáin ekki hjá feðrunum?
Almennt þema í barnalögum er að það sem er barni fyrir bestu skuli ráða. Ég hef ítrekað og oft talað fyrir því að báðir foreldrar eru bestu hagsmunir barna. Barn eigi rétt á báðum foreldrum nema það sé andstætt hagsmunum barna. Ef annað foreldrið lendir í tímabundinni eða langvarandi ógæfu, þá eigi börnin einnig heimili og skjól hjá hinu foreldrinu, sem börnin geta hallað sér meir að við slíkar aðstæður.
Í fréttinni er verið að fjalla um 20 fíkla sem eru mæður og hafa látist frá börnunum. Nú getur hluti af barnsfeðrunum einnig verið ógæfu einstaklingar. En það er staðreynd að þegar bjátar á hjá móður, þá fer kerfið á stað að hjálpa en þegar bjátar á hjá feðrum þá eru úrræðin oftar að gæta að þess að barn hafi ekki of mikil samaskipti við viðkomandi ógæfueinstakling. Hér er kynbundin munur á viðbrögðum hins opinbera.
Af hverju eru svona langt leiddir einstaklingar eins og í fréttinni með meginábyrgð á börnum. Af hverju eru feður þeirra ekki með forsjánna?? Í mínum huga er ekki spurningin hvort eitthvað sé að því að feður fái forsjá heldur er eitthvað að því að svona sjúkir einstaklingar (mæður) hafi forsjá.
![]() |
Um 20 fíklar látist frá börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.5.2008 | 13:38
Ísland á eftir !
Það er sorglegt hvað Ísland er á eftir nágrannalöndunum í sifjamálum.
En það er margt sem horfir til betri vegar. Fyrir stuttu var samþykkt í rikisstjórn að endurskoða meðlagskerfið og viðurkennt að kerfið hér hefði þróast hægar í áratugi en í nágrannalöndunum. Um það má lesa hér og skýrslan um það er hér.
Nú er Ísland eina landið eftir í hinum vestræna heimi sem ekki gefur dómurum heimild til að dæma í sameiginlega forsjá. Það er full ástæða til að óska Félagi um foreldrajafnrétti til hamingju með öfluga skýrslu. Trúlega verður lögfest á næsta þingi heimild dómara til að dæma í sameiginlega forsjá. Það getur ekki verið að það gildi einhver önnur lögmál hér en allsstaðar í hinum vestræna heimi, þ.e. að dómarar eigi að hafa óheftar hendur í að dæma það sem þeir telja barni fyrir bestu.
Ég hef velt fyrir mér af hverju Ísland hefur verið svona á eftir nágrannalödnunum og komist að m.a.:
- Félag ábyrgra feðra(foreldrajafnrétti) er stofnað hér á landi árið 1997 og mun seinna en í nágrannalöndunum. Þannig kom þrýstingur frá svona samtökum seinna hér á landi en annarrstaðar.
- Eitt sinn var til Sifjalaganefnd sem átti að gæta að norrænni réttarfarsþróun á sviði Sifjalaga. Sagan er falleinkunn á starfsemi þeirrar nefndar. Í blaði Félags ábyrgra feðra er bent á rök af hverju ætti að endurmanna þá nefnd sjá á bls 24. Ég held að Dómsmálaráðherra hafi lagt hana niður. A.m.k finnst hún ekki á vef ráðuneytisins.
- Hreyfingar kvenna hafa almennt séð verið á bremsunni í hinum vestræna heimi þegar jafna á rétt foreldra. Þessar hreyfingar eru trúlega áhrifa meiri hér á landi en víða annarsstaðar. Kvennahreyfingarnar nota yfirleitt kynbundið ofbeldi/heimilisofbeldi sem rök fyrir því því að ekki sé hægt að veita feðrum/körlum jafnan rétt á við mæður/konur. Þannig eiga skv þeirra málflutningi jaðartilvik (ofbeldi) að móta meginregluna, sem er rökleysa.
- Í þeirri deild í Dómsmálaráðuneytinu sem á að framkvæma sifjalög, einkamálaskrifstofa hafa trúlega orðið til viðhorf, sem hafa staðnað og ekki verið í takt við samfélagið, sbr íslenska meðlagskerfið.
- Opinber stjórnsýsla er fjallar um sifjamál er skipuð í 70-90% tilvika konum.
Sjálfsagt er margt annað sem mætti nefna, en ég held að þetta séu helstu ástæður. Meginmálið er að það eru breytingar í farvatninu. Það eru tveir stjórnmálamenn sem eiga heiður að því og það er annarsvegar Björn Bjarnason Dómsmálaráðherra, sem er að láta endurskoða meðlagskerfið og hinsvegar Jóhanna Sigurðardóttir, sem hefur skipað nefnd til að skoða stöðu forsjár og forsjárlausra foreldra. Þau eiga bæði heiður skilinn.
![]() |
Fjallað um foreldrajafnrétti í nýrri skýrslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.10.2008 kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Gísli Gíslason
Bloggvinir
-
raggig
-
eyleifosk
-
gummigisla
-
andres08
-
alla
-
gattin
-
eurovision
-
doggpals
-
saxi
-
eysteinn-thor
-
garibaldi
-
killjoker
-
gudrunkatrin
-
gisliivars
-
veravakandi
-
heimirhilmars
-
heg
-
jakobbjornsson
-
joik7
-
kristinnagnar
-
lauola
-
magneak
-
mal214
-
nafar
-
sigrunsveito
-
sigurjonth
-
sighauk
-
slartibartfast
-
sveinni
-
valgerdurhalldorsdottir
-
sparki
-
btryggva
-
keh
-
seinars
-
siggisig
-
sigurjons
-
valli57
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar